Öskjuvatn séð utan úr geimnum

Í mars kom í ljós að Öskjuvatn var orðið íslaust, sem þykir óvanalegt og gerist alla jafnan ekki fyrr en í lok júní eða byrjun júlí, líkt og sagt var frá á mbl.is í gærkvöldi.

Á vef Veðurstofu Íslands er að finna gervitunglamynd frá NASA sem tekin var í gær og sker Öskjuvatn sig úr á miðri mynd enda íslaust óvenju snemma.

Óvenjuhlýtt var á landinu í mars, en önnur vötn á hálendinu, t.d. Hágöngulón, svo og Mývatn, eru ekki orðin íslaus þrátt fyrir það, segir á vef Veðurstofu Íslands.

Vegna þessa þótti ástæða til að kanna Öskjuvatnið nánar og í gær, 2. apríl, var farið í könnunarflug með vél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF,  en hún er m.a. útbúin hitamyndavél. Þar kom í ljós að Öskjuvatnið er alveg íslaust og engin fljótandi ís á því.

Þekktu jarðhitasvæðin þrjú á svæðinu voru vel virk en engin auðsjáanleg merki nýs yfirborðshita var sjáanlegur.  Stóra askjan var undir snjóþekju og engin bræðsla var sjáanleg.

Nú er verið að taka ákvörðun um frekari aðgerðir, sem miða að aukinni vöktun á svæðinu til að fylgjast náið með framvindu mála, segir í frétt á vef Veðurstofunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert