Vilja að slitastjórn Dróma verði vikið frá
Hagsmunasamtök heimilanna hafa sent beiðni til héraðsdóms um að slitastjórn Dróma verði vikið frá sjái dómarar ástæðu til þess.
„Að undanförnu hefur töluvert borið á umræðu um framgöngu slitastjórnar Dróma gagnvart skuldurum, þar sem fyrrverandi viðskiptavinir SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans virðast ekki sitja við sama borð og lántakendur viðskiptabankanna.
Hinn 20. febrúar síðastliðinn var Ásta S. Helgadóttir, umboðsmaður skuldara, í viðtali í Kastljósi á RÚV þar sem hún lýsti þeim kvörtunum sem til embættis hennar hafa borist frá skuldurum vegna samskipta þeirra við Dróma, en nefndi einnig að kvartanir hafi borist víðar að, m.a. frá lögmönnum, fasteignasölum og starfsmönnum Íbúðalánasjóðs.
Hagsmunasamtök heimilanna fóru þess á leit við félagsmenn sína að þeir sendu samtökunum formlegar kvartanir með undirskrift vegna framgöngu Dróma gagnvart þeim. Eru kvartanir félagsmanna HH á svipuðum nótum og umboðsmaður skuldara lýsti í ofangreindu viðtali, þ.e. að slitastjórn Dróma fylgi ekki almennum leikreglum hvað varðar góða viðskiptahætti.
Meðal umkvörtunarefna er að engin svör berist frá Dróma vegna endurútreikninga á ólögmætum gengisbundnum lánum, fasteignasalar á vegum Dróma meti fasteignir of hátt, Drómi geri ákveðna fyrirvara við sértæka skuldaaðlögun og 110% leiðina og svo mætti lengi telja. Af þessum kvörtunum má ráða að sökum þess að Drómi er þrotabú sem ekki fellur undir almenna bankastarfsemi og hefur því engan langtímahag af því að koma fram við mögulega framtíðarviðskipti sína af sanngirni, sé það meginmarkmið slitastjórnarinnar að hámarka eignir þrotabúsins.
Þar virðist sem slitastjórnin gangi fram með mikilli óbilgirni gangvart skuldurum og virði að vettugi góða viðskiptahætti að mati Hagsmunasamtaka heimilanna. Samkvæmt 76 gr. og 169 gr. laga um gjaldþrotaskipti (nr. 21/1991) hefur héraðsdómari heimild til að víkja skiptastjóra úr starfi að því undangengnu að skriflegar aðfinnslur hafi borist honum um störf skiptastjóra: „Sá sem krefst úrskurðar héraðsdómara um hvort skiptastjóra verði vikið úr starfi skv. 3. mgr. 76 gr. skal beina skriflegri kröfu sinni um það til héraðsdóms þar sem skiptastjórinn var skipaður til starfans.” Í ljósi ofangreindra laga og þeirra kvartana sem reifaðar hafa verið í bréfi þessu vilja Hagsmunasamtök heimilanna óska eftir því að Héraðsdómur Reykjavíkur kalli eftir þeim kvörtunum sem borist hafa bæði Umboðsmanni skuldara og ráðuneytum. Sjái héraðsdómari ástæðu til að víkja slitastjórn Dróma frá á grundvelli þeirra óska samtökin eftir að það verði gert tafarlaust,“ segir í bréfi sem Hagsmunasamtök heimilanna hafa sent til Héraðsdóms Reykjavíkur.


































