Ákærður fyrir fjársvik
Sérstakur saksóknari hefur ákært Aron Karlsson fyrir fjársvik vegna sölu á fasteign við Skúlagötu til kínverska sendiráðsins. Málið hefur verið í rannsókn hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra í á þriðja ár. Greint var frá þessu í kvöldfréttum RÚV.
Í janúar 2010 tilkynnti kínverska sendiráðið um kaup á húsnæðinu, Skúlagötu 51, áður Sjóklæðagerðin. Húsið var í eigu félagsins Vindasúlur en þar í forsvari var Aron Karlsson ásamt föður sínum Karli Steingrímssyni. Fasteignin var veðsett fyrir rúman milljarð króna vegna lána í Arionbanka, Íslandsbanka og Glitni. Um miðjan desember 2010 var gengið að tilboði frá indversku fyrirtæki í fasteignina fyrir 575 milljónir króna. Bankarnir féllust á þessa sölu. Skömmu síðar var hins vegar samþykkt tilboð frá kínverska sendiráðinu upp á 875 milljónir. Í millitíðinni var búið að færa fasteignina í nýtt félag, 2007 ehf., í eigu sömu aðila, en það félag hét AK fasteignir.
Lögmaður bankanna þriggja kærði málið til Ríkislögreglustjóra en bankarnir höfðu enga vitneskju um tilboð Kínverjanna eða flutning eignarinnar milli félaga. Bankarnir telja að þeir hafi verið hlunnfarnir um 300 miljónir króna. Við húsleit fundust 92 milljónir króna en þær voru á bankabók í eigu félagsins 2007 ehf. sem er í eigu Karls og Arons. Var féð rakið og hald lagt á það af embætti Ríkislögreglustjóra. Þegar efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra sameinaðst embætti sérstaks saksóknara fór rannsókn málsins til embættisins, sem hefur nú ákært Aron fyrir hlut sinn í málinu.
Innlent »
- Heit umræða um hjálmaskyldu
- Selja hjólin sem gengu af
- Nafn mannsins sem féll í Hjaltadalsá
- Hætti við kynleiðréttingu
- Keimur af gamaldags viðhorfum
- Forseti ÍSÍ bráðkvaddur
-
200 hjóla í WOW Cyclothon
-
Guðni Páll hefur safnað 4 milljónum
- Enginn með allar tölur réttar
- Takmörkunum á neyslu vatns aflétt
- Stelpur forrituðu á kvenréttindadaginn
- Ók bifhjóli í vímu á ofsahraða
- Dýrir tólf pakkar af vindlingum
- Stofnaði lífi sonarins ekki í hættu
- Sveik út fé af Íbúðalánasjóði
- Konur 42% í nefndum og ráðum
-
Auki veg kvenna í kvikmyndum
- „Munum ekki láta staðar numið“
- Íslendingar strandaglópar í New York
- Gjaldtaka við komu og brottför
- Skuldarar fá leiðréttingu
- Ráðherrar ræddu skattamál og ESB
- „Mjög dapurlegur dagur“
- Forsætisráðherra spurður út í Snowden
- Bótaskylt vegna Inspired by Iceland
- Tölvuþrjótar herja á viðskiptavini Íslandsbanka
- Sýknaðir af nauðgun í Hæstarétti
- Rannsóknarnefnd skoðar vél Ómars
- 200 taka þátt í WOW Cyclothon-keppninni
- Svavar og RÚV kæra til Mannréttindadómstóls
- Sáttaumræður í fjárlaganefnd
- Ódýrara að nota farsímann innan Evrópu
- Voldugar Sækýr synda Ermarsund
- Virkt hraðaeftirlit fækkar slysum
- Síbrotamaður dæmdur í níu mánaða fangelsi
- Handtekinn með hafnaboltakylfu
- „Ég kem með baseballkylfu í bankann“
- Seldi ritalín fyrir milljónir
- Ólafur Ragnar heimsækir Þýskaland
- 100 milljónir í eldfjallarannsóknir
- Lögreglan leitar manns
- „Klassískt íslenskt sumarveður“
- Lonely Planet mælir með Norðurlandi
- Sætir áfram gæsluvarðhaldi
- Gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls lokað í kvöld
- 14.400 undirskriftir
- Gestir undir smásjá spæjaranna
- Flugan flýgur til Frakklands
- Hreinsuðu upp eftir árekstur
- Þrír óskuðu eftir gistingu
- Hönnun TARK valin við stækkun FSu
- Sleppa betur með ræktun
- Háskaleg ljósmyndataka ferðamanna
- Leggja blóm að leiði Bríetar
- Lést í bílslysi í Skötufirði
- Áfram rætt um makríl
- Krefjast skaðabóta vegna útgerðarkaupa
- Kvótafrumvarp
- Uppljóstrari vill hæli
- Ríkisendurskoðun gagnrýnd
- Rannsókn á mannsláti á Egilsstöðum
- Makríldeilan























