Lést í umferðarslysi

Knútur Trausti Hjálmarsson.
Knútur Trausti Hjálmarsson.

Ungi maðurinn sem lést í umferðarslysi á Hrútafjarðarhálsi í gærdag hét Knútur Trausti Hjálmarsson.

Knútur fæddist 19. febrúar 1988 og var búsettur í Reykjavík. Hann var ókvæntur og barnlaus.

Bifreið sem Knútur ók valt síðdegis á Hrútafjarðarhálsi í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi kastaðist hann út úr bílnum í slysinu.

Aðstæður voru góðar þegar slysið átti sér stað, vegurinn auður og akstursskilyrði góð að sögn lögreglu. Er þetta fyrsta banaslysið í umferðinni í ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert