Grét þegar hún sá myndbandið

Greta Salóme Stefánsdóttir var svo ánægð með myndbandið við Never Forget að hún grét þegar hún sá það í fyrsta skipti í heild sinni. Þau Jónsi undirbúa sig nú af kappi fyrir lokakeppnina í Aserbaídsjan sem haldin verður í maí. Þau eru afar ánægð með enska textann sem þau segja að henti laginu betur. MBL Sjónvarp var á staðnum þegar ný útsetning og myndbandið voru kynnt fyrr í dag.

Hér er hægt að sjá myndbandið sem leikstýrt er af Hannesi Þór Halldórssyni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert