Sýni samstöðu með venjulegu fólki

Lilja Mósesdóttir alþingismaður. stækka

Lilja Mósesdóttir alþingismaður. mbl.is/Ómar Óskarsson

Þingmenn ræddu um innheimtuaðgerðir lánastofnana í dag og sögðu að þær bentu helst til þess að engir dómar hefðu fallið um gengistryggð lán. Efnahags- og viðskiptanefnd fundar með fjármálastofnunum og Fjármálaeftirlitinu vegna þessa í dag. Lilja Mósesdóttir sagði að tími væri til kominn að Alþingi sýndi samstöðu með venjulegu fólki.

Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, sagði í umræðum um störf þingsins á Alþingi í dag að mikilvægt væri að sýslumannsembætti um allt land tryggðu að allir byggju við sama réttaröryggi hvað gengistryggð lán snerti.

Helgi sagði áhöld um þær aðferðir sem notaðar hefðu verið við innheimtu og mikilvægt væri í þessu sambandi að skoða hvort verið væri að fara á svig við lög í þessum efnum. 

Efnahags- og viðskiptanefnd mun síðar í dag funda um þetta efni með Fjármálaeftirlitinu og fjármálastofnunum.

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins,  sem sæti á í nefndinni segir að sér virðist sem fjármálafyrirtækin sendi út greiðsluseðla sína eins og enginn dómur hafi fallið um ólögmælti gengistryggðra lána.

„Því verður ekki trúað að fjármálafyrirtæki láti eins og enginn dómur hafi fallið. Ég trúði því ekki að þetta væri staðan,“ sagði Guðlaugur Þór og sagðist vona að fundurinn í dag yrði til þess að einhver breyting yrði á.

Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingar, tók einnig þátt í umræðunni og sagði að á meðan verið væri er að skera úr um hvaða fordæmisgildi þessi dómur hefði væri það hlutverk Alþingis að koma í veg fyrir að harkalegum innheimtuaðgerðum væri beitt og að  Alþingi bæri að standa vörð um lántakendur.

„Ég óttast að upp úr sjóði um mánaðamótin þegar þeir sem tóku gengistryggð lán fá greiðsluseðla eins og enginn dómur hafi fallið,“ sagði Lilja Mósesdóttir alþingismaður. Hún sagðist hafa heyrt það frá lántakendum að bankar neituðu  að afhenda skjöl „sem sýna fólki hvað það á inni hjá bankanum“.

„Við getum ekki beðið hér eftir því að málið leysist af sjálfu sér,“ sagði Lilja. Hún sagði að Alþingi yrði að hafa milligöngu hjá lántakendum og lánveitendum að finna lausn á málinu og að hraða þyrfti vinnslu frumvarpa sem heimila fólki að skila inn lyklum að húsum sínum. „Sýnum samstöðu með venjulegu fólki í landinu,“ sagði Lilja.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Lögreglan við eftirlit.

Fimm teknir fyrir of hraðan akstur við Borgarnes

Í gær, 23:30 Fimm voru teknir fyrir að aka of greitt í grennd við Borgarnes í dag. Að öðru leyti virðist þessi fyrsta ferðahelgi sumarsins hafa gengið vel í umferðinni víðast hvar um landið. Meira »
Kirkjugestir voru teknir til altaris.

Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu

Í gær, 21:56 Það var talsvert annað yfirbragð yfir messu í Digraneskirkju í kvöld en venjulega, en þar fór fram svokölluð mótorhjólamessa. Í kirkjunni voru leðurklæddir mótorhjólamenn og utan við kirkjuna var röð glæsilegra mótorhjóla. Meira »

Eldhúsdagsumræðu á Alþingi

Í gær, 21:07 Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi annað kvöld. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að fresta fundum Alþingis á fimmtudag, en talið er ólíklegt að sú áætlun standist. Meira »

Konan fannst látin

Í gær, 19:11 Lettneska konan sem leitað hefur verið að við Meðalfellsvatn fannst látin síðdegis í dag. Hennar hafði verið saknað frá 13. maí. Flest bendir til að talsvert sé síðan hún lést. Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
Í gær, 18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Hrapaði ofan í gil

Slysið varð skammt frá Seljalandsfossi.
Í gær, 19:31 Bresk kona stórslasaðist þegar hún hrapaði ofan í gil stutt frá tjaldstæðinu við Hamragarða, skammt innan við Seljalandsfoss við Þórsmerkurveg. Meira »

Sé ekki í samkeppni við þingið

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
Í gær, 18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem sé að vera sameiningarafl. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
Í gær, 18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

Í gær, 17:46 Bifreið skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

Í gær, 17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

Í gær, 17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

Í gær, 16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
Í gær, 15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
Í gær, 14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
Í gær, 13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
Í gær, 14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er um að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
Í gær, 14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

Í gær, 12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HONDA CR-V STW 4WD
Honda cr-w 1998. Ekinn 222 þús.sjálfskiptur. Dráttarkúla.Topplúga. Nýr geymir. N...
Ónotaðir þakbogar á Honda CRV 2007 til 2012
Er með ónotaða þakboga frá umboðinu fyrir Honda CRV árgerð 2007 til 2012. Fást á...
Lenovo spjaldtölva "7 skjár - ný
Til sölu Lenovo spjaldtölva með 7"skjá, 512 MB minni, 16GB disks og Android stýr...
Toyota Land Crusier 2008
Toyota Land Crusier 120 GX. Sjsk. Diesel. Ekinn 67.000, 2008 árgerð. Ásett ve...
 
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
15096 nátthagi 9 ríkiskaup
Til sölu
Tilboð óskast í f...
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...