Lífshættulegur leikur í umferðinni

Lögreglan stöðvaði tvo pilta, 17 og 16 ára, í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Sá eldri ók fólksbíl hratt og ógætilega en sá yngri var á þaki bílsins á meðan því stóð.

Hafi þetta átt að vera einhverskonar leikur þá er sá leikur lífshættulegur, segir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.

Piltunum var fylgt til síns heima og þar var ennfremur rætt við forráðamenn þeirra um alvarleika málsins. Mildi má teljast ekki að hlaust mjög alvarlegt slys eða jafnvel dauði af þessu uppátæki, að sögn lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert