Sluppu ómeiddir frá brotlendingunni

Vélinni hnekktist á í lendingu á Reykjavíkurflugvelli en engan sakaði. stækka

Vélinni hnekktist á í lendingu á Reykjavíkurflugvelli en engan sakaði. Mbl.is/Ómar Óskarsson

Flugvélin sem brotlenti á Reykjavíkurflugvelli hefur nú verið flutt inn í skýli í Fluggörðum og er vinnu á vettvangi lokið. Lögregla, sjúkrabílar og slökkvilið fóru á staðinn en mennirnir tveir um borð í vélinni reyndust ekki vera slasaðir.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á Reykjavíkurflugvelli brotnaði annað hjólið undan vélinni í lendingu. Endanleg orsök slyssins er hinsvegar ekki ljós og mun Rannsóknarnefnd flugslysa skoða málið áfram, en fulltrúar hennar voru einnig á vettvangi í kvöld.

Innan við ár frá síðasta óhappi

Flugvélin sem um ræðir heitir TF-FUN og er lítil einkaflugvél af gerðinni American Champion 7ECA. Sama flugvél lenti í óhappi á Reykjavíkurflugvelli þann 6. ágúst 2011, en þá hlekktist henni á í akstri á leið til flugtaks. 

Í skýrslu Rannsóknarnefndar flugslysa um það atvik kemur fram að flugvélin hafi farið fram fyrir sig við hlið á akbrautinni. Loftskrúfa og hreyfill flugvélarinnar hafi skemmst við óhappið. Flugmaðurinn slapp þá ómeiddur líkt og nú.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

„Það vantar allar útfærslur“ myndskeið

Steini0
11:50 Steingrímur J. Sigfússon, fráfarandi atvinnuvegaráðherra, er lítt hrifinn af stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Að hans mati vantar margt í hana. Meira »

30% nýnema við lögregluskólann konur

11:48 Embætti ríkislögreglustjóra í samvinnu við kynjafræði við Háskóla Íslands vinnur að könnun meðal starfandi lögreglumanna. Um er að ræða könnun á líðan og samskiptum í starfi, á samspili vinnu og einkalífs og viðhorfi til stöðu karla og kvenna innan lögreglunnar. Meira »

Reyklaus áhöfn á Beiti NK

Beitir NK-123.
11:47 Sá áfangi náðist eftir loðnuvertíðina í vetur að Beitir NK varð reyklaust skip. Það hefði einhvern tímann þótt saga til næsta bæjar að enginn í áhöfn íslensks fiskiskips af þessari stærð reykti um borð en það hefur löngum viljað loða við íslenska sjómenn að þeir væru býsna háðir tóbakinu. Meira »

Síðasti ríkisráðsfundurinn myndskeið

Stjorn0
11:18 „Ég vona að það verði eins mikil kraftur í þessari ríkisstjórn [ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks] og þessari sem er að fara frá,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, fráfarandi forsætisráðherra, er hún mætti á sinn síðasta ríkisráðsfund á Bessastöðum í dag. Meira »

Talaði í þrettán og hálfan tíma

Fyrirlesturinn hófst klukkan 9 í gærmorgun og stóð fram á kvöld.
10:33 Stefán Pálsson sagnfræðingur sló í gær óformlegt Íslandsmet í ræðuhöldum þegar hann hélt þrettán og hálfs tíma fyrirlestur um myndasögurnar um Sval og Val. Meira »

Gömul föt fá framhaldslíf

10:09 Rauði krossinn og Eimskip standa fyrir árlegu fatasöfnunarátaki nú um helgina, 25.-26. maí. Til að létta undir með fólki við vortiltekt verður gámum komið fyrir við allar sundlaugar ÍTR í Reykjavík og við sundstaði í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og Álftanesi. Það er því kjörið að skella sér í sund í sömu ferðinni. Meira »

Eyjamenn hafna hóteli

Teikning af hótelinu.
11:08 Vestmannaeyingar höfnuðu því í íbúakosningu að bærinn myndi veita byggingarleyfi fyrir hóteli á lóð við Hásteinsgryfju.  Meira »

Fólkið í ríkisstjórn Íslands

Sigmundur Davíð Gunnlaugssson er yngstur til að gegna embætti forsætisráðherra á Íslandi frá stofnun lýðveldisins.
10:10 Greint var frá því í gærkvöldi hverjir sitja í nýrri ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Ekkert þeirra hefur setið áður í ríkisstjórn Íslands en Kristján Þór Júlíusson er elsti ráðherrann og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er sá yngsti. Meira »

Allt að tveggja tíma brottfarartöf

Frá Keflavíkurflugvelli.
09:35 Brottför allra flugvéla sem fara áttu frá Keflavíkurflugvelli tafðist um allt að tvær klukkustundir í morgun vegna bilunar sem upp kom í sjálfvirku flugupplýsingakerfi í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík sem miðlar gögnum til flugumferðarstjóra. Meira »

Vélar fastar á Keflavíkurflugvelli

09:18 Töluverð röskun hefur orðið á millilandaflugi á Keflavíkurflugvelli en allar vélar hafa setið fastar á vellinum í morgun vegna bilunar í tölvubúnaði hjá flugumsjónarmönnum. Farþegi segir í samtali við mbl.is að hann hafi beðið í vélinni í rúman klukkutíma en vélin átti að fara í loftið kl. 7:50. Meira »

Einungis þriðjungur gaf stefnuljós

09:02 Tveir af hverjum þremur bílstjórum gáfu ekki stefnuljós þegar þeir óku út úr hringtorgi á mótum Fjarðarhrauns, Flatahrauns og Bæjarbrautar í Hafnarfirði. Meira »

„Áfall að horfa á pabba berja mömmu“

Systurnar Thelma Ásdísardóttir og Ruth Ásdísardóttir bjuggu við ofbeldi alla sína barnæsku.
09:00 „Það er gríðarlegt áfall sem fylgir því að horfa upp á pabba berja mömmu,“ segir Ruth Ásdísardóttir, en hún og fjórar systur hennar ólust upp við gróft og langvarandi ofbeldi í æsku. Hún segir ofbeldið á heimilinu hafa markað sig fyrir lífstíð. Meira »

Lokað um Reykjahverfi

08:55 Vegurinn um Reykjahverfi (vegur númer 87) verður lokaður í dag á milli kl:10:00 og 12:00 vegna ræsagerðar, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Meira »

Spilað til úrslita í Keflavík

Spáð í spilin á Bridshátíð.
08:41 Norðurlandamót í sveitakeppni í brids verður haldið um helgina, dagana 24.-26. maí, á Icelandair Hótel Keflavík. Mótið hefst kl. 10.00 í fyrramálið, föstudag, og lýkur um kl. 15.00 á sunnudag. Meira »

Hálka á Mývatnsöræfum

08:25 Á Norðausturlandi er hálka á Mývatnsöræfum en hálkublettir eru á Hólasandi og í Bárðadal ófært er á Dettifossvegi, segir í upplýsingum Vegagerðarinnar. Meira »

„Ég er að fara að gjósa“

Eldfjöll gefa frá sér merki skömmu áður en þau gjósa. Vísindamenn vilja átta sig betur ...
08:44 Fréttamenn breska ríkisútvarpsins heimsóttu Ísland nýverið til að kynna sér rannsóknir Veðurstofu Íslands sem vinnur nú að því að efla vöktun íslenskra eldfjalla í þeirri von að geta spáð fyrir um möguleg eldgos. Meira »

Phelps: Óráð að sækja um ESB

Edmund S. Phelps
08:37 Bandaríski hagfræðiprófessorinn Edmund Phelps telur óráð fyrir Ísland að sækja um Evrópusambandsaðild eins og sakir standa og tekur þar í sama streng og ný ríkisstjórn Íslands. Meira »

Ríkið meðvitað að skapa launamismun

Hrafnista í Reykjavík.
08:07 „Þetta er algerlega óásættanlegt ástand og hreint ótrúlegt að ríkið sé meðvitað að skapa verulegan mismun á launakjörum innan sömu starfstétta eftir því hjá hvaða heilbrigðis- og velferðarstofnunum þær starfa.“ Meira »
Glæsileg Hágæða Förðunarsett
Erum með geggjuð flott förðunarburstasett. Hágæða lúxus bursta sett - 15 pens...
Húsbíll til sölu
FORD LMC dísel árg. 5/2009 ek. 20 þ.km. 6 farþ.,reiðhjólagrind, markisa ofl. Ver...
Fendt Diamant VIP 700
Þá er komið að því að ég ætla að selja þennan yndislega stað minn að Hellishólum...
TOYOTA HILUX DOUBLE CAB 33"
Til sölu Toyota Hilux Double Cab bensín, árgerð '96. Ekinn 170 þús. Er á 33" de...
 
Tónlistarkennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður tónlistarkennara Tónlis...
Samkoma alþjóðakirkjan
Félagsstarf
Kl. 11.00 Samkoma. Ræðumaður e...
15411 sigtún 2 - ríkiskaup

Tilboð óskast í fasteignina Sigtún ...
Hluthafafundur
Fundir - mannfagnaðir
Hluthafafundur Hluthafafundur ver...