Tíndu upp kaffimál og flugeldarusl

Nemendur í Hagaskóla sýndu samfélagsábyrgð í morgun og tíndu upp rusl í næsta nágrenni skólans. Þau tóku þar með áskorun borgarstarfsmanna um að hver og einn legði sitt af mörkum til að hreinsa borgina eftir veturinn. Krakkarnir fóru um Vesturbæ í flokkum vopnuð latex-hönskum og plastpokum og fylltu hvern pokann af öðrum af kaffimálum, sígarettupökkum, stubbum og flugeldarusli. Af nógu var að taka við helstu umferðargöturnar og í runnum.

Þó vorhreinsun sé árviss viðburður í Hagaskóla þá var ákveðið að blása snemma til leiks í vor vegna fjölmiðlaumfjöllunar um mikið rusl í Reykjavík. Stóru svæðin umhverfis skólann var skipt upp í 18 reiti sem hver bekkur hreinsaði eftir bestu getu. Eftir vel unnið verk voru pylsur grillaðar í vorsólinni sem nemendur borðuðu af bestu lyst.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert