Húsleitir í Lúxemborg

Lúxemborg stækka

Lúxemborg mbl.is/Ómar Óskarsson

Þrjátíu manna hópur á vegum sérstaks saksóknara gerði í dag húsleit hjá Landsbankanum í Lúxemborg. Níu mál eru til rannsóknar sem snúa að markaðsmisnotkun og umboðssvikum. Greint var frá þessu í fréttum Stöðvar 2.

Aðgerðirnar hófust í Lúxemborg klukkan sjö í morgun að íslenskum tíma og lauk undir kvöld.

Leitað var á skrifstofum Landsbankans í Lúxemborg og á skrifstofum tveggja fyrirtækja í Lúxemborg sem tengjast bankanum. 24 sérfræðingar frá lögreglunni í Lúxemborg tóku þátt í aðgerðinni ásamt sex starfsmönnum sérstaks saksóknara.

Að sögn Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks saksóknara, er aðgerðum nú lokið í Lúxemborg en í kjölfar húsleitar í húsnæði Landsbankans í Lúxemborg var ákveðið að fara á tvo aðra staði í borginni þar sem talið væri að gögn væri að finna sem tengjast málinu. Þeirri vinnu hafi lokið undir kvöld.

Ólafur segir í samtali við mbl.is að húsleitirnar í dag tengist málum tengdum Landsbankanum sem byrjað var að rannsaka í janúar 2011 er starfsmenn embættis sérstaks saksóknara gerðu húsleitir á Íslandi og handtóku fyrrum starfsmenn Landsbankans sem í kjölfarið voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald.

Í fréttum Stöðvar 2 kom fram að rannsóknin snúi í fyrsta lagi að meintri markaðsmisnotkun Landsbankans með hlutabréf útgefin af bankanum sjálfum.

Í öðru lagi lánveitingar félaganna Hunslow S.A, Bruce Assets Limited, Pro-Invest Partners Corporation og Sigurðar Bollasonar ehf. til að kaupa á hlutabréfum í Landsbankanum.

Hunslow er í eigu Stefáns Ingimars Bjarnasonar og fékk 1,6 milljarða króna lán til að fjármagna hlutabréfakaup í Landsbankanum. Bruce Assets var í eigu bræðranna Ólafs Steins og Kristjáns S. Guðmundssona og fékk lán í sama tilgangi. Sigurður Bollason ehf. í var eigu athafnamannsins Sigurðar Bollasonar og fékk 3,5 milljarða króna lánaða til að kaupa bréf í Landsbankanum.

Félagið Pro-Invest var í eigu Georg Tzvetanski, en um er að ræða búlgarskan viðskiptafélaga Björgólfs Thors Björgólfssonar sem fékk 4,5 milljarða króna yfirdráttarlán hjá Landsbankanum í Lúxemborg í lok september 2008, aðeins viku fyrir hrun.

Í þriðja lagi er um ræða kaup Landsbankans á lánasafni Landsbankans í Lúxemborg og síðasta af þessum fjórum tengist kaupum á hlutabréfum í bankanum af hálfu félaga sem héldu um kauprétti starfsmanna Landsbankans og lánveitingar bankans til þessara sömu félaga.

Heildarupphæðin, sem Landsbanki Íslands reiddi fram til þess að kaupa lánasafnið af Landsbankanum í Lúxemborg, sem er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara, nam um 784 milljónum evra, að því er fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Þetta er jafnvirði um 130 milljarða króna, að því er fram kom í fréttum Stöðvar 2 og hægt er að lesa um á Vísi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Lyfjameðferð við Fabry gengið vel

Samúel og Guðmundur Skúli Halldórssynir.
10:58 „Við erum búnir að fara í tvær meðferðir og allt hefur gengið eins og best verður á kosið,“ segir Guðmundur Skúli Halldórsson en hann og bróðir hans Samúel eru með sjaldgæfa efnaskiptasjúkdóminn Fabry. Ekki má gera ráð fyrir að þeir finni fyrir betri líðan vegna lyfjanna fyrr en næsta vetur. Meira »

Mögnuð upplifun á toppi veraldar myndskeið

leifuratoppnum
10:51 Leifur Örn Svavarsson segir það hafa verið magnaða upplifun að vera á toppi hæsta fjalls veraldar þegar sólin var að koma upp og virða fyrir sér skugga fjallsins og er nú á leið niður. Síðustu metrarnir sóttust vel en þó lenti hann í ísingu á súrefnisgrímu sinni. Leifur ræddi við mbl.is í morgun. Meira »

„Þú ert svo mikill aumingi“

Erlendar rannsóknir benda til að bæði karlar og konur beiti ofbeldi í nánum samböndum.
10:12 Þörf er á samfélagslegri umræðu um þá staðreynd að heimilisofbeldi er ekki bundið við að karlar séu gerendur. Konur beita líka karla ofbeldi í nánum samböndum. Þetta segir Ingibjörg Þórðardóttir félagsráðgjafi sem rætt hefur við karla sem upplifað hafa heimilisofbeldi. Meira »

Tvö umferðaróhöpp á Suðurnesjum

10:06 Tvö umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum.   Meira »

Illugi tekur við lyklunum

Katrín Jakobsdóttir afhenti Illuga Gunnarssyni lyklana að mennta- og menningarmálaráðuneytinu í dag
09:46 Illugi Gunnarsson tók við lyklunum að mennta- og menningarmálaráðuneytinu úr hendi Katrínar Jakobsdóttur í morgun.  Meira »

Eftirlit í Kjálkafirði í dag - lokað í nótt

Frá Kjálkafirði.
09:30 Sérstök vakt verður við framhlaupið í Kjálkafirði á sunnanverðum Vestfjörðum í dag og síðan verður veginum lokað á miðnætti og stefnt að því að opna aftur klukkan átta á laugardagsmorgun. Meira »

Steingrímur J. afhendir lykla

Steingrímur J. Sigfússon afhenti Ragnheiði Elínu Árnadóttur lyklana að iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
09:58 Steingrímur J. Sigfússon afhenti tveimur ráðherrum lykla í morgun en Ragnheiður Elín Árnadóttir er nýr iðnaðar- viðskiptaráðherra. Meira »

Enn haldið sofandi

09:43 Karlmanni, sem slasaðist við árekstur húsbíls og rútu á Snæfellsnesi um sl. helgi, er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Að sögn læknis er líðan mannsins óbreytt. Meira »

Kaupmáttur launa aukist um 2,4%

09:04 Kaupmáttur launa hefur aukist um 2,4% síðustu 12 mánuði að sögn Hagstofunnar. Vísitala kaupmáttar launa í apríl er 113,8 stig og hækkaði um 0,05% frá fyrri mánuði. Meira »

Guðni Páll kominn að höfuðborgarsvæðinu

Kajakræðarinn Guðni Páll Viktorsson.
08:52 Kajakræðarinn Guðni Páll Viktorsson lenti í fjörunni í Gróttu um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Hann hefur alls róið 552 kílómetra af 2.500 kílómetra ferð sinni umhverfis landið. Meira »

Fer ánægð og sátt frá borði

Jóhanna afhendir lyklavöld að forsætisráðuneytinu.
08:48 „Ég er sátt og ánægð og ánægð með hvað vel hefur tekist til hjá minni ríkisstjórn. Þessi ríkisstjórn tekur við mjög góðu búi,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, fráfarandi forsætisráðherra, við blaðamenn er hún mætti á sinn síðasta ríkisráðsfund á Bessastöðum í gær. Meira »

„Krefjandi dagar framundan“

Vilborg Arna í bænum Talkeetna með Denali í bakgrunni áður en lagt var í hann ...
08:42 Ævintýrakonan Vilborg Arna Gissurardóttir, sem hyggst klífa hæsta fjallstind í hverri heimsálfu á einu ári, segir að það séu krefjandi dagar framundan á Denali, sem er hæsta fjall Norður-Ameríku. Í dag stefnir hún að því að færa sig upp í efstu búðir fjallsins. Meira »

Makríltorfur og John Wayne

Hulda Hákon og Jón Óskar með tíkina Heiðu
08:35 Myndlistarmennirnir og hjónin Jón Óskar og Hulda Hákon eiga verkin á opnunarsýningu nýs gallerís, Tveir hrafnar listhús, sem verður opnuð klukkan 16 í dag, föstudag. Meira »

Bíldudalsvegur lokaður í kvöld

Bíldudalur
08:14 Lokað verður um Bíldudalsveg vegur númer 63 við Keldeyrará í kvöld frá klukkan 21:00 til miðnættis.  Meira »

Kanna hagkvæmni viðarkyndingar í Grímsey

Viður er kurlaður til ýmissa nota. Mest fer til Elkem.
07:47 Skógrækt ríkisins er að láta kanna hagkvæmni þess að nota viðarköggla eða kurl til húshitunar í Grímsey. Meðal annars er verið að kanna hvaða leiðir eru bestar í því efni. Meira »

Vegagerðin kannar aðra möguleika

Björgunarsveitarmenn þurftu að hjálpa ferðafólki á illa útbúnum farartækjum á Dettifossvegi í fyrradag, meðal annars ...
08:17 Vegagerðin mun skoða það hvort unnt er að loka Dettifossvegi þegar hann er ófær eða merkja veginn öðruvísi en nú er gert.  Meira »

Sjötíu glíma til uppgjafar

Frá uppgjafarglímumóti.
08:14 Meira en sjötíu keppendur eru skráðir til leiks á Mjölnir Open uppgjafaglímumótið sem fram fer á morgun. Keppt verður í fimm þyngdarflokkum karla, tveimur þyngdarflokkum kvenna og opnum flokkum beggja kynja. Sigurvegari síðustu þriggja ára, Gunnar Nelson, verður ekki með og því nýr Íslandsmeistari skráður. Meira »

Ökumenn virði rauða ljósið

Umferðarljós eru ekki upp á punt.
07:44 Umferðarstofa hvetur alla ökumenn til að virða rauða ljósið í umferðinni, en stofnunin segir að henni hafi borist fjöldi ábendinga að undanförnu um bíla sem fari yfir á rauðu ljósi. Meira »
Til sölu Ægistjaldvagn
Árg. '03, st/gerð, m/fortjaldi, vel með farinn, alltaf geymdur inni yfir veturin...
Íbúðagisting á frábærum stað á Akureyri
Rúmgóð fjögura herberga íbúð í Brekkugötu 33. Uppábúin rúm fyrir 6 manns, net, f...
Íbúðagisting Akureyri.
Glæsileg gisting í stúdíóíbúð við Þórunnarstræti á frábærum stað. Stutt í sund, ...
25-30fm skrifstofa til leigu í Hafnarf.
Til leigu á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði 25-30fm húsnæði með aðgangi að salerni...
 
Útboð isa-01 - landsnet

ÚTBOÐ ISA-01 Tengivirki á Ísafirði ...
Aðalskipulag
Tilkynningar
Auglýsing um tillögu að A...
Verkefnastjóri
Iðnaðarmenn
Verkefnastjóri Samtök fiskvinnslust...
Tilboð í ráðgjafavinnu

Tilboð í ráðgjafavinnu S30 fasteignaf...