Hitamet sett á Kvískerjum

Hálfdán Björnsson, bóndi á Kvískerjum.
Hálfdán Björnsson, bóndi á Kvískerjum. mbl.is/RAX

Hálfdán Björnsson, bóndi á Kvískerjum í Öræfum, man ekki eftir jafn miklum hlýindum í mars og voru þar í gær. „Það vantar bara mikið á að það hafi verið svo hlýtt áður,“ sagði Hálfdán.

Vel bjart var í gær í Öræfum og vestlæg átt. Hálfdán átti von á að hlýindin héldust ef ekki kæmi norðanátt.

Hiti mældist í gær 19,6°C á sjálfvirkri mælistöð Vegagerðarinnar við Kvísker í Öræfum og 18,6°C á sjálfvirkri stöð Veðurstofunnar á Kvískerjum. Það bendir því allt til þess að þetta sé nýtt hitamet í mars hér á landi. Fyrra met var 18,3°C sem mældist á kvikasilfursmæli á mannaðri stöð á Sandi í Aðaldal 27. mars 1948. Þá mældist 18,8°C hiti á sjálfvirkri stöð á Eskifirði 28. mars árið 2000, að sögn Sigurðar Þórs Guðjónssonar veðuráhugamanns.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert