Enn að störfum í Lúxemborg
Starfsmenn embættis sérstaks saksóknara eru enn að störfum í Lúxemborg en í gær var gerð húsleit í Landsbankanum í Lúxemborg og tveimur öðrum stöðum í tengslum við rannsókn mála tengdra Landsbankanum sem hófst í janúar í fyrra.
Sex starfsmenn embættis sérstaks saksóknara tóku þátt í húsleitunum ásamt 24 lögreglumönnum í Lúxemborg.
Mjög rík bankaleynd ríkir í Lúxemborg og getur tekið langan tíma að flytja gögn frá landinu. Þegar lögregla hefur lokið við að fara yfir gögnin eru þau send til rannsóknardómara sem kanna hvort ekki sé rétt staðið að rannsókninni, það er gögnin séu í samræmi við beiðni sem fékkst fyrir aðgerðum.
Að sögn Ólafs Þórs Haukssonar, sérstökum saksóknara, eru enn að berast gögn til Íslands vegna fyrri rannsókna embættisins í Lúxemborg, fyrir ári síðan. Hann segir ómögulegt að segja til um hversu langan tíma taki að fá þessi gögn sem hald var lagt á í gær en telur að nú muni ekki líða jafn langur tími nú.
Í janúar í fyrra hóf embættið rannsókn á fjórum málum tengdum bankanum. Í fyrsta lagi meintri markaðsmisnotkun bankans með hlutabréf útgefin af honum. Í öðru lagi lánveitingum til félaganna Hunslow S.A., Bruce Assets Limited, Pro-Invest Partnes Corp. og Sigurðar Bollasonar ehf. til kaupa á hlutabréfum í bankanum. Í þriðja lagi kaupum Landsbanka Íslands á lánasafni Landsbankans í Lúxemborg og í fjórða lagi kaupum á hlutabréfum í bankanum af hálfu félaga sem héldu um kauprétti starfsmanna bankans og lánveitingar til þeirra félaga.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Haraldsson Get ekki að því gert! -
Heimir L Fjeldsted Glæpastarfsemi
Innlent »
- Mótmæltu ESB við fundarstaðina
- Tillagan samþykkt einróma
- Flokkarnir fá fimm ráðuneyti hvor
- Funda fyrir innan byrgða glugga
- Þegar veröld barna hrynur
- Ók stolnum bíl á ofsahraða
- „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“
- Hækka bensín um rúmar 5 krónur
- „Tækifæri fyrir flokksfólkið að tjá sig“
- Stækkar griðasvæði hvala í Faxaflóa
- Braut gegn félaga sínum
- Styrkja nemendur til framhaldsnáms
- Stal vörum fyrir 30 þúsund krónur
- Vestfjarðavegur í Kjálkafirði opnaður
- Forsetinn fundar með Sigmundi
- Stálu um 500 lítrum af olíu
- Svandís formaður þingflokks VG
- Má leggja fram gögn í Kaupþingsmáli
- Óskað eftir vitnum að slysi
- Helgi þingflokksformaður Samfylkingarinnar
- 85% hjólreiðamanna nota hjálm
- Skipulag ferðamála brýnasta verkefnið
- Lögreglan skoðar eldri tælingamál
- „Óskabörn þjóðarinnar“ fá hjálma
- Mataræði eiginmannsins lögreglumál
- Lögreglan óskar eftir vitnum
- Ástand mannsins óbreytt
- Lækkun á flugfargjöldum í sumar
- Dregið úr varúðarráðstöfunum
- Úrskurður ekki í samræmi við lög
- Fjallavinir fóru á Öræfajökul
- Heyra ekki í Ingólfi fyrr en eftir 2 daga
- Misheppnað rúllettuspil á evrusvæðinu
- Farbann framlengt um 6 vikur
- Falsaði skráningarmerki bifreiðar
- Róbert Melax vill kaupa Ljósvetningabúð
- Tekinn á 132 km hraða
- Lögreglan fylgist sérstaklega með nagladekkjum
- Tollurinn fargaði húsgögnum
- Lokað vegna hættu á skriðuföllum
- Hagnaður minnkaði milli 2010 og 2011
- Fögnuðu þúsund árum
- Ný tölfræði komin í Íslendingabók
- Syndaskattar skiluðu 21,5 milljörðum
- Leifur stefnir á toppinn 23. maí
- 16 ára ökumaður stöðvaður
- Enn talin hætta á skriðum
- Veðrið hefur hamlað strandveiðunum
- Sala laxveiðileyfa afar dræm
- Snjórinn lætur undan eftir langan vetur
- Andlát: Gissur Ólafur Erlingsson
- Stefnan kynnt á morgun
- Rannsaka gasbúnað og loftræstingu
- Ingólfur nær toppi Everest
- Forsetinn hreifst af Sigmundi
Mánudagur, 20.5.2013
- Íslenskir Everestfarar
- Heimilisofbeldi
- Rannsókn sérstaks saksóknara
- Kvótafrumvarp
- Umsókn um aðild að ESB























