Kostnaðurinn hefði orðið 80 milljarðar

Vaxtakostnaður ríkisins hefði orðið umtalsvert hærri en rætt var um …
Vaxtakostnaður ríkisins hefði orðið umtalsvert hærri en rætt var um af hálfu stjórnvalda fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. mbl.is/Kristinn

Hefði síðasti Icesave-samningur verið samþykktur í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir ári, hinn 9. apríl 2011, væri kostnaður Íslands í dag orðinn ríflega 50 milljarðar króna.

Þetta kemur fram í útreikningum sem fjármálafyrirtækið GAMMA gerði fyrir Morgunblaðið og fjallað er um í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag. Við þá upphæð myndu síðan bætast 28 milljarðar í vaxtagreiðslur til ársins 2015.

Heildarkostnaður vegna Icesave hefði því numið hátt í 80 milljörðum. Það er umtalsvert hærri upphæð en áætlanir stjórnvalda gerðu ráð fyrir í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert