Ekkert áfall, segir Bjarni

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson. Árni Sæberg

Bjarni Benediktsson segir að frávísun Alþingis á tillögu hans um að draga til baka ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, til Landsdóms, hafi ekki verið honum neitt áfall. Hann segir augljóst að ekki sé skýr meirihluti á þingi fyrir því að telja Geir eiga að fara fyrir Landsdóm. 

„En ég horfi þannig á þetta mál að það hafi verið nauðsyn að koma með þessa tillögu,“ sagði Bjarni í þætti Sigurjóns M. Egilssonar, Sprengisandi og sagði að þeir sem stóðu fyrir því að vísa tillögu hans frá hefðu ekki lagt í efnislega umræðu um málið.

Bjarni sagðist aðspurður ekki hafa fundið fyrir þunga innan flokksins um að hann ætti að halda því til streitu að halda Geir frá Landsdómi. „Það var ekki þannig, en það tókst þverpólitísk samstaða á Alþingi um að opna þetta mál.“

Bannað að ræða málið

Bjarni sagði í þætti Sigurjóns að þegar málið var kynnt í öðrum þingflokkum hafi viðkomandi þingmönnum verið bannað að taka þátt í umræðu um það og nefndi í því sambandi Samfylkinguna.

Hann sagði að það væri af og frá að tillagan hefði verið sett fram í þeim tilgangi að koma höggi á ríkisstjórnina. „Menn gátu ekki haldið áfram með þessa vitleysu, það verður að taka málið alvarlega.“

Bjarni segir málið allt hafa haft mikil áhrif á pólitískt samstarf á þingi og sagði reynda þingmenn hafa af því áhyggjur. „Reyndir þingmenn kannast ekki við andrúmsloftið eins og það er núna,“ sagði Bjarni og sagði að ástandinu á vinstri vængnum væri best lýst með upplausn, stressi og óþoli.

Stjórnast ekki af skoðanakönnunum

Samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup er Sjálfstæðisflokkurinn stærri en báðir stjórnarflokkarnir samanlagt og mælist með 33,3%, Bjarni sagðist vissulega vera ánægður með niðurstöðuna, en sagðist ekki láta stjórnast af skoðanakönnunum. „Ég hef augun á málefnunum. En Sjálfstæðisflokkurinn stendur sem skýr valkostur gagnvart þessum glundroða.“

Spurður um gjaldmiðlamál Íslendinga sagði Bjarni að vissulega væri hann til í að taka þátt í þeirri umræðu sem verið hefur í gangi að undanförnu. En sagði fá rök hníga að því að skipta um gjaldmiðil. „Ef við nálgumst þetta út frá lífskjörunum, við höfum byggt upp jafnt og þétt ótrúleg lífskjör og höfum verið öfunduð af öðrum þjóðum,“ sagði Bjarni.

„Þegar áföll hafa orðið í náttúrunni, þegar markaðir hafa dregist saman, þá hefur gjaldmiðillinn veitt okkur nauðsynlegan stöðugleika.“

Þurfum að ljúka uppgjöri

Spurður að því hvort staðan gæti ekki verið betri ef við værum með annan og stöðugri gjaldmiðil sagði Bjarni að hugsanlega myndum við þá kaupa okkur aga í ríkisfjármálum. „En ég tel að of miklu sé fórnað til að sækjast eftir þessum utanaðkomandi aga,“ sagði Bjarni og sagðist telja nærtækara að langtímamarkmið í ríkisfjármálum yrðu bundin í stjórnarskrá. Hann sagði að til þess að eiga einhverja valkosti, væri nauðsynlegt að ná þessu markmiði fyrst.

Bjarni sagðist finna fyrir „gríðarlega mikilli þreytu“ hjá fólki um allt land, fólk væri þreytt á hrunsumræðunni og að nauðsynlegt væri að komast út úr þessari umræðu, þannig að hægt væri að byggja upp að nýju. „Við eigum sameiginlega hagsmuni af því að ljúka þessum uppgjörsmálum og komast inn í nýja framtíð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert