Sagði að Jóhanna ætti að segja af sér

Einar K. Guðfinnsson.

Einar K. Guðfinnsson.

Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á Alþingi í dag að í öllum eðlilegum lýðræðisríkjum væri forsætisráðherra búinn að segja af sér embætti eftir að hafa viðurkennt að að mál sem hann hefði lagt fram á þingi stæðist ekki stjórnarskrá.

Þar vísaði Einar til þeirra ummæla Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í vikunni að þingsályktunartillaga hennar um breytingar á stjórnarráði Íslands kynni að vera í ósamræmi við stjórnarskrá lýðveldisins en þar er kveðið á um að það sé forseti sem ákveði tölu ráðuneyti og verkaskiptingu þeirra en ekki Alþingi eða ráðherrar.

Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokksins, tók einnig til máls og minnti á að alþingismenn hefðu svarið eið að stjórnarskránni. Hann tók undir orð Einars um að forsætisráðherra væri varla stætt vegna málsins.

Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sagði það hafa verið stjórnskipulega hefð á Íslandi í áratugi að gerðar væru breytingar á stjórnarráðinu með þeim hætti sem nú stæði til að gera.

Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hvaða tilgangur væri með því að setja nýja stjórnarskrá ef það ætti ekkert að fara eftir stjórnarskránni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

19. júní á rafrænu formi

19. júní ársrit Kvenréttindafélags Íslands.
Í gær, 23:57 Ársrit Kvenréttindafélags Íslands, 19. júní, kom út í dag að vanda en það er með elstu tímaritum hér á landi og kom fyrst út árið 1951. Að þessu sinni varð hins vegar sú breyting á að tímaritið kom út á rafrænu formi en ekki sem hefðbundið blað. Meira »

Safna fyrir útför ungs drengs

Hólskirkja í Bolungarvík.
Í gær, 23:42 „Sagt er að það þurfi heilt bæjarfélag til að ala upp barn. Öll börn okkar litla samfélags eru á einn eða annan hátt, okkar börn. Nú höfum við orðið fyrir þeim hræðilega harmleik að þurfa að sjá á eftir einum okkar dýrmæta syni, Ísaki Inga Guðbjartssyni sem lést í liðinni viku.“ Meira »

Blómsveigur á leiði Bríetar

Blómsveigur lagður á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í dag.
Í gær, 22:49 Kvenréttindafélag Íslands lagði blómsveig að leiði baráttukonunnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í dag í tilefni af kvenréttindadeginum. Gengið var fylktu liði frá Ráðhúsi Reykjavíkur að leiði Bríetar í Hólavallakirkjugarði þar sem flutt voru ávörp og flutt tónlistaratriði. Meira »

„Sumarið er komið fyrir löngu“

Kristín Hermannsdóttir er hætt sem veðurfræðingur
Í gær, 22:45 „Sumarið er komið fyrir löngu,“ segir Kristín Hermannsdóttir veðurfræðingur en margir landsmenn hafa látið veðrið trufla sig að undanförnu og lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir sumrinu um helgina. Meira »

Heyskapur víða að komast í gang

Í gær, 22:17 Bændur huga margir að heyskap um þessar mundir en ástand túna er æði misjafnt eins og komið hefur fram undanfarið.  Meira »

Heit umræða um hjálmaskyldu

Þessi hjólreiðamaður sá ekki ástæðu til að nota hjálm.
Í gær, 21:42 Evrópusamband hjólreiðamanna leggst gegn hjálmaskyldu og segir að hún dragi úr hjólreiðum og að með henni sé ranglega gefið í skyn að hjólreiðar séu hættulegar. Allt eins mætti skylda gangandi vegfarendur eða þá sem aka um í bílum til að vera með hjálma. Heit umræða er um málið í Evrópu. Meira »

Kvennamessa við Þvottalaugarnar

Frá Kvennamessunni í dag.
Í gær, 22:31 Kvennakirkjan stóð fyrir árlegri Kvennamessu við Þvottalaugarnar í Laugardal í kvöld í tilefni af kvenréttindadeginum í samvinnu við Kvenréttindafélag Íslands og Kvenfélagasamband Íslands. Meira »

Sigmundur lét skila bíl Jóhönnu

Jóhanna Sigurðardóttir í Benz bifreiðinni á Bessastöðum.
Í gær, 21:55 Forsætisráðuneytið hefur skilað ráðherrabíl sem Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, lét panta skömmu áður en hún lét af embætti. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, ekur því um á bifreið sem keypt var í forsætisráðherratíð Halldórs Ásgrímssonar, árið 2004. Meira »

Selja hjólin sem gengu af

Mun fleiri hjól söfnuðust í ár en á síðasta ári.
Í gær, 21:38 Hjólasöfnun Barnaheilla - Save the Children á Íslandi gekk vonum framar og bárust 670 hjól frá því hún hófst í byrjun maí. Rúmlega 150 börn nutu góðs af söfnuninni og hafa þegar fengið afhent hjól. En þar sem hjól ganga af hefur verið ákveðið að selja þau á sanngjörnu verði. Meira »

Nafn mannsins sem féll í Hjaltadalsá

Í gær, 20:50 Maðurinn sem féll í Hjaltadalsá í Skagafirði þriðjudaginn 11. júní síðastliðinn hét Jón Ólafsson, til heimilis að Kárastöðum í Hegranesi í Skagafirði. Jón var 69 ára að aldri, fæddur 21. maí 1944. Hann var ókvæntur og barnlaus. Meira »

Hætti við kynleiðréttingu

Halldóra Theódórsdóttir hætti við kynleiðréttingu í miðju ferli.
Í gær, 20:47 „Ég iðrast þess ef þetta verður til þess að einhverjir horfi á mig og noti það kannski til að efast um annað transfólk,“ segir Halldóra Theódórsdóttir. Hún hóf kynleiðréttingu fyrir nokkru en hætti við síðastliðið haust. Meira »

Keimur af gamaldags viðhorfum

Dómarar í Hæstarétti
Í gær, 20:31 „Ég er mjög undrandi á niðurstöðunni og átti alls ekki von á henni. Einnig að þeir skuli endurmeta sönnunarfærsluna með þessum hætti í stað þess að ómerkja dóminn,“ segir Margrét Gunnlaugsdóttir, réttargæslumaður ungrar konu sem kærði tvo menn fyrir nauðgun. Þeir voru sýknaðir í Hæstarétti í dag. Meira »

Forseti ÍSÍ bráðkvaddur

Ólafur Eðvarð Rafnsson.
Í gær, 19:58 Ólafur Eðvarð Rafnsson, forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands og forseti FIBA Europe, er látinn fimmtugur að aldri en hann var bráðkvaddur í Sviss fyrr í dag þar sem hann sótti fund miðstjórnar FIBA World. Meira »

Guðni Páll hefur safnað 4 milljónum myndskeið

kajagnarr
Í gær, 18:20 Hópur fólks hélt í Ráðhús Reykjavíkur í dag til að vekja athygli á verkefni Guðna Páls Viktorssonar sem fer nú umhverfis landið á kajak til styrktar Samhjálp. Jón Gnarr borgarstjóri tók á móti hópnum en Guðni Páll hefur safnað tæpum fjórum milljónum til þessa en betur má ef duga skal. Meira »

Takmörkunum á neyslu vatns aflétt

Í gær, 18:07 Takmörkunum sem voru á neyslu vatns úr Garðsvíkurvatnsbóli Svalbarðsstrandarveitu í Svalbarðsstrandarhreppi án þess að það væri fyrst soðið hefur verið aflétt samkvæmt tilkynningu frá Norðurorku. Meira »

200 hjóla í WOW Cyclothon myndskeið

wow_mbl
Í gær, 18:32 Hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon hófst við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu klukkan 18.00 í dag en í keppninni, sem er alþjóðleg, er hjólað hringinn í kringum Ísland í boðsveitum. Þetta er annað árið í röð sem keppnin fer fram. Meira »

Enginn með allar tölur réttar

Í gær, 18:18 Enginn reyndist með allar tölurnar réttar í Víkingalottói kvöldsins en fyrsti vinningur var að þessu sinni 532.407.220 krónur Enginn hlaut heldur annan vinning, fimm af sex tölum réttar auk bónustölu. Meira »

Stelpur forrituðu á kvenréttindadaginn

Í gær, 17:31 „Stelpurnar eru snillingar og standa sig ótrúlega vel,“ segir Erla María Tölgyes, starfsmaður Skema. Í dag sóttu 20 stelpur á aldrinum 10 til 13 ára forritunarnámskeið á vegum fyrirtækisins þar sem þær lærðu meðal annars að forrita tölvuleiki. Námskeiðið fór fram í Háskólanum í Reykjavík. Meira »
Húsbíll til sölu
FORD LMC dísel árg. 5/2009 ek. 20 þ. km. 6 farþ., reiðhjólagrind, markisa o.fl. ...
Trúlofunar- og giftingarhringar í úrvali
Auk gullhringa eigum við m.a. titanium og tungstenpör á fínu verði. Sérsmíði, fr...
Ecco lítið notaðir natural rússkinsskór stærð 38
Flottir skór sem eru mikið í tísku núna, natural hlutlaus litur, rússkin, stærð ...
SUMARHÚS - TILBOÐ
Vinaminni 1 - 2,7 fm. Verð áður 169.000. Verð nú 139.750. Morava A - 5,3 fm. Ve...
 
Bílar ríkiskaup

Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Upplýsingafulltrúi
Augl-/almannatengsl
Upplýsingafulltrúi Helstu verkefni:...
Deildarstjóri óskast
Stjórnunarstörf
Reykjavíkurborg Umverfis- og skipulagss...