Fylgja eigi eftir stefnu VG í kvótamálum

Steingrímur J. Sigfússon formaður VG er sjávarútvegsráðherra
Steingrímur J. Sigfússon formaður VG er sjávarútvegsráðherra mbl.is/Ómar Óskarsson

Flokksráð VG samþykkir að VG beri að fylgja fast eftir samþykktri stefnu flokksins í fiskveiðistjórnunarmálum og breyta kvótakerfinu á þann hátt að núverandi kvótaréttindi verði aflögð samhliða því sem ný stefna verði innleidd. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundi flokksráðsins í dag.

„Jafna skal rétt fólks til að stunda útgerð, tryggja hag sjávarbyggða og skila sanngjörnu afgjaldi af nýtingu auðlindarinnar í sameiginlega sjóði þjóðarinnar,“ segir í ályktuninni.

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs haldinn 24.-25. febrúar ályktar að hætt verði að úthluta byggðakvóta endurgjaldslaust. Sett verði á sanngjarnt arðgjald sem renni til þeirra sveitarfélaga sem byggðakvóta er úthlutað til, að því er segir í ályktun um byggðakvóta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert