Segir stöðu Stapa þokkalega sterka

Fundur um málefni lífeyrissjóðsins Stapa var vel sóttur á Húsavík.
Fundur um málefni lífeyrissjóðsins Stapa var vel sóttur á Húsavík.

„Staða Stapa er þokkalega sterk,“ sagði Kári Arnór Kárason, framkvæmdastjóri Stapa, lífeyrissjóðs, á fundi á Húsavík í gær um lífeyrismál. Stjórn Stapa lífeyrissjóðs hefur samþykkt að boða til nokkurra sjóðfélagafunda í samstarfi við stéttarfélögin á næstu dögum. Tilefni fundanna er nýleg skýrsla um úttekt á fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008. Fyrsti fundurinn var haldinn á Húsavík í gær. Salur Framsýnar var þéttsetinn, þannig að greinilegt er að staðan er ofarlega í hugum margra, segir í tilkynningu frá stéttarfélaginu Framsýn.

Kári Arnór sagði að Stapa þætti skýrsla rannsóknarnefndarinnar ekki gefa rétta mynd af því hvernig lífeyrissjóðirnir komu út úr hruninu, of mikil áhersla væri lögð á það sem farið hefði úrskeiðis.

„Lífeyrissjóðirnir urðu vissulega fyrir miklu höggi í kjölfar bankahrunsins, þar með talinn Stapi,“ sagði Kári Arnór.

Hann sagði að lesa mætti út úr skýrslunni að lífeyrissjóðirnir væru nánast horfnir, sem væri fjarri lagi.

„Við höfum ekki náð að ávaxta sjóðinn nógu vel til að standa að fullu undir lífeyrisréttindum, sem eru verðtryggð auk 3,5% vaxta. Samt sem áður bendi ég á að lífeyrisgreiðslur hafa hækkað meira en laun flestra launþega. Lífeyrir hefur hækkað um 28 % frá hruni. Staða Stapa er þokkalega sterk og ég er bjartsýnn á að við séum langt komin með að jafna okkur eftir hrunið. Framtíðin er hins vegar óljós og verður alltaf.“ 

Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar, segir að fundurinn hafi verið gagnlegur.

„Staðan var skýrð út á mannamáli og hinum almenna sjóðsfélaga gafst kostur á að tala milliliðalaust við stjórnendur sjóðsins og segja sína skoðun. Að mínu viti hefur umræðan um lífeyrissjóðina verið á margan hátt ósanngjörn, hitt er svo annað mál að ýmislegt má bæta í kerfi íslenskra lífeyrissjóða og mér sýnist að sjóðirnir séu í gagngerri naflaskoðun.“

Aðalsteinn segir að fyrir hrun hafi útrásarvíkingarnir haldið úti svikamyllu í fjármálakerfinu.

„Leikrit voru sett á svið og markaðurinn blekktur fram og til baka. Lífeyrissjóðirnir bitu á agnið eins og aðrir fjárfestar, vissu ekki annað en að þeir væru að gera rétt. Það er auðvelt að gagnrýna þessa hluti í dag, en fyrst og fremst þurfum við að læra af því sem aflaga fór í samfélaginu og byggja okkur upp á nýjan leik.“

Á fundinum í gær urðu mjög líflegar umræður um stöðu Stapa, starfsemi sjóðsins og framtíðar fyrirkomulag varðandi stjórnun sjóðsins. Hópur fundarmanna tók til máls og spurði forsvarsmenn út í málin enda liggja þau þungt á sjóðsfélögum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert