Kom blóðug inn á lögreglustöð

Konan kom inn á lögreglustöðina á Hverfisgötu í nótt.
Konan kom inn á lögreglustöðina á Hverfisgötu í nótt. mbl.is

Í nótt kom erlend kona á lögreglustöðina við Hverfisgötu og tilkynnti að á hana hefði verið ráðist á heimili hennar í vesturborginni. Konan, sem var nokkuð blóðug, sagðist hafa kynnst manni á Facebook og hann komið heim til hennar.

Að sögn konunnar réðst maðurinn á hana eftir stuttar samræður og gekk í skrokk á henni. Hann stal síðan farsíma konunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert