Vill fara yfir stöðu FME

Birkir Jón Jónsson.
Birkir Jón Jónsson.

Birkir Jón Jónsson, þingmaður og fulltrúi Framsóknarflokksins í efnahags- og viðskiptanefnd,  hefur óskað eftir fundi í efnahags- og viðskiptanefnd til að fara yfir stöðu Fjármálaeftirlitsins (FME).

Birkir óskar ennfremur eftir því að stjórn FME mæti á fund nefndarinnar og geri grein fyrir stöðu mála í kjölfar uppsagnar forstjóra stofnunarinnar. Hann segir brýnt að þessi fundur fari fram hið fyrsta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert