Enn ósamið um sjúkraflutninga
Guðrún Sóley Gestsdóttir, gudrunsoley@mbl.isEnn er enginn samningur milli ríkis og slökkviliðs um sjúkraflutninga en fyrri samningur rann úr gildi um áramót og hafa sjúkraflutningsmenn verið samningslausir síðan. Gagntilboði stjórnar slökkviliðsmanna hefur ekki verið svarað og reikningur vegna rekstrarkostnaðar það sem af er ári er ógreiddur.
„Mín skoðun er sú að hér á landi sé samrekstur slökkviliðs og sjúkraflutninga mikilvægur fyrir gæði hennar en forsendan er þá að annar aðili í slíkum rekstri borgi raunvirði þjónustunnar,“ segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Stjórn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu sendi hinn 6. janúar ásamt stjórn sveitarfélaga fyrrnefnt gagntilboð við tilboði Sjúkratrygginga Íslands um að greiða 575 milljónir í grunngjald undir starfsemi sjúkraflutninga.
Gagntilboðið hljóðaði upp á 740 milljónir en samkvæmt stjórninni er það lágmarksupphæð til að standa undir kostnaði við rekstur sjúkraflutninga með tilliti til þess að reksturinn nær til þeirra 7 sveitarfélaga sem tilheyra höfuðborgarsvæðinu.
Hvorki svör né greiðslur
Gagntilboðinu hefur ekki enn verið svarað af hálfu ríkisins. „Í gagntilboðinu kom fram að við værum reiðubúnir til að sinna sjúkraflutningum í samningsleysinu þangað til að samið yrði eða annar aðili myndi taka við þeim,“ segir Jón Viðar.
„Með vísun til þessa sendum við svo reikning 1. febrúar. Við honum barst svar frá Sjúkratryggingum Íslands þar sem þeir neita að greiða reikninginn á þeim forsendum að ekki sé í gildi samningur né reglugerð sem heimili að greiða hann.“
Sjúkratryggingarnar sendu svo reikninginn áfram til velferðarráðuneytisins sem svaraði skömmu seinna að þeir gætu heldur ekki greitt reikninginn þar sem ekki væri til þess heimild í fjárlögum. „Þeir óskuðu okkur svo góðs gengis í samningum við Sjúkratryggingar Íslands. Þetta gengur þannig í hringi.“
Jón Viðar segir samningsleysi illþolanlegt vegna eðlis þjónustunnar sem um ræðir. „Þetta er neyðarþjónusta og ekki er um það að ræða að fólk geti valið á milli kosta þegar kemur að sjúkraflutningum,“ segir Jón Viðar.
„Við áttum stjórnarfund með borgarstjóra og bæjarstjórum á höfuðborgarsvæðinu hinn 17. febrúar þar sem mikillar óánægju gætti með að þjónustusamningar hefðu ekki náðst. Einnig kom fram mikið ósætti með að að annar samningsaðilinn væri hreinlega að hóta að setja einhliða reglugerð á okkur,“ en slökkviliðinu hefur verið tilkynnt að sú reglugerð sé í smíðum.
Komið í óefni
Jón Viðar segir menn almennt á þeirri skoðun að samrekstur sjúkraflutninga og slökkviliðs væri hagkvæmur kostur fyrir báða aðila og sérstaklega þá sem njóta þjónustunnar. „Við verðum að ná ásættanlegri niðurstöðu því sveitarfélögin geta ekki niðurgreitt lögbundin verkefni ríkisins, sem sjúkraflutningarnir eru.“
Jón Viðar segir aðstæður komnar út í nokkurt óefni „Nú þegar gegna menn hér innanhúss tveimur mismunandi störfum og menn hafa áhyggjur af íbúum svæðisins.“
Þó er ljóst að þeir muni ekki leggja niður störf eða skapa neyðarástand. „En auðvitað eiga sveitarfélög og ríkið að semja um þessa þjónustu og ekki láta hana vera í uppnámi.“
Jón segist bjartsýnn á að lending náist á næstu dögum. „Við höfum fulla trú á að menn nái að semja. Oft er tregða í upphafi samningaviðræðna, menn þurfa að öðlast skilning á sjónarmiðum hver annars og ég held að við séum stödd þar.“
Sjá fyrri frétt mbl.is um málið hér.



































