Greiðsla Icesave forsenda ESB-aðildar

Breski Evrópuþingmaðurinn Marina Yannakoudakis segir það „óyfirstíganlega hindrun“ í vegi þess að Ísland geti gengið í Evrópusambandið að Íslendingar hafi ekki greitt Bretum vegna Icesave-innistæðureikninganna. Þetta kemur fram í grein eftir þingmanninn sem birtist í dag á vefnum Public Service Europe.

Yannakoudakis, sem situr á Evrópuþinginu fyrir breska Íhaldsflokkinn, segir David Cameron, forsætisráðherra Bretlands og leiðtoga flokksins, vera sammála þessari afstöðu sinni og vitnar í þau orð hans að nota ætti aðildarviðræður ESB við Ísland til þess að tryggja að Íslendingar greiddu fyrir Icesave.

„Það að nota stækkunarviðræðurnar [við íslensk stjórnvöld] er núna besta leiðin til þess að tryggja endurgreiðslur frá Íslandi. Og, þegar allt kemur til alls, vill ESB virkilega nýjan meðlim sem stendur ekki við alþjóðlegar skuldbindingar sínar?“ spyr Yannakoudakis.

Hún segist af þessum ástæðum hafa greitt atkvæði gegn ályktun sem samþykkt var á Evrópuþinginu í dag þar sem lýst er yfir stuðningi við aðild Íslands að ESB og sagt að Icesave-deilan megi ekki koma í veg fyrir aðild Íslands að sambandinu.

Í ályktuninni kemur þess utan einnig fram að mjög skiptar skoðanir séu um aðild að Evrópusambandinu á Íslandi en Evrópuþingið voni að landið muni ganga í sambandið. Þá sé þingið ánægt með árangur Íslands við að uppfylla staðla Evrópusambandsins.

Hins vegar deili Ísland og ESB enn um makrílveiðarnar og auk þess hvalveiðar en þær síðarnefndu séu bannaðar innan sambandsins.

Þess má geta að áður en Ísland getur orðið aðili að ESB þurfa öll ríki sambandsins að samþykkja aðildina og þar á meðal Bretar.

Grein Marina Yannakoudakis

Fréttatilkynning frá Evrópuþinginu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert