Drykkfelldur ferðalangur

stækka

mbl.is

Lögreglunni á Suðurnesjum var í vikunni tilkynnt um mjög ölvaðan erlendan ferðalang á hóteli í umdæminu. Hann var sagður hafa tæmt minibarinn þar en ekki átt peninga til að borga. Maðurinn var fluttur á lögreglustöð, að eigin beiðni, þar sem hann fékk að sofa úr sér.

Tveimur dögum síðar, í fyrradag, var svo lögreglunni tilkynnt um gest á öðru hóteli, sem væri þar ofurölvi eftir að hafa drukkið mikið á barnum án þess að geta borgað. Þegar lögreglumenn komu á staðinn reyndist vera um að ræða sama mann og tæmt hafði minibarinn á fyrra hótelinu. Hann var aftur  fluttur í klefa og látinn sofa úr sér. Um miðjan dag í gær var lögreglu svo tilkynnt um ofurölvi mann sem væri að borða súkkulaði af afgreiðsluborði á veitingasölu í umdæminu. Enn reyndist þar vera hinn erlendi ferðamaður á ferðinni og í þriðja sinn fékk hann að gista fangaklefa. Maðurinn var sendur úr landi á eigin vegum síðdegis í dag.

Suðandi rakvél í farangri  

Þá óskaði starfsmaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vikunni eftir aðstoð lögreglunnar á Suðurnesjum vegna ókennilegs hljóðs úr farangurstösku sem verið var að hlaða um borð í farþegavél er var á leiðinni til New York. Lögreglumaður mætti á staðinn ásamt öryggisverði og var eigandi töskunnar kallaður til.  Þegar skyggnst var í töskuna kom í ljós að suðið kom frá rakvél sem í henni var. Eftir þessa niðurstöðu var taskan sett um borð í vélina.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Sáttaumræður í fjárlaganefnd

Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar.
13:19 Fundur fór fram í fjárlaganefnd í morgun þar sem samskipti nefndarinnar við Ríkisendurskoðun á síðasta þingi voru ofarlega á baugi. Að sögn Vigdísar Hauksdóttur, formanns fjárlaganefndar, taldi hún þörf á formlegri sáttaumræðu eftir erfitt samstarfs síðasta þings. Meira »

Ódýrara að nota farsímann innan Evrópu

13:12 1. júlí lækkar verð á notkun farsíma/netlykla milli landa innan Evrópu samkvæmt reglugerð ESB um verðþök á notkun farsíma og netlykla innan sambandsins. Meira »

Voldugar Sækýr synda Ermarsund

Sækýrnar. Kristín Helgadóttir, Sigrún Þuríður Geirsdótir, Birna Hrönn Sigurjónsdóttir, Ragnheiður Valgarðsdóttir, Anna Guðrún Jónsdóttir og ...
12:53 „Sjórinn hefur verið að kalla meira og meira á okkur og finnum við sífellt stærri verkefni,“ segir Ragnheiður Valgarðsdóttir, sundskona úr hópnum Sækýrnar. Hópurinn hyggst þreyta boðsund yfir Ermarsundið. Nái hópurinn markmiði sínu verða þær fyrsti íslenski kvennaboðsundshópurinn sem lýkur áfanganum Meira »

Virkt hraðaeftirlit fækkar slysum

12:45 165 ökumenn hafa verið stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli það sem af er júnímánuði, að sögn Guðmundar Inga Ingasonar varðstjóra. Erlendur ferðamaður á Mýrdalssandi mældist í gær á hraðanum 159 km/klst. og var hann sviptur ökuréttindum í tvo mánuði og gert að greiða 140 þúsund í sekt. Meira »

Handtekinn með hafnaboltakylfu

Héraðsdómur Reykjavíkur. Úr myndasafni.
12:10 Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir að hafa á árunum 2012 og 2013 ekið ítrekað ekið undir áhrifum fíkniefna. Málið var dómtekið í Héraðsdómi Reykjavíkur en maðurinn hefur ítrekað komið sögu lögreglunnar. Meira »

Seldi ritalín fyrir milljónir

Maðurinn seldi ritalín og fleiri lyfseðilsskyld lyf án heimildar.
11:39 Karlmaður um fimmtugt var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ólöglega lyfjasölu og peningaþvætti. Maðurinn hefur hlotið 20 refsidóma frá árinu 1980. Meira »

Síbrotamaður dæmdur í níu mánaða fangelsi

Maðurinn hefur sautján sinnum verið dæmdur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ...
12:27 Karlmaður á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa stolið matvöru, fatnaði og snyrtivörum á nokkurra mánaða tímabili í vetur. Maðurinn hefur hlotið 17 dóma frá árinu 1998 er hann var tvítugur. Meira »

„Ég kem með baseballkylfu í bankann“

Héraðsdómur Vestfjarða
11:49 „[...] þú getur sagt... skilað til þeirra... Ég kem með baseballkylfu í bankann og brýt eitthvað og bramla núna mjög fljótlega ef það verður ekki löguð heimildin innan tveggja mínútna. [...]“ Þetta kemur fram í ákæru yfir manni sem hótaði starfsfólki Arion banka í Borgarnesi fyrir tveimur árum. Meira »

Ólafur Ragnar heimsækir Þýskaland

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á Bessastöðum.
11:36 Forseti Íslands fer í næstu viku í opinbera heimsókn til Þýskalands í boði Joachim Gauck, forseta Þýskalands. Auk forseta og forsetafrúar verða utanríkisráðherra, embættismenn utanríkisráðuneytisins og forsetaskrifstofu og fulltrúar vísinda, tækni, atvinnulífs og menningar með í för. Meira »

100 milljónir í eldfjallarannsóknir

Eldgos
11:06 Vísindasamfélagið, orkufyrirtæki og Orkustofnun hafa gert með sér samkomulag um að verja um 100 milljónum króna til rannsókna á samspili vatns og kviku í rótum eldfjalla. Meira »

Lögreglan leitar manns

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum vegna máls ...
11:02 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Meira »

„Klassískt íslenskt sumarveður“

Veðurstofan spáir hæglætisveðri um helgina. Búast má við skúrum í flestum landshlutum.
10:57 „Þetta er mjög klassískt íslenskt sumarveður. Hægur vindur og það skiptast á skin og skúrir,“ segir Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, spurð út í helgarveðrið. Hægar norðlægar áttir verða ríkjandi og má búast við skúrum víðast hvar. Hiti verður á bilinu 10 til 15 stig. Meira »

Lonely Planet mælir með Norðurlandi

Dettifoss er vinsæll meðal ferðamanna.
10:25 Norðurland er einn af tíu áfangastöðum í Evrópu sem ferðavefurinn Lonely Planet mælir með að fólk heimsæki í ár. Ferðamenn megi ekki láta töfra landshlutans framhjá sér fara; þar sé að finna fallega fossa og hraunbreiður, hægt að fara í jarðböð á Mývatni og í fuglaskoðun í Grímsey. Meira »

Gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls lokað í kvöld

08:41 Í kvöld verða gatnamót Höfðabakka og Bæjarháls malbikuð. Gatnamótin verða því lokuð frá frá kl 22:00 og gatnamótin opna kl 6:30. Hjáleiðir verða settar upp, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Meira »

Gestir undir smásjá spæjaranna

08:17 Edward Snowden varð ósáttur við vinnubrögð bandarísku öryggisstofnunarinnar, NSA, og afhenti fjölmiðlum gögn sem hann segir að sanni að stjórnvöld geti komist yfir allar upplýsingar um almenning sem þeim henti hverju sinni. Meira »

Sætir áfram gæsluvarðhaldi

Maðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi í rúmar sex vikur.
10:20 Gæsluvarðhald yfir karlmanni sem er grunaður um að hafa orðið nágranna sínum að bana á Egilsstöðum 7. maí sl. var framlengt um fjórar vikur 14. júní sl. Rannsókn málsins stendur enn yfir að sögn lögreglunnar á Eskifirði. Meira »

14.400 undirskriftir

08:33 Rúmlega 14.400 manns hafa skrifað undir áskorun á netinu til Alþingis um að samþykkja ekki frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum um veiðigjaldið. Meira »

Flugan flýgur til Frakklands

Bryndís Björgvinsdóttir
07:39 Franskt útgáfufyrirtæki hefur keypt útgáfuréttinn á bók Bryndísar Björgvinsdóttur, Flugan sem stöðvaði stríðið.   Meira »
HARMONIKKUHURÐIR - HARMONIKKUHURÐIR
Fást líka með gluggum. Hringdu inn málin, hurðin oftast tilbúin samdægurs. Myn...
Íbúð í Grundarfirði til leigu
Til leigu er stór 131 m2 íbúð að Sæbóli 33 í Grundarfirði. Fjögur svefnherbergi...
ROTÞRÆR, VATNSGEYMAR OG MOLTUGERÐARKASSAR
Rotþrær, vatnsgeymar og alvöru moltugerðarkassar Rotþrær og siturlagnir. Heildar...
Hyundai Tucson árg. 2008 stgr:1620 þ.kr.
Þægilegur jepplingur með krók, verð 2300 þ.kr til sölu á 1620 þ.kr. staðgr, 2,7l...
 
Laugardagur
Félagsstarf
Laugardaginn 15. jún...
Deildarstjóri óskast
Stjórnunarstörf
Reykjavíkurborg Umverfis- og skipulagss...
Skipulagsmál í rangárþingi

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ...