Vetur og sumar frusu saman

Þessa dagana hópast farfuglar til landsins.

Þessa dagana hópast farfuglar til landsins. Mbl.is/Rax

Vetur og sumar frusu saman víðast hvar á landinu í nótt, aðfaranótt sumardagsins fyrsta, en samkvæmt þjóðtrúnni gefur það fyrirheit um gott sumar. Útlit er fyrir fremur bjart og hægt veður víða á landinu í dag en áfram verður nokkuð kalt og má því segja að sumarið hefjist með þvottekta gluggaveðri.

Sé litið á veðurkort Veðurstofu Íslands sést að hitatölur eru bláar nánast á landinu öllu, utan nokkurra reita meðfram sjónum. Að sögn veðurfræðings á vakt skreið hitastigið rétt niður fyrir frostmark í efri byggðum Reykjavíkur, og Mbl.is fékk ábendingu frá lesanda í Kópavogi þar sem veðurstöð sýndi -0,7°C á miðnætti. 

Sterk þjóðtrú

Spói á staur.

Spói á staur. mbl.is/Ómar Óskarsson.

Margir gleðjast yfir þessum fregnum því sú gamla þjóðtrú lifir enn góðu lífi að það viti á gott sumar er sumar og vetur frjósa saman aðfaranótt sumardagsins fyrsta. Í Sögu daganna, bók Árna Björnssonar þjóðháttafræðings, kemur fram að hvarvetna á landinu var eftir því tekið hvort frost væri á aðfaranótt sumardagsins fyrsta svo að vetur og sumar frysu saman. Þótt menn legðu mismikinn trúnað á var slíkt með fáum undantekningum talið góðs viti. Flestir væntu þess að þá yrði gott undir bú, sem merkti að nytin úr ánum yrði kostgóð og fitumikil. Aðrir höfðu heyrt að mjólkin yrði mikil ef rigndi fyrstu sumarnótt en ekki að sama skapi kostgóð.

Sumir létu sér nægja að huga að skæni á pollum fyrsta sumarmorgun, en mjög algengt var að setja um kvöldið ílát með vatni undir bæjarvegg í skjóli frá morgunsól og vitja um eldsnemma. Það var einnig þjóðtrú, að ef gott veður er á sumardaginn fyrsta og fyrsta sunnudag í sumri yrði sumarið einnig gott. Útlit er fyrir að veðrið þennan sumardag verði þokkalegt, þótt eftirhreytur vetrarins láti enn finna fyrir sér.

Litlir umhleypingar næstu daga

Hæg norðaustanátt er víðast hvar á landinu. Von er á éljagangi sumstaðar austan til og getur verið að það verði él með suðurströndinni líka eftir hádegið. Í Reykjavík á væntanlega eftir að þykkna upp þegar líður á daginn og ský úr austrinu færast yfir, en svo birtir til aftur. 

Að sögn veðurfræðings á Veðurstofunni er líklegt að litlir umhleypingar verði í veðrinu næstu daga. Staðan eins og hún er nú gæti varað nokkuð lengi, norðaustanátt er ríkjandi og enginn lægðagangur, en því fylgir bjartviðri á suður- og vesturhluta landsins og kuldi, einkum á Norðausturlandi þar sem gætu orðið stöku él. Einhver breytileiki kann að verða á hita næstu daga, suma dagana eilítið hlýrra og þá þykknar upp, en þegar birtir til verður kaldara. 

Spóinn hefur úrslitavaldið

En samkvæmt íslenskum þjóðháttum er það meira en veðrið í dag sem spáir til um sumartíðina. Til að mynda skipta farfuglarnir miklu máli. Helstu spáfuglarnir eru samkvæmt þjóðtrúnni lóan og spóinn en næstir komu hrossagaukur og þröstur, síðan hrafn og máríátla.

Í bók Árna, Saga daganna, kemur fram að skiptar skoðanir voru um lóuna og töldu menn á sunnan- og vestanverðu landinu að lóan væri lítill spámaður og ills vita ef hún kom mjög snemma en norðan og austan var henni fagnað sem vorboða. Menn voru hins vegar sammála um að treysta mætti spóanum og öll stórhret mundu úti þegar hann heyrðist langvella.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Óvissa með siglingar Herjólfs

Herjólfur
07:17 Ölduhæð hefur lækkað í Landeyjahöfn síðastliðna klukkustund og í því ljósi hefur verið ákveðið að bíða með að gefa út endanlega ákvörðun um siglingar fyrstu ferðar Herjólfs. Meira »

Dópaður ökumaður stakk af

06:31 Tilkynnt var um tveggja bíla árekstur í austurborginni um ellefu leytið í gærkvöldi. Annar ökumaðurinn stakk af frá árekstrinum ásamt farþegum bifreiðarinnar. Þegar lögregla fann þá kom í ljós að þeir voru allir undir áhrifum vímuefna. Meira »

Ekkert fær stöðvað sannleikann

06:02 Edward Snowden segir að leiðtogar Bandaríkjanna geti ekki komið í veg fyrir birtingu upplýsinganna með því að fangelsa hann eða myrða. Ekkert fái stöðvað sannleikann. Hann ýjar að því að birta frekari upplýsingar um hleranir Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna. Meira »

Gagnrýna skipun stjórnar LÍN

Stjórn Röskvu
05:35 Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, hafa sent Illuga Gunnarssyni, mennta- og menningarmálaráðherra, opið bréf þar sem lýst er yfir óánægju með að Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins hafi verið skipaður stjórnarformaður LÍN. Meira »

Þörf fyrir 1.500 íbúðir

Frá Úlfarsárdal
05:30 Jákvæð teikn eru á lofti í byggingariðnaði og hefur sala á timbri, sementi og steinull aukist frá því í fyrra. Útlit er fyrir að nýbyggingar á árinu komi ekki til með að mæta innbyggðri þörf sem segir til um að árlega þurfi að byggja um 1.500 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu til að mæta fólksfjölgun. Meira »

Sérstakar umræður um ríkisfjármál í dag

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson
05:30 Sérstakar umræður eru boðaðar á Alþingi í dag um áherslur nýrrar ríkisstjórnar í ríkisfjármálum. Málshefjandi er Steingrímur J. Sigfússon og til andsvara verður fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarni Benediktsson. Meira »

Hvalur 8 með langreyði til hafnar í dag

05:30 Hvalur 8 veiddi í gær eina langreyði vestur af landinu. Búist er við því að hvalurinn komi í land um hádegisbilið í dag, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins í gærkvöldi. Meira »

255 útkallsverkefni hjá lögreglunni á Akureyri

Lögreglustöðin Akureyri
05:30 „Einn var tekinn með 40 sölupakkningar af hvítu efni í fórum sínum ásamt 50 grömmum af maríjúana síðastliðna nótt,“ segir Jóhannes Sigfússon, varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri. Meira »

Lenti í íslenskum hálendisrudda

Ómar Ragnarsson á Akureyri.
Í gær, 23:40 „Hreyfillinn drap á sér og fór ekki í gang aftur. Ég skil það hreinlega ekki, það var nóg bensín og rafmagn á henni,“ segir Ómar Ragnarsson fréttamaður, í samtali við mbl.is en hann þurfti að nauðlenda við Sultartangalón. Meira »

Sólrík Akureyri á þjóðhátíð

Veðrið lék við Akureyringa og gesti þeirra í dag. Unga fólkið skemmti sér vel í ...
Í gær, 23:20 Þjóðhátíðardagurinn var sólríkur og fagur í höfuðstað Norðurlands. Stúdentar voru brautskráðir frá Menntaskólanum á Akureyri að vanda - 149 að þessu sinni - og settu svip á bæinn, sem og gamlir stúdentar sem fjölmenna jafnan til bæjarins til að fagna. Skátafélagið Klakkur sá um hátíðahöld dagsins, sem fóru afar vel fram. Meira »

Kátir krakkar með sleikjósnuð

Margir sóttu sautjánda júní hátíðahöld í Reykjavík.
Í gær, 23:02 Margt var um manninn í miðbænum í dag til að fagna þjóðhátíðardegi Íslendinga. Veðrið var milt í miðbænum en sólin lét ekkert sjá sig og fannst mörgum fremur kalt og rigningalegt. Það var þó kátt yfir fólki sem sótti hátíðardagskrána og mátti sjá mörg glöð andlit með gasblöðru eða sleikjósnuð. Meira »

Sjaldgæfir gestir hér við land

Rostungurinn sem liggur á ströndinni í Reyðarfirði.
Í gær, 22:46 „Þetta gæti verið ungur brimill eða urta því höggtennurnar verða oft mun stærri þegar um er að ræða fullvaxta brimla,“ segir Erlingur Hauksson sjávarlíffræðingur um rostunginn sem sást á Reyðarfirði fyrr í dag. Meira »

Brotlending við Sultartangalón

TF-TAL hafnaði á hvolfi.
Í gær, 22:19 Lítil flugvél af gerðinni Cessna, TF-TAL, þurfti að nauðlenda við Sultartangalón fyrr í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarnefnd samgönguslysa þurfti vélin að lenda vegna vélarvandræða. Meira »

Hlaut minniháttar brunasár

Í gær, 21:32 Barn sem brenndist á veitingastað á Geirsgötu í Reykjavík hefur verið útskrifað af sjúkrahúsi. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni hlaut barnið minni háttar brunasár eftir að heit súpa helltist yfir það. Meira »

Retro Stefson tryllti lýðinn

Retro Stefson vakti mikla lukku á Arnarhóli í dag.
Í gær, 20:29 Hljómsveitin Retro Stefson var á meðal þeirra sem stigu á svið við Arnarhól í dag en þar voru haldnir tónleikar í tilefni þjóðhátíðardagsins. Hljómsveitirnar Dr. Gunni og vinir hans, Ojba Rasta og Samúel Jón Samúelsson Big Band komu einnig fram. Meira »

Eins og að róa daglega til fiskjar

Hjörtur Gíslason hefur skrifað um sjávarútvegsmál í nær þrjá áratugi og stýrir nú netmiðlinum kvotinn.is.
Í gær, 21:44 „Þetta er heilmikil breyting, öðruvísi vinnubrögð, en ég skrifaði reyndar svolítið á netið á gamla, góða tímanum á Mogganum,“ segir Hjörtur Gíslason, fyrrverandi vinnufélagi á Morgunblaðinu í áratugi og nú ritstjóri kvotinn.is, vefmiðils um sjávarútvegsmál undir framkvæmdastjórn Ólafs M. Jóhannessonar. Meira »

Álftin á Hrísatjörn komin með unga

Í gær, 21:25 Álftin sem á sínum tíma missti egg úr sér á ísilagða Hrísatjörn í friðlandi Svarfdæla við Dalvík er komin með unga. Haukur Snorrason, sem fylgst hefur með álftinni, náði myndum af henni og ungunum. Meira »

Mikið spólað á götum á Akureyri

Gríðarlega mikil hjólför eru á götum Akureyrar.
Í gær, 19:02 Það fer ekki á milli mála að um helgina voru haldnir bíladagar á Akureyri. Götur bæjarins bera þess margar merki að fjölmargir bílar hafi verið í bænum um helgina og eru hjólförin eftir þá gríðarlega áberandi. Meira »
Landferðir keyra alla hópa
Endilega kíktu á heimasíðu landferða, www.landferdir.is Hægt er fá tilboð í fer...
www.tjaldvagnaleiga.is
Til leigu tjaldvagnar og fellihýsi, sjá www.tjaldvagnaleiga.is eða hr. í s. 8481...
KAUPUM GULL
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfurborðb...
BÍLSKÚR / GEYMSLUHÚSNÆÐI
TIL LEIGU UM 30 FERM BÍLSKÚR / GEYMSLUHÚSNÆÐI Á LOKUÐU OG VÖKTUÐU SVÆÐI. HITI, V...
 
Bílar ríkiskaup
Tilboð - útboð
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...
Sviðsstjóri reksturs og þjónustu
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Bókaveisla

Bókaveisla Hin landsfræga og margrómaða...
Laugardagur
Félagsstarf
Laugardaginn 15. jún...