Sakfelldur fyrir eitt ákæruatriði

Andri Árnason verjandi og Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. stækka

Andri Árnason verjandi og Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Landsdómur sýknaði í dag Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, af þremur ákæruatriðum af fjórum. Geir var sakfelldur fyrir eitt ákæruatriðið. Honum er ekki gerð refsing í málinu.

Geir var ákærður fyrir fjögur tiltekin ákæruatriði sem varða störf hans sem forsætisráðherra á tímabilinu febrúar 2008 til byrjun október sama ár. Í fyrsta lagi að hafa vanrækt að fylgjast með að störf starfshóps um fjármálastöðugleika væru nægjanlega markviss. Í öðru lagi að hafa ekki átt frumkvæði að því að bankakerfið yrði minnkað. Í þriðja lagi að fullvissa sig ekki um að unnið væri að því að færa Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi yfir í dótturfélag. Í fjórða lagi að hafa ekki haldið ráðherrafundi um mikilvæg stjórnarmálefni.

Það atriði sem Geir er dæmdur fyrir er síðasta atriði ákærunnar, að hafa ekki haldið ráðherrafundi um mikilvæg stjórnarmálefni.

Fimmtán dómarar sitja í Landsdómi. Níu dómarar mynda meirihluta í málinu, en þeir eru Markús Sigurbjörnsson, Brynhildur Flóvenz, Eggert Óskarsson, Eiríkur Tómasson, Hlöðver Kjartansson, Ingibjörg Benediktsdóttir, Magnús Reynir Guðmundsson, Viðar Már Matthíasson og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.

Fimm dómarar, Ástríður Grímsdóttir, Benedikt Bogason, Fannar Jónasson, Garðar Gíslason og Linda Rós Mikaelsdóttir, skiluðu sératkvæði. Þau töldu að sýkna ætti Geir af öllum ákæruatriðum, en færðu fyrir því ekki sömu rök og hinir dómararnir.

Sigrún Magnúsdóttir lýsti sig í sératkvæði sammála forsendu meirihlutans um forsendur og niðurstöður fyrstu þriggja ákæruliðanna, en sammála minnihlutanum um síðasta ákæruliðinn. Hún vildi því einnig að Geir yrði sýknaður af öllum ákærum.

Samkvæmt dómnum er allur sakarkostnaður í málinu greiddur úr ríkissjóði, þar með talinn málsvarnarlaun verjanda Geirs.

Dómurinn er 415 blaðsíður þar sem farið er í gegnum ákæruatriðin, yfirheyrslur, málsskjöl og rök saksóknara og verjanda.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Helstu leiðir landsins greiðfærar

09:01 Snjóþekja er á Holtavörðuheiði, Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum og í Súgandafirði en annars eru allar helstu leiðir á landinu greiðfærar samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Meira »

Lögreglan lýsir eftir 16 ára pilti

Aron Geir Ragnarsson.
07:18 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 16 ára pilti, Aroni Geir Ragnarssyni. Talið er að hann sé klæddur í bláa úlpu , ljósbláar gallabuxur, grænan stuttermabol og sé í bláum og svörtum strigaskóm samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni. Meira »

Sofnaði og ók á kyrrstæða bíla

07:10 Ekið var á kyrrstæðar bifreiðar við Hringbraut í Reykjavík um klukkan fjögur í nótt samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ökumaðurinn, kona á fertugsaldri, mun hafa sofnað undir stýri. Meira »

Vorhátíð í Vesturbæjarskóla

Nemendur í Vesturbæjarskóla og foreldrar ganga upp Framnesvegin í skrúðgöngu vorhátíðar Vesturbæjarskóla 25. maí.
01:56 Vorhátíð Vesturbæjarskóla var haldin með pomp og pragt á laugardag. Hátíðin hófst að venju á skrúðgöngu. Löng biðröð var við ógnvekjandi draugahús, sem nemendur í sjöunda bekk áttu heiðurinn að, dansflokkurinn Area of Stylez kom fram og nemendur í sjötta bekk sáu um veitingasölu. Meira »

Þrír vélhjólamenn á sjúkrahús

Í gær, 20:03 Þrír vélhjólamenn hafa verið fluttir á sjúkrahús í dag samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum en allir munu þeir hafa verið þátttakendur í mótorkrosskeppni sem fram hefur farið í nágrenni Kirkjubæjarklausturs í gær og í dag. Meira »

Fjör á Grafarvogsdeginum

Frá Grafarvogsdeginum í dag.
Í gær, 19:30 Grafarvogsdagurinn var haldinn hátíðlegur í dag í Grafarvoginum í Reykjavík og var eins og áður boðið upp á fjölbreytta dagskrá sem sniðin var með það í huga að fjölskyldan gæti átt góðan dag saman. Meira »

Tveir með allar tölur réttar

Í gær, 20:07 Tveir voru með allar tölur réttar í Lottói kvöldsins og fá þeir samtals 15.840.220 krónur í sinn hlut. Einn var hins vegar með fjórar tölur réttar auk bónustölunnar og fær hann fyrir vikið 438.230 krónur. Meira »

Sæta ekki ofsóknum í Króatíu

Í gær, 19:47 Fullrannsakað er að hópur fólks sem Útlendingastofnun hefur ákveðið að senda aftur til Króatíu sæti ekki ofsóknum þar í landi. Þetta sagði Kristín Völundardóttir, forstjóri stofnunarinnar, í kvöldfréttum RÚV. Meira »

Hlutu bronsverðlaun í fimleikum

Stúlknalandsliðið. Fv. Gyða Einarsdóttir, Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir, Nanna Guðmundsdóttir, Lilja Björk Ólafsdóttir, Steinunn Anna Svansdóttir ...
Í gær, 18:34 Íslenska stúlknalandsliðið í fimleikum hlaut í dag bronsverðlaun í sveitakeppni á Norðurlandamóti unglinga í áhaldafimleikum. Einnig keppa tveir Íslendingar keppa til úrslita á morgun, þau Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir og Valgarð Reinharðsson. Mótið fer fram í Elverum í Noregi. Meira »

Óðu snjóinn á leiðinni á völlinn

Leikmenn KF og KA óðu snjóinn í dag.
Í gær, 17:41 Það var ekki beinlínis sumarlegt þegar leikmenn knattspyrnuliðanna KA og KF skokkuðu út á völlinn fyrir leik sinn í fyrstu deildinni í dag. Þó að langt sé liðið á maímánuð og sumarið hafi litið dagsins ljós á dagatölunum, má enn víða sjá hvíta jörð á Ólafsfirði þar sem leikurinn fór fram. Meira »

„Fögnum og endurnýjum kynnin“ myndskeið

landsbjorg
Í gær, 17:29 „Þetta var frábært þing og gríðarlega góð mæting alls staðar að af landinu. Það voru yfir 600 manns sem voru skráðir á þingið og þar fór fram mjög málefnaleg og góð umræða um helstu áherslur og málefni félagsins.“ Meira »

Ræktun stöðvuð í heimahúsi

Úr myndasafni.
Í gær, 17:13 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag kannabisræktun í heimahúsi við Heiðarás í Reykjavík í kjölfar húsleitar en þar voru um eitt hundrað kannabisplötur í ræktun. Meira »

Skólameistari lætur af störfum

Einar Birgir Steinþórsson, fráfarandi skólameistari Flensborgarskóla ásamt Magnúsi Þorkelssyni, aðstoðarskólameistara skólans.
Í gær, 15:48 Einar Birgir Steinþórsson, skólameistari Flensborgarskóla, hefur ákveðið að láta af störfum og starfar því ekki út skipunartíma sinn. Hann segir að mjög sé þrengt af framhaldsskólunum og því fylgi álag að reyna að halda sjó. Meira »

Margir vilja láta mæla gildi sín

Fjölmargir hafa lagt leið sína í SÍBS-húsið til að láta mæla hjá sér blóðþrýsting og ...
Í gær, 14:20 Segja má að fullt sé út úr dyrum í SÍBS-húsinu í Síðumúla þar sem Hjartaheill býður í dag ókeypis mælingar á blóðþrýstingi og öðrum gildum. Sökum þess er nokkur bið eftir mælingum en létt er yfir fólki, að sögn fréttaritara mbl.is á staðnum. Áfram verður boðið upp á mælingar á morgun. Meira »

Þrjú vilja þjóna á Patreksfirði

Patreksfjarðarkirkja
Í gær, 13:32 Þrjú sóttu um embætti prests í 50% starfshlutfalli í Patreksfjarðarprestakalli, Vestfjarðarprófastsdæmi. Frestur til að sækja um rann út 7. maí síðastliðinn og veitist embættið frá 1. júní næstkomandi. Meira »

Vélhjólaslys austur af Klaustri

Í gær, 15:17 Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Landspítalanum í Fossvogi um þrjúleytið með einstakling sem slasaðist í mótorhjólaslysi austan við Kirkjubæjarklaustur samkvæmt upplýsingum frá Gæslunni. Meira »

Breytt viðhorf til alvarlegra vanskila?

Í gær, 14:03 Forstöðumaður fyrirtækjasviðs Creditinfo segir umhugsunarefni að alvarleg vanskil séu að aukast á sama tíma og atvinnuleysi minnkar og kaupmáttur eykst. Hann veltir því fyrir sér hvort greiðsluvilja skuldara skorti eða greiðslugetu. Meira »

Undirbúa minningarmót um Motzfeldt

Kristjana Guðmundsdóttir Motzfeldt, ekkja Jonathans, sem er gestgjafi Hróksliða í Nuuk, og Aleqa Hammond, forsætisráðherra ...
Í gær, 12:58 Liðsmenn Skákfélagins Hróksins hafa undanfarna daga dvalið í Nuuk, höfuðborg Grænlands, til að undirbúa minningarskákmót um Jonathan Motzfeldt, fyrsta forsætisráðherra Grænlands. Meðal annars var fundað í vikunni með forsætisráðherra Grænlands, Alequ Hammond, þar sem hún hét stuðningi sínum. Meira »
Moelv vinnubúðahús - hagstætt verð.
Til sölu Moelv vinnubúðahús (áður í eigu Landsvirkjunar). Húsin eru af ýmsum ger...
3ja DAGA NÁMSKEIÐ FYRIR CANON EOS 27. - 30. MAÍ
Ítarlegt 3ja daga (12 klst.) námskeið fyrir eigendur Canon EOS myndavéla. Farið ...
STIGAR OG HANDRIÐ ALLAR MÖGULEGAR GERÐIR
Sjá: http://www.youtube.com/watch?v=73dIQgOl2JQ&feature=channel Sjá einnig fjöl...
HARMONIKKUHURÐIR - HARMONIKKUHURÐIR
Fást líka með gluggum. Hringdu inn málin, hurðin oftast tilbúin samdægurs. Myn...
 
Icelandair
Önnur störf
KOMDU TIL LIÐS VIÐ OKKUR ÍSLENSK A SIA...
Líú / hagvangur guðrún ennemm
Önnur störf
Landssamband íslenskra útvegsmanna á aði...
Mótasmiðir óskast
Iðnaðarmenn
Mótasmiðir óskast...
Bifreiðauppboð
Nauðungarsala
Sýslumaðurinn í Reykjavík, Skógarhlíð 6...