Full ástæða fyrir málarekstrinum

Björn Valur Gíslason stækka

Björn Valur Gíslason mbl.is/Ómar Óskarsson

Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, segir dóm landsdóms yfir Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, sýna að full ástæða hafi verið fyrir málarekstrinum af hálfu Alþingis, og um það verði ekki frekar deilt.

Í pistli á vefsvæði sínu segir Björn Valur dóminn undirstrika það, að full ástæða var til þess af hálfu Alþingis að höfða málið. „Dómurinn hlýtur að vera áfall fyrir þá sem reyndu með öllum ráðum að koma í veg fyrir að Landsdómur lyki störfum sínum. Niðurstaða dómsins sýnir að það hefði verið kolröng ákvörðun.“

Þá bendir Björn Valur á að landsdómur hafi komist að þeirri niðurstöðu að Geir hafi brotið af sér með því að halda ekki ráðherrafundi um mikilvæg stjórnarmálefni. „Þar með má líka segja að þeir ráðherrar sem hefðu átt að hafa upplýsingar um stöðu mála í aðdraganda Hrunsins en höfðu ekki vegna þess að Geir uppfyllti ekki skyldur sínar, séu þar með fríir af þeim málum.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

160 taktmælar komnir í hús myndskeið

midsummer
20:15 „Við erum eiginlega komin í hálfgerð vandræði,“ segir Víkingur Heiðar Ólafsson, listrænn stjórnandi Reykjavík Midsummer Music, sem hefst á morgun. Hann óskaði eftir að fá 100 gamaldags taktmæla lánaða hjá þjóðinni, viðbrögðin voru slík að um 160 slíkir höfðu skilað sér í hús um hádegisbil í dag. Meira »

Kann að kosta Ísland þúsund störf

19:34 Þýska Bertelsmann-stofnunin telur að náist fríverslunarsamningar á milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna kunni það að leiða til fjölda nýrra starfa í ríkjum sambandsins og Bandaríkjanna sem og launahækkunar. Meira »

Margir syntu Fossvogssund

Lagt af stað yfir voginn.
18:33 Hið árlega Fossvogssund fór fram í golu og lítilsháttar rigningu í dag. Synt var frá Nauthólsvík og yfir voginn til Kópavogs. Sjósunds- og sjóbaðsfélag Reykjavíkur stóð fyrir sundinu fjórða árið í röð, en sjósund er að sögn Ragnheiðar Valgarðsdóttur, formanns félagsins, gott fyrir líkama og sál. Meira »

Veikar reglur og spillt stjórnvöld

David. O. Friedrich
18:09 „Íslendingar eru líkast til móttækilegastir allra þjóða fyrir þeirri fullyrðingu að eina birtingarmynd skipulagðrar glæpastarfsemi megi finna í bönkum,“ sagði David O. Friedrichs, prófessor í félags- og afbrotafræði við Scranton-háskóla í Pennsylvaníu, á hádegisfyrirlestri í Háskóla Íslands í dag. Meira »

Fyrsta langreyðurin komin til hafnar

Kristján Loftsson,framkvæmdastjóri Hvals hf., ásamt langreyðinni sem var veidd vestur af landinu í gær.
16:17 „Hann lítur bara vel út,“ sagði Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf., en hvalveiðiskipið Hvalur 8 lagðist að bryggju við Hvalstöðina í Hvalfirðinum um fjögur í dag með fyrsta stórhvalinn sem veiddur var á þessari vertíð. Langreyðurin var 63 feta tarfur og var veidd vestur af landinu í gær Meira »

Caritas samþykkt en Lady hafnað

16:12 Mannanafnanefnd hefur samþykkt níu nöfn í tveimur úrskurðum sem voru kveðnir upp dagana 6. júní og 16. maí sl., m.a. eiginnöfnin Caritas, Addú og Þollý og millinafnið Logn. Eina nafnið sem nefndin hafnar að þessu sinni er eiginnafnið Lady. Meira »

„Ekki seinna vænna eftir 30 ár“

Skjáskot af vef Alþingis.
17:24 „Ég hef bara gaman af því að spreyta mig á þessu. Það voru nú einhverjir að segja að það væri ekki seinna vænna eftir 30 ár á þingi að setjast í forsetastól. Þannig að ég hef bara gaman af því eins og öllu öðru. Þetta er enn eitt hlutverkið sem ég hef þá prófað hér á langri þingsetu.“ Meira »

Ferð Herjólfs fellur niður

16:12 Vegna ölduhæðar (2,8 m) í Landeyjahöfn fellur næsta ferð Herjólfs niður frá Vestmannaeyjum kl. 17:30 og frá Landeyjahöfn kl. 19:00. Meira »

Sigmundur fundar með Reinfeldt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
15:46 Forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, á fund með Frederik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, á morgun, 19. júní. Meira »

Hundar notaðir í lestrarþjálfun barna

15:41 Samtökin Vigdís – Vinir gæludýra á Íslandi verða stofnuð á morgun og er fyrsta verkefni þeirra að koma á fót hér á landi lestrarverkefni þar sem hundar eru í aðalhlutverki. Meira »

Velferðin grundvallast á hagvexti

Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra.
15:38 Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag að fyrst og fremst þyrfti ný störf til að skapa hagvöxt til að loka fjárlagagatinu. Þetta sagði Bjarni við fyrirspurn Árna Páls Árnasonar, formanns Samfylkingarinnar. Meira »

Gatnamót Sæbrautar-Holtavegs lokuð

15:37 Í kvöld er stefnt að því að malbika gatnamót Sæbrautar-Holtavegs og Sæbraut til suðurs. Vinnan hefst rétt norðan við gatnamót Sægarða og Sæbrautar og endar við gatnamót Sæbrautar og Holtavegs. Meira »

Sjö knapar komnir í landsliðið

Eyjólfur Þorsteinsson, Rúna Einarsdóttir, Hafliði Halldórsson, Jakob S. Sigurðsson, Viðar Ingólfsson, Hinrik Bragason, Teitur Árnason, ...
15:28 Sjö knapar tryggðu sér þátttökurétt á Heimsleikum íslenska hestsins í Berlín í ágúst á úrtökumóti sem lauk um helgina. Mótið gekk vel eftir að því var frestað og flutt á annan völl. Liðið er ekki fullskipað og á enn eftir að velja tvö ungmenni og þrjá fullorðna. Meira »

Kvöddu veturinn með skíðamóti

14:59 Nokkrir Akureyringar fögnuðu þjóðhátíðardegi Íslendinga á heldur óvenjulegan hátt í gær. Rúmlega fjörutíu manns komu saman í Hlíðarfjalli á gönguskíðamóti skíðafélags Akureyrar og gengu saman 7,5 kílómetra. Meira »

400 milljarða uppsafnaður ríkissjóðshalli

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
14:25 Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði á Alþingi í dag, að samtals væri uppsafnaður halli á ríkissjóði um 400 milljarðar frá árinu 2009. Enn virtist sú staða blasa við, að fjárlög fyrir yfirstandandi ár hefðu verið afgreidd með of mikilli bjartsýni. Meira »

Lögreglan óskar upplýsinga um ökumenn

15:21 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af ökumanni jeppabifreiðar með eftirvagn sem hugðist hleypa fólki á hestum yfir Vatnsendaveg fimmtudaginn 13. júní er annarri grárri fólksbifreið var ekið fram úr jeppanum við gangbraut til móts við hesthúsahverfið. Meira »

Fara vel yfir mál kynbótadómarans

Opið bréf var sent Fagráði í hrossarækt undirriað af fjórum aðilum sem komu við sögu, ...
14:34 „Við munum fara vandalega yfir þetta mál. Við þurfum að komast til botns í því hvort eitthvað hafi verið gert í dómum eða dómstörfum sem ekki er í lagi,“ segir Kristinn Guðnason, formaður Fagráðs hrossaræktar. Opið bréf var sent Fagráðinu eftir að kynbótadómari úttalaði sig við dómstörf. Meira »

Í launalausu leyfi frá þingstörfum

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
14:16 Sigríður Á. Andersen hefur tekið sæti á Alþingi í fjarveru Guðlaugs Þórs Guðlaugssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Að sögn Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins, er Guðlaugur staddur erlendis ásamt fjölskyldu sinni. Meira »
Hyundai Tucson árg. 2008 stgr:1620 þ.kr.
Þægilegur jepplingur með krók, verð 2300 þ.kr til sölu á 1620 þ.kr. staðgr, 2,7l...
Toyota Rav 4x4, árg. 2004
Til sölu Toyota Rav 4x4 árg. 2004. Fallegur og vel með farinn bíll ekinn aðeins ...
SUMARHÚS
Sumarhús - Gestahús - Breytingar O  Framleiðum stórgl...
Ariston þurrkari
Ariston þurrkari 5 ára, lítið notaður. Uppl. 8621289...
 
Davíð stefánsson - ljóðabréf til sölu

Davíð Stefánsson Til sölu handskrifað l...
Starfsmaður óskast í 50% starf
Skrifstofustörf
Dýraverndarsamband Íslands leitar að st...
Samkoma alþjóðakirkjan
Félagsstarf
Kl. 11.00. Samkoma. Ræðumaður...
Útboð tæming rotþróa

Útboð Sveitarfélagið Borgarbyggð óska...