Hver verða áhrifin á bankana?

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Ómar Óskarsson

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fer fram á fund í efnahags- og viðskiptanefnd til að ræða áhrif sjávarútvegsfrumvarpana á bankanna. Tilgangur fundarins er að upplýsa hvaða áhrif frumvörpin hafi á bankana og þar af leiðandi ríkissjóð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Guðlaugi Þór.

Þar segir að til fundarins verði boðaðir fulltrúar bankanna,  Bankasýslunnar og ráðuneytisins.

„Mikilvægt er að upplýsa hvaða áhrif frumvörpin muni hafa á bankana og þar af leiðandi ríkissjóð. Fram hefur komið að í samningum kröfuhafa og ríkisstjórnarinnar  við stofnun nýju bankanna beri ríkissjóður ábyrgð á þeim stjórnvaldsaðgerðum sem skaða efnahag bankanna. Í umræðum í þinginu hefur ráðherra upplýst að ekki hafa verið skoðuð áhrif frumvarpanna á efnahag bankanna,“ segir í yfirlýsingunni. „Það þarf ekki að fjölyrða um mikilvægi málsins.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert