Fréttaskýring: Hótel þegar víða fullbókuð á álagstímum

Hótelið í Flatey
Hótelið í Flatey mbl.is/Golli

Bókanir á gistirými eru orðnar fleiri nú en á sama tíma í fyrra, að sögn markaðsstjóra hótela. Nú þegar er uppbókað á sumum hótelum á mesta álagstímanum í sumar. Bókunarmynstrið hefur breyst frá því sem áður var. Nú ber meira á því að fólk ferðist á eigin vegum fremur en í hópferðum og það bókar gistingu með skemmri fyrirvara en áður.

Meira bókað en í fyrra

„Þetta lítur bara vel út,“ sagði Aðalheiður E. Ásmundsdóttir, markaðsstjóri Reykjavík Hotels, um bókanir á komandi sumri. Keðjan rekur þrjú hótel í höfuðborginni. Aðalheiður sagði bókanir vera fleiri en í fyrra og taldi það eiga almennt við hjá hótelunum, enda sé það eðlileg afleiðing fjölgunar ferðamanna.

Hún sagði breytingu hafa orðið á bókunum gistirýmis. „Ferðamenn virðast bóka með miklu skemmri fyrirvara en áður,“ sagði Aðalheiður.

Full bjartsýni

„Mér líst mjög vel á sumarið,“ sagði Hrönn Guðmundsdóttir, markaðsstjóri Fosshótela. Hótelin eru níu talsins, þar af tvö í Reykjavík. Hún sagði útlit fyrir betri nýtingu gistirýmis nú en í fyrra. „Landsbyggðin kemur mjög vel út og Reykjavík hefur verið mjög góð það sem af er ári. Það er töluverð aukning á mörgum stöðum á landinu. Við getum ekki annað en verið full bjartsýni,“ sagði Hrönn. Nokkur hótel eru þegar fullbókuð í júlí og útlit fyrir góða aðsókn í ágúst og fram í september.

Hrönn sagði ljóst að framboð á flugferðum og verð skipti miklu fyrir bókanir. „Við fögnum fleiri flugferðum og lægra verði á flugi til landsins,“ sagði Hrönn. Hún sagði flesta erlendu gestina koma frá Bretlandi, Bandaríkjunum, Þýskalandi og Norðurlöndunum. Þá er gestum frá Asíu, m.a. frá Japan og Kína, einnig að fjölga.

Hrönn sagði það vera til skoðunar að opna nýtt Fosshótel í gömlu Fiskiðjunni í Vestmannaeyjum. Fosshótel gerðu tilboð í þrjár efstu hæðir hússins með ýmsum fyrirvörum. Vestmannaeyjabær tók tilboðinu, að sögn Eyjafrétta.is.

„Horfurnar eru góðar en við erum alltaf hóflega bjartsýn þar til allt er komið í hús,“ sagði Hildur Ómarsdóttir, markaðsstjóri Icelandair Hotels. „Sumarið leggst vel í mig. Það er hvergi farið að gjósa!“

Álagstíminn í gistingu er nú frá miðjum júní og alveg fram í september. Þjóðverjar koma mikið fyrri hluta sumars og fara í hringferðir. Þegar líður á sumarið fjölgar ferðamönnum frá Suður-Evrópu. Bandaríkjamenn eru tíðir gestir og Bretar koma mikið í stuttar borgarferðir að vetri til.

Handboltamót slegið af

„Ég ætlaði að halda alþjóðlegt handboltamót í ágúst og var búinn að fá tvö erlend lið og ætlaði að fá það þriðja. Þetta leit allt vel út þar til kom í ljós að það var vonlaust að fá ódýra gistingu,“ sagði Stefán Arnarson, handboltaþjálfari Vals.

Hann sagði um 20 manns vera í hverjum liðshópi og því hefði vantað gistingu fyrir um 60 manns. Stefán segir að forsenda svona móts sé að fá ódýra gistingu. Eftir könnun á framboði á ódýru gistirými komst hann að því að það var mögulegt að fá gistingu á Suðurnesjum en ekkert á höfuðborgarsvæðinu.

Stefán sagði að með gistingu fjarri höfuðborginni hefði ferðakostnaður orðið of hár. Mótið var því slegið af.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert