Forsetinn gefur sér nokkra daga

Ólafur Ragnar Grímsson
Ólafur Ragnar Grímsson mbl.is/Golli

„Þess vegna tel ég að ég hljóti fljótlega, síðar í þessari viku eða snemma í næstu viku, [að tilkynna] hvort ég held mig við fyrri ákvörðun í virðingarskyni við Dorrit eða svara því kalli og þeirri áskorun sem mér var afhent í dag. Það er ekki létt uppgjör,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson fyrir stundu... Hann „hefði satt að segja óskað að [hann] og þjóðin þyrftum ekki í lok febrúar að vera í þessum sporum“.

„Við erum nú hins vegar í þeim sporum og það er minn vandi ... að margir eru ekki tilbúnir til að fallast á þá niðurstöðu,“ sagði forsetinn og nefndi einnig niðurstöður skoðanakannana að undanförnu. Honum hefði hvorki gefist tími né tóm til að íhuga hvort hann ætti að verða við vilja aðstandenda undirskriftasöfnunarinnar.

Fjölmiðlar ættu sinn þátt í að búa til umræðu um hvort forsetinn hefði gefið til kynna að hann skildi eftir glufu til endurkjörs. Það hefði verið einkennilega krafa af hálfu RÚV að fara fram á að forsetinn brygðist við áliti álitsgjafa á nýársávarpinu í þessu efni.

Vangaveltur fjölmiðla

„Ég hef hins vegar orðið var við það að einhverjir eru að spekúlera ... að ég hafi ekki meint það sem ég var að segja og hafi verið að bíða eftir áskorunum,“ sagði forsetinn og ítrekaði að hann hefði verið einlægur í nýársávarpinu. „Það er nú þannig að þó að fjölmiðlar séu mikilvægir í lýðræðisríki ... er ekki allt rétt sem þeir segja,“ sagði forsetinn er hann var spurður hvers vegna hann hefði ekki svarað fyrirspurnum RÚV þegar í janúarbyrjun.

„Það er satt að segja staða, kæru vinir, sem ég hvorki bjóst við né hefði óskað mér,“ sagði forsetinn og útskýrði hvernig fjölskylda hans stæði nú frammi fyrir þeirri óvæntu spurningu hvort forsetinn ætti að halda áfram eður ei.

Tvíþætt trúnaðarsamband

„Á vissan hátt er ég þeirrar skoðunar að ... hafi menn hlotið slíkt traust frá fólkinu í landinu að þá verði menn að átta sig á því að það trúnaðarsamband er tvíþætt,“ sagði forsetinn og átti við samband forseta við þjóðina og öfugt.

„Mitt svar er að ef ég á að gefa kost á mér felur það í sér breytingu á þeim áformum... það er ekki auðveld ákvörðun,“ sagði forsetinn og tók fram að hann hefði vonast til að þunginn í þessari kröfu myndi fjara út þegar hann kæmi til baka frá Suðurskautslandinu.

„Menn eru ekki lengur herrar yfir sínum tíma,“ sagði forsetinn um þær ríku skyldur sem embættið leggur á forsetann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert