Brotist inn á Bíldshöfða

Mynd úr safni
Mynd úr safni mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Tilkynnt var um innbrot í verkstæði við Bíldshöfða til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um níuleytið í gærkvöldi. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur þjófurinn brotið rúðu í útihurð til að komast inn.  Öryggiskerfið fór hins vegar í gang og er ekki vitað hvort einhverju var stolið.

Um tíuleytið í gærkvöldi var maður handtekinn á heimili sínu í Árbænum vegna fíkniefna sem þar fundust. Er hann vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins. 

Eins og venjulega um helgar var mikið um útköll hjá lögreglu vegna samkvæmishávaða og mála sem tengjast ölvun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert