Annríki hjá björgunarsveitum

mbl.is/Ernir

Vélsleðamaður fór niður um ís á Svínavatni á Húnavöllum á fjórða tímanum í dag. Björgunarsveitirnar Blanda á Blönduósi og Strönd á Skagaströnd voru kallaðar út á F1-Rauðum þar sem óttast var að maðurinn myndi kólna hratt niður í vatninu. Þó fór betur en á horfðist og náði maðurinn í land og voru björgunarsveitirnar afturkallaðar um 15 mínútum síðar. Þær fóru þó á staðinn til að reyna að ná sleðanum upp úr vatninu.

Annar vélsleðamaður lenti í slysi í dag. Flugbjörgunarsveitin á Hellu var kölluð út í morgun til að sækja vélsleðamann sem meiðst hafði á baki við Hrauneyjalón. Maðurinn var fluttur af slysstað til móts við sjúkrabíl sem beið við Hrauneyjar.

Þá hafa björgunarsveitir einnig verið kallaðar út í dag til aðstoðar ferðamanna á biluðum og föstum bílum. Sækja þurfti fólk við Langjökul þar sem bíll þess hafði bilað og rétt í þessu var verið að kalla út björgunarsveit til aðstoðar vegna bíls sem fastur er við Hverfjall, samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert