Landlæknir varar við gylliboðum

Enn þann dag í dag er til ógrynni sölumanna sem lofa fólki betri heilsu og ... stækka

Enn þann dag í dag er til ógrynni sölumanna sem lofa fólki betri heilsu og vellíðan. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Landlæknir hvetur fólk til þess að vera gagnrýnið á auglýsingar um alls konar gylliboð þar sem boðið er upp á töfralausnir sem eiga að lagfæra það sem hrjáir landsmenn.

„Frá örófi alda hafa komið fram töfralausnir sem eiga að lagfæra það sem hrjáir okkur mannfólkið. Fæstar af þeim hafa nokkur áhrif umfram þau sem trúin gefur okkur á lækningamáttinn. Oft létta þær eingöngu pyngju þess sem keypti.

Enn þann dag í dag er til ógrynni sölumanna sem lofa fólki betri heilsu og vellíðan. Tilboðin eru margvísleg en byggja á misjafnlega vel staðfestum rannsóknum. Okkur standa til dæmis til boða tilteknar rannsóknir á blóði eða öðru sem eiga að greina öll okkar vandamál með skjótum hætti. Í kjölfarið fylgja boð um ráðgjöf, meðferð og leiðir til að losna við sjúkdóma og annað fár.

Fæst af því sem falboðið er á þennan hátt byggist á rannsóknum sem hafa verið staðfestar með vísindalegum hætti. Landlæknisembættið hefur ítrekað hvatt fólk til að vera gagnrýnið á auglýsingar um tilboð af þessum toga.

Einnig er nauðsynlegt að vera á varðbergi þegar lofað er bata, sér í lagi ef hann á að ná til margs konar kvilla og sjúkdóma. Það er beinlínis lögbrot að þykjast stunda lækningar eða aðra heilbrigðisþjónustu án þess að hafa til þess fullgild réttindi.

Höfum í huga að ef eitthvað er of gott til að vera satt þá er það oftast ekki satt,“ segir á vef Landlæknisembættisins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Guðni Páll réri frá Bolungarvík í dag

Guðni Páll leggur af stað frá Bolungarvík í dag.
Í gær, 23:21 Guðni Páll Viktorsson, sem er þessa stundina á hringferð í kringum landið á kajak, lagði af stað frá Bolungarvík í dag. Hann stefndi að því að gista í Látrum í Aðalvík í nótt áður en hann heldur áfram á föstudaginn yfir í Hornvík, ef veður leyfir. Þar mun hann hvílast og safna kröftum áður en hann rær fyrir Hornbjarg, en sá kafli leiðarinnar er nokkuð erfiður. Meira »

Útkall vegna örbylgjupopps

Í gær, 22:01 Tilkynnt var um reykjarlykt í Menntaskólanum við Hamrahlíð upp úr klukkan átta í kvöld auk þess sem brunavarnakerfi skólans fór í gang. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang reyndist hins vegar talsvert minni hætta á ferðum en óttast var. Meira »

Sundlaug og skóli í Úlfarsárdal

Frá Úlfarsárdal.
Í gær, 22:01 Í hönnunarsamkeppni sem samþykkt var á síðasta fundi borgarráðs er gert ráð fyrir nýjum leik- og grunnskóla, sundlaug og íþróttahúsi fyrir Grafarholt og Úlfarsárdal. Gert er ráð fyrir sundlaug með útisvæði og heitum pottum opnum almenningi og jafnframt lítilli innilaug. Meira »

Viðtal við meintan barnaníðing

Sölvi Tryggvaon þáttastjórnandi Málsins á Skjá einum undirbýr næstu þætti og vill gjarnan fá góðar ...
Í gær, 21:39 „Oft koma bestu sögurnar ekki þegar maður leitar að þeim sjálfur heldur þegar einhver kemur með þær til manns,“ Sölvi Tryggvason, þáttastjórnandi Málsins. Fyrsti þáttur Málsins um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum er orðinn aðgengilegur á netinu, þátturinn var sýndur á Skjá einum í vetur. Meira »

Kann að kosta Ísland þúsund störf

Í gær, 19:34 Þýska Bertelsmann-stofnunin telur að náist fríverslunarsamningar á milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna kunni það að leiða til fjölda nýrra starfa í ríkjum sambandsins og Bandaríkjanna sem og launahækkunar. Meira »

Veikar reglur og spillt stjórnvöld

David. O. Friedrich
Í gær, 18:09 „Íslendingar eru líkast til móttækilegastir allra þjóða fyrir þeirri fullyrðingu að eina birtingarmynd skipulagðrar glæpastarfsemi megi finna í bönkum,“ sagði David O. Friedrichs, prófessor í félags- og afbrotafræði við Scranton-háskóla í Pennsylvaníu, á hádegisfyrirlestri í Háskóla Íslands í dag. Meira »

160 taktmælar komnir í hús myndskeið

midsummer
Í gær, 20:15 „Við erum eiginlega komin í hálfgerð vandræði,“ segir Víkingur Heiðar Ólafsson, listrænn stjórnandi Reykjavík Midsummer Music, sem hefst á morgun. Hann óskaði eftir að fá 100 gamaldags taktmæla lánaða hjá þjóðinni, viðbrögðin voru slík að um 160 slíkir höfðu skilað sér í hús um hádegisbil í dag. Meira »

Margir syntu Fossvogssund

Lagt af stað yfir voginn.
Í gær, 18:33 Hið árlega Fossvogssund fór fram í golu og lítilsháttar rigningu í dag. Synt var frá Nauthólsvík og yfir voginn til Kópavogs. Sjósunds- og sjóbaðsfélag Reykjavíkur stóð fyrir sundinu fjórða árið í röð, en sjósund er að sögn Ragnheiðar Valgarðsdóttur, formanns félagsins, gott fyrir líkama og sál. Meira »

„Ekki seinna vænna eftir 30 ár“

Skjáskot af vef Alþingis.
Í gær, 17:24 „Ég hef bara gaman af því að spreyta mig á þessu. Það voru nú einhverjir að segja að það væri ekki seinna vænna eftir 30 ár á þingi að setjast í forsetastól. Þannig að ég hef bara gaman af því eins og öllu öðru. Þetta er enn eitt hlutverkið sem ég hef þá prófað hér á langri þingsetu.“ Meira »

Fyrsta langreyðurin komin til hafnar

Kristján Loftsson,framkvæmdastjóri Hvals hf., ásamt langreyðinni sem var veidd vestur af landinu í gær.
Í gær, 16:17 „Hann lítur bara vel út,“ sagði Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf., en hvalveiðiskipið Hvalur 8 lagðist að bryggju við Hvalstöðina í Hvalfirðinum um fjögur í dag með fyrsta stórhvalinn sem veiddur var á þessari vertíð. Langreyðurin var 63 feta tarfur og var veidd vestur af landinu í gær Meira »

Caritas samþykkt en Lady hafnað

Í gær, 16:12 Mannanafnanefnd hefur samþykkt níu nöfn í tveimur úrskurðum sem voru kveðnir upp dagana 6. júní og 16. maí sl., m.a. eiginnöfnin Caritas, Addú og Þollý og millinafnið Logn. Eina nafnið sem nefndin hafnar að þessu sinni er eiginnafnið Lady. Meira »

Ferð Herjólfs fellur niður

Í gær, 16:12 Vegna ölduhæðar (2,8 m) í Landeyjahöfn fellur næsta ferð Herjólfs niður frá Vestmannaeyjum kl. 17:30 og frá Landeyjahöfn kl. 19:00. Meira »

Sigmundur fundar með Reinfeldt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Í gær, 15:46 Forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, á fund með Frederik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, á morgun, 19. júní. Meira »

Velferðin grundvallast á hagvexti

Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra.
Í gær, 15:38 Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag að fyrst og fremst þyrfti ný störf til að skapa hagvöxt til að loka fjárlagagatinu. Þetta sagði Bjarni við fyrirspurn Árna Páls Árnasonar, formanns Samfylkingarinnar. Meira »

Sjö knapar komnir í landsliðið

Eyjólfur Þorsteinsson, Rúna Einarsdóttir, Hafliði Halldórsson, Jakob S. Sigurðsson, Viðar Ingólfsson, Hinrik Bragason, Teitur Árnason, ...
Í gær, 15:28 Sjö knapar tryggðu sér þátttökurétt á Heimsleikum íslenska hestsins í Berlín í ágúst á úrtökumóti sem lauk um helgina. Mótið gekk vel eftir að því var frestað og flutt á annan völl. Liðið er ekki fullskipað og á enn eftir að velja tvö ungmenni og þrjá fullorðna. Meira »

Hundar notaðir í lestrarþjálfun barna

Í gær, 15:41 Samtökin Vigdís – Vinir gæludýra á Íslandi verða stofnuð á morgun og er fyrsta verkefni þeirra að koma á fót hér á landi lestrarverkefni þar sem hundar eru í aðalhlutverki. Meira »

Gatnamót Sæbrautar-Holtavegs lokuð

Í gær, 15:37 Í kvöld er stefnt að því að malbika gatnamót Sæbrautar-Holtavegs og Sæbraut til suðurs. Vinnan hefst rétt norðan við gatnamót Sægarða og Sæbrautar og endar við gatnamót Sæbrautar og Holtavegs. Meira »

Lögreglan óskar upplýsinga um ökumenn

Í gær, 15:21 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af ökumanni jeppabifreiðar með eftirvagn sem hugðist hleypa fólki á hestum yfir Vatnsendaveg fimmtudaginn 13. júní er annarri grárri fólksbifreið var ekið fram úr jeppanum við gangbraut til móts við hesthúsahverfið. Meira »
Æfingabekkur
Æfingabekkur til sölu. Upplýsingar í síma : 8935005...
!!! VANTAR ÓDÝRAN BÍL !!!
!!! VANTAR ÓDÝRAN BÍL !!! Fyrir 50- 250 þ. staðgreitt, árgerð '98-'04. Má alveg...
Jeppadekk 33" R17
Til sölu notuð Dick CEPEK F-C II 33*12,5 R17 LT. Mynsturdýpt er um 5mm. Upplýs...
Ýmislegt í sumarbústaðinn
Til sölu, gas helluborð 3-ja hellu kr. 30.000,- 80w sólarsella með stýringu ofl....
 
Deildarstjóri óskast
Stjórnunarstörf
Reykjavíkurborg Umverfis- og skipulagss...
Special sykepleier - operasjon - skurðhjúkrunarfræðingar
Heilbrigðisþjónusta
Helse Møre og Romsdal HF er eit helsefør...
Útboð bol 03

Útboð BOL-03 Varaaflstöð í Bolungar...
Upplýsingafulltrúi
Augl-/almannatengsl
Upplýsingafulltrúi Helstu verkefni:...