„Þetta kom mjög á óvart“
„Þetta kom mjög á óvart,“ segir Halldóra Gunnlaugsdóttir en hún hlaut í gærkvöldi afar rómantískt bónorð frá unnusta sínum uppi á sviðinu á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður. Unnusti Halldóru er Sverrir Örn Rafnsson, saman eiga þau tvö börn.
Að sögn Halldóru höfðu vinkonur hennar sagt henni að þær hygðust reyna að standa sem næst sviðinu á meðan að tónleikar með vestfirsku hljómsveitinni Reykjavík fóru fram, en hún hafi ekki spáð neitt meira í það í bili.
Þegar hljómsveitin óskaði síðan eftir því að fá „Halldóru upp á svið“ þá hafi vinkonur hennar ýtt henni upp á sviðið og sagt henni að hún væri umrædd Halldóra. „Mér var komið þarna upp á sviðið og það kom mér rosalega á óvart að Bóas, söngvarinn í Reykjavík, skyldi vilja fá mig til þess að syngja. Þeir náðu alveg að plata mig, því svo leit ég hliðar og sá Sverrir standa þarna,“ segir Halldóra og bætir við að sér hafi brugðið svo mikið við þetta að hún muni lítið eftir framhaldinu.
Bónorðið minnir um margt á rómantísk atriði úr bandarískum kvikmyndum. „Hann var með hring í boxi þarna uppi á sviði, alveg eins og í bíómyndunum,“ segir Halldóra og bætir við að fólk á staðnum hafi verið mjög ánægt fyrir hönd þeirra Sverris.
Aðspurð hvort henni hafi liðið vandræðalega upp á sviðinu fyrir framan mannfjöldann segir Halldóra: „Ég var mjög vandræðaleg svona fyrst þegar að söngvarinn vildi fá mig til þess að syngja en svo fór ég eiginlega í smá lost þegar ég sá Sverrir standa þarna á bak við mig.“
Halldóra segir að þau Sverrir hafi ekki ennþá ákveðið hvenær brúkaupið muni fara fram en það verði þó innan næstu tveggja ára. Þau eru bæði búsett á Ísafirði.























