Fleiri hlynntir sumarlokun

63,3% Reykvíkinga eru hlynnt eða frekar hlynnt því að hluta Laugavegar verði breytt í göngugötu sumarið 2012.

Þetta kemur fram í netkönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar.  

Spurningin var svohljóðandi: Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að hluti Laugavegar verði gerður að göngugötu í sumar?

26,6% svarenda voru alfarið hlynnt sumarlokun, 18,1% var mjög hlynnt og 18,6% frekar hlynnt sumarlokun.  20,6% eru andvíg sumarlokunum, 7,2% voru alfarið andvíg, 3,7% mjög andvíg og 9,7% frekar andvíg.  16,1% svaraði hvorki/né.

„Athygli vekur að stuðningur við sumarlokun er mestur á meðal þeirra sem gefa upp hæstu tekjurnar. Þannig svara 33% í hópnum sem hefur fjölskyldutekjur á bilinu 800 – 999 þúsund á mánuði því til að þau séu alfarið hlynnt hugmyndinni og 27% þeirra  sem hafa fjölskyldutekjur milljón eða hærri.

Afgerandi stuðningur er einnig við hugmyndina á meðal fólks á aldrinum 18 – 54. Til dæmis er 41% á aldrinum 25 – 34 ára alfarið hlynnt sumarlokun,“ segir í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Úrtakið var 1066 manns í öllum hverfum Reykjavíkur, 18 ára og eldri. Fjöldi svarenda var 664 eða 62,3%.

Þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar eftir hverfum kemur í ljós mjög afgerandi stuðningur við sumarlokun í þeim hverfum sem eru næst Laugavegi. Þannig eru 36% íbúa í Mið- og Vesturbæ alfarið hlynnt sumarlokun og 37% íbúa í Hlíðum og Laugardal. Í öðrum hverfum er einnig meirihluti svarenda  hlynntur því að breyta Laugavegi að hluta til í göngugötu í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert