Vinsæl rúða til að brjóta

Ólafur G. Jósefsson, eigandi GÞ skartgripir og úr, segir rúðuna sem sprengd var í morgun vera þá vinsælustu á landinu. Í fyrra var hún til að mynda brotin í þrígang. Þótt þjófarnir hafi ekki náð neinum skartgripum í tilrauninni er ljóst að tjónið nemur hundruðum þúsunda vegna skemmda af völdum glersins.

Þjófarnir tveir náðust á mynd og annar var í rauðri hettuúlpu. En sprengjan var sprengd með kveikiþræði sem þeir sáust kveikja á.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert