Samkomulag um Landspítalalóð
Tillagan gerir ráð fyrir nýbyggingum á Landspítalalóð sem verða samtals 95 þúsund fermetrar að stærð.
Samkomulag milli Reykjavíkurborgar annars vegar og fjármálaráðuneytisins og velferðarráðuneytisins hins vegar um landsvæði tengt uppbyggingu Landspítala var kynnt í borgarráði í gær. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja ekki tímabært að taka afstöðu til málsins.
Svæðið sem um ræðir kallast reitir A, B, C og U. Tillagan sem kynnt var í borgarráði í gær er háð fyrirvara um gildistöku deiliskipulags á athafnasvæði LSH við Hringbraut. Málinu var frestað á borgarráðsfundinum í gær.
„Samkvæmt samningnum sem nú er framlagður um framtíðaruppbyggingu Landspítala er gert ráð fyrir a.m.k. 293.000 ferm byggingarmagni á lóðinni. Það er fjórföldun núverandi byggingarmagns. Gildi samningsins hvílir á því að deiliskipulagstillaga sem hvorki hefur verið samþykkt í skipulagsráði né farið í lögbundið kynningar- og samráðsferli verði samþykkt. Sú tillaga að nýjum spítalabyggingum sem rekja má til forhönnunarsamkeppni árið 2010 hefur verið mjög umdeild, ekki síst vegna umfangsins og því ljóst að endanleg niðurstaða um uppbyggingu mun ráðast af þeim viðbrögðum sem tillagan mun fá meðal almennings í kynningar- og auglýsingarferlinu. Skipulagsráð verður að taka sér þann tíma sem nauðsynlegur er til þess að móta uppbyggingu á lóð Landspítalans með heildarhagsmuni að leiðarljósi. Áður en því mikilvæga og lögbundna ferli lýkur getur borgarráð ekki afgreitt samninga sem ganga út frá ákveðinni niðurstöðu í þessu stóra máli,“ segir í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Borgarráðsfulltrúar Besta flokks og Samfylkingar létu bóka: „Nýtt samkomulag um lóð og lendur ríkisins á og í kringum Landspítalann er endurskoðun á eldri samningum. Eldri samningar gera ráð fyrir að Landspítali og Háskóli Íslands eigi byggingarheimildir á svokölluðum A-, B-, C- og U-reitum. Í endurskoðuðu samkomulagi er gert ráð fyrir að byggingarheimildir á U-, C- og syðsta hluta B-reits gangi til borgarinnar. Í samkomulaginu eru aðilar sammála um að vinna að framsetningu deiliskipulags á skipulagsreitum í samræmi við vinningstillögu í forhönnunarsamkeppni um nýjan Landspítala frá júlí 2010. Endurskoðun á deiliskipulagi Landspítalalóðar hefur staðið yfir um nokkurt skeið og verið í vinnslu hjá skipulagsráði. Þeirri vinnu er ekki lokið. Fallist skipulagsráð ekki í megindráttum á þær tillögur sem hafa verið til umfjöllunar hjá ráðinu í tæp tvö ár mun samkomulag þetta ekki öðlast gildi. Gildistaka skipulags er forsenda þess að samkomulagið sé í gildi. Bent er á að endurskoðað skipulag þarf að taka mið af samningum ríkis og borgar um ráðstöfun byggingarréttar og því eðlilegt að nýtt samkomulag liggi fyrir í megindráttum áður en skipulagsbreyting er hagsmunaaðilakynnt eða auglýst. Mikill ávinningur er af því fyrir borgina að geta nýtt þær byggingarheimildir sem kunna að verða til á svæðinu án tillits til uppbyggingarþarfa Landspítalans og Háskóla Íslands með tilliti til ábyrgrar borgarþróunar og því er lögð áhersla á að samningar við ríkið um nýtingu landsins séu skýrir.“


































