Stofnvísitala þorsks ekki hærri síðan 1985

stækka

mbl.is/RAX

Stofnvísitala þorsks hefur hækkað fimmta árið í röð samkvæmt niðurstöðum stofnmælingar Hafrannsóknastofnunar á botnfiskum sem fram fór nýverið og hefur ekki verið hærri frá árinu 1985. Fram kemur að hækkun vísitölunnar undanfarin ár megi einkum rekja til þess að æ meira hafi fengist af stórum þorski og hefur sú þróun haldist áfram í ár.

„Meðalþyngd þorsks eftir aldri hefur farið hækkandi undanfarin ár og er nú um og yfir meðaltali hjá flestum aldurshópum. Við sunnanvert landið var holdafar þorsks (slægð þyngd miðað við lengd) með því besta sem verið hefur frá 1993, þegar vigtanir hófust. Fyrir norðan var þorskur í betri holdum og lifrarmeiri en verið hefur frá 1996,“ segir í niðurstöðunum.

Þá kemur fram að stofnvísitala ýsu hafi hækkaði verulega á árunum 2001-2005 en hafi hins vegar farið ört lækkandi næstu fimm árin þar á eftir. Ýsan hafi nú veiðst á landgrunninu allt í kringum landið en meira hafi hins vegar fengist af henni fyrir norðan land en sunnan. Það sé breyting sem hafi átt sér stað undanfarin ár en á hinn bóginn hafi alltaf fengist mun meira af ýsu fyrir sunnan landið.

„Vísitala lúðu í vorralli hrundi á árunum 1986-1990 og hefur haldist lág síðan. Aldrei hefur fengist eins lítið af lúðu í vorralli og síðustu tvö ár og stofnvísitalan nú er um 40 sinnum lægri en árin 1985-1986,“ segir ennfremur. Stofnvísitala skarkola mældist hins vegar svipuð nú og undanfarinn áratug.

Hins vegar kemur fram að vísitala gullkarfa hafi farið hækkandi frá árinu 2008 og hafi nú mælst sú hæsta frá 1985. Þá sé stofnvísitala ufsa hærri en undanfarin fimm ár en þó ekki jafn há og á árunum 2004-2006. Vísitala steinbíts var á hinn bóginn lág líkt og tvö undanfarin ár.

Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum, svonefnt vorrall, fór fram dagana 28. febrúar til 15. mars og tóku fimm fiskiskip þátt í verkefninu auk rannsóknarskipanna Árna Friðrikssonar og Bjarna Sæmundssonar.

PDF-skrá Niðurstöður úr Stofnmælingu botnfiska á Íslandsmiðum í mars 2012
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Tvö umferðaróhöpp á Suðurnesjum

10:06 Tvö umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum.   Meira »

Steingrímur J. afhendir lykla

Steingrímur J. Sigfússon afhenti Ragnheiði Elínu Árnadóttur lyklana að iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
09:58 Steingrímur J. Sigfússon afhenti tveimur ráðherrum lykla í morgun en Ragnheiður Elín Árnadóttir er nýr iðnaðar- viðskiptaráðherra. Meira »

Illugi tekur við lyklunum

Katrín Jakobsdóttir afhenti Illuga Gunnarssyni lyklana að mennta- og menningarmálaráðuneytinu í dag
09:46 Illugi Gunnarsson tók við lyklunum að mennta- og menningarmálaráðuneytinu úr hendi Katrínar Jakobsdóttur í morgun.  Meira »

Enn haldið sofandi

09:43 Karlmanni, sem slasaðist við árekstur húsbíls og rútu á Snæfellsnesi um sl. helgi, er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Að sögn læknis er líðan mannsins óbreytt. Meira »

Kaupmáttur launa aukist um 2,4%

09:04 Kaupmáttur launa hefur aukist um 2,4% síðustu 12 mánuði að sögn Hagstofunnar. Vísitala kaupmáttar launa í apríl er 113,8 stig og hækkaði um 0,05% frá fyrri mánuði. Meira »

Fer ánægð og sátt frá borði

Jóhanna afhendir lyklavöld að forsætisráðuneytinu.
08:48 „Ég er sátt og ánægð og ánægð með hvað vel hefur tekist til hjá minni ríkisstjórn. Þessi ríkisstjórn tekur við mjög góðu búi,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, fráfarandi forsætisráðherra, við blaðamenn er hún mætti á sinn síðasta ríkisráðsfund á Bessastöðum í gær. Meira »

Eftirlit í Kjálkafirði í dag - lokað í nótt

Frá Kjálkafirði.
09:30 Sérstök vakt verður við framhlaupið í Kjálkafirði á sunnanverðum Vestfjörðum í dag og síðan verður veginum lokað á miðnætti og stefnt að því að opna aftur klukkan átta á laugardagsmorgun. Meira »

Guðni Páll kominn að höfuðborgarsvæðinu

Kajakræðarinn Guðni Páll Viktorsson.
08:52 Kajakræðarinn Guðni Páll Viktorsson lenti í fjörunni í Gróttu um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Hann hefur alls róið 552 kílómetra af 2.500 kílómetra ferð sinni umhverfis landið. Meira »

„Krefjandi dagar framundan“

Vilborg Arna í bænum Talkeetna með Denali í bakgrunni áður en lagt var í hann ...
08:42 Ævintýrakonan Vilborg Arna Gissurardóttir, sem hyggst klífa hæsta fjallstind í hverri heimsálfu á einu ári, segir að það séu krefjandi dagar framundan á Denali, sem er hæsta fjall Norður-Ameríku. Í dag stefnir hún að því að færa sig upp í efstu búðir fjallsins. Meira »

Makríltorfur og John Wayne

Hulda Hákon og Jón Óskar með tíkina Heiðu
08:35 Myndlistarmennirnir og hjónin Jón Óskar og Hulda Hákon eiga verkin á opnunarsýningu nýs gallerís, Tveir hrafnar listhús, sem verður opnuð klukkan 16 í dag, föstudag. Meira »

Fyrsta flug WOW air til Düsseldorf

Fyrsta flug WOW air til Düsseldorf
08:33 WOW air flaug sitt fyrsta flug til Düsseldorf í Þýskalandi í dag. Það var vel tekið á móti áhöfninni og farþegum við komu á flugvöllinn. Meira »

Vegagerðin kannar aðra möguleika

Björgunarsveitarmenn þurftu að hjálpa ferðafólki á illa útbúnum farartækjum á Dettifossvegi í fyrradag, meðal annars ...
08:17 Vegagerðin mun skoða það hvort unnt er að loka Dettifossvegi þegar hann er ófær eða merkja veginn öðruvísi en nú er gert.  Meira »

Bíldudalsvegur lokaður í kvöld

Bíldudalur
08:14 Lokað verður um Bíldudalsveg vegur númer 63 við Keldeyrará í kvöld frá klukkan 21:00 til miðnættis.  Meira »

Kanna hagkvæmni viðarkyndingar í Grímsey

Viður er kurlaður til ýmissa nota. Mest fer til Elkem.
07:47 Skógrækt ríkisins er að láta kanna hagkvæmni þess að nota viðarköggla eða kurl til húshitunar í Grímsey. Meðal annars er verið að kanna hvaða leiðir eru bestar í því efni. Meira »

Skattar lækki strax í sumar

Bjarni á nýju skrifstofunni.
07:05 „Ég hlakka til að takast á við þetta verkefni,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, aðspurður hvernig honum væri innanbrjósts nokkrum mínútum eftir að hann tók við lyklavöldunum úr hendi Katrínar Júlíusdóttur. Hann boðar skattlækkanir strax á sumarþingi. Meira »

Sjötíu glíma til uppgjafar

Frá uppgjafarglímumóti.
08:14 Meira en sjötíu keppendur eru skráðir til leiks á Mjölnir Open uppgjafaglímumótið sem fram fer á morgun. Keppt verður í fimm þyngdarflokkum karla, tveimur þyngdarflokkum kvenna og opnum flokkum beggja kynja. Sigurvegari síðustu þriggja ára, Gunnar Nelson, verður ekki með og því nýr Íslandsmeistari skráður. Meira »

Ökumenn virði rauða ljósið

Umferðarljós eru ekki upp á punt.
07:44 Umferðarstofa hvetur alla ökumenn til að virða rauða ljósið í umferðinni, en stofnunin segir að henni hafi borist fjöldi ábendinga að undanförnu um bíla sem fari yfir á rauðu ljósi. Meira »

Segir ríkið standa tæpt

Steingrímur kemur til síðasta ríkisstjórnarfundarins, á Bessastöðum í gær.
06:53 „Ég hef ekki alveg skilið þessa hugsun um að hægt sé að sleppa tekjum eða auka útgjöld áður en búið er að komast upp fyrir strikið. Þetta er náttúrlega ekki ný kenning þessi brauðmolahagfræði um að það lifni allt bara við það að lækka skatta.“ Meira »
Seago björgunarbátar - GG Sjósport
Breskir gæðabátar frá 179.900kr. Fást i tösku eða hylki, 6-8 manna fyrir skemmti...
Kettlingar fást gefins
Er með rúmlega 3 mánaða gamla kettlinga sem vantar gott heimili. Mismunandi á li...
Viltu losna við bjúginn og sætindaþörfina á örfáum dögum ?
Er líka á Facebook: Tesíða Jónínu Ragnars http://www.facebook.com/profile.php...
Gel Naglastartpakkar með öllu frá 15.000 kr
Erum með marga glæsilega professional nagla startpakka með öllu sem þarf til nag...
 
Tónlistarkennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður tónlistarkennara Tónlis...
Aðstoðarskólastjóri
Leikskólakennsla
Aðstoðarskólastjóri við leikskólann ...
15354 sprengiefnageymslu - ríkiskaup

Tilboð óskast í sprengiefnageymsluá...
Gæðaeftirlit - stjórnun innkaupa ásamt meiru
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...