Námsheimild einsdæmi á Íslandi?

Ökukennsla. stækka

Ökukennsla. Júlíus Sigurjónsson

Innanríkisráðuneytið veit ekki til þess að í nokkrum öðrum vestrænum löndum þurfi sambærilega heimild og hér á landi til þess að hefja ökunám. Í reglugerð sem tók gildi í febrúar síðastliðnum var það gert að kröfu að sýslumaður veiti heimildi til ökunáms. Þetta kemur fram í skriflegu svari ráðherra við fyrirspurn þingmanns Framsóknarflokks.

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokks, spurði innanríkisráðherra út í málið. Meðal annar krafðist hann svars um hvaða ákvæði það væri í umferðarlögum sem styddi þá reglu að að til þess að hefja ökunám þurfi heimild frá sýslumanni.

Í svari Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, segir að ráðherra sé heimilt að að setja reglur um ökunám og ökukennslu, m.a. um kröfur sem uppfylla þarf til að öðlast ökuleyfi. Reglum hafi verið breytt þar sem kvartanir höfðu ítrekað borist ráðuneytinu um að ökunemi hafði staðist ökupróf en ekki uppfyllt skilyrði til að öðlast ökuleyfi.„Oftast byggðist það á því að búsetuskilyrði eða læknisfræðilegar ástæður leiddu til þess að viðkomandi uppfyllti ekki kröfur sem settar eru til að öðlast ökuleyfi. Því var ákveðið að kanna þessi atriði áður en viðkomandi hæfi ökunám í stað þess að gera það eftir að ökunámi væri lokið,“ segir í svari ráðherra.

Ráðherrann var einnig spurður um hvort hægt væri að finna íslenska hliðstæðu, þ.e. að leyfi sýslumanns þurfi til að hefja nám í einhverri annarri grein. Um það segir í svari ráðherra, að ekki sé hægt að líkja ökunámi við annað hliðstætt nám, flóknar reglur gildi um heilbrigðis- og búsetukröfur í reglugerð um ökuskírteini, sem ekki sé hægt að ætlast til að sá sem hyggur á ökunám hafi vitneskju um. „Til grundvallar því að sýslumaður gefi út námsheimild liggja sanngirnissjónarmið, þ.e. að ekki sé farið út í dýrt ökunám og síðan komi í ljós að viðkomandi geti ekki öðlast ökuleyfi vegna krafna á grundvelli heilbrigðis eða búsetu.“

Að endingu er ráðherra spurður hvort hægt sé að finna hliðstæðar reglur í öðrum löndum. Í svarinu er áréttað að reglurnar hafi verið settar eftir ítrekaðar kvartanir og tekið skýrt fram að ekki hafi verið yfir þeim kvartað. Ekki sé hins vegar vitað um fyrirkomulag í öðrum vestrænum löndum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Ánægja með áherslu á velferð

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Í gær, 22:11 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, verðandi forsætisráðherra, sagði að ríkisstjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokks hefði verið mjög vel tekið á miðstjórnarfundi í kvöld. Fulltrúar hefðu verið mjög ánægðir með áherslu á velferð til framtíðar og raunverulega verðmætasköpun. Meira »

Engar bragðbættar tóbaksvörur

Neftóbak
Í gær, 22:07 Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) hefur ákveðið að taka ekki að svo stöddu til sölu tóbaksvörur sem hafa einkennandi lyktar- eða bragðefni, önnur en þau sem þegar er hefð fyrir sölu á hérlendis. Meira »

Framsóknarmenn samþykktu líka

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Í gær, 22:06 Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks var samþykkt með dynjandi lófataki á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins sem lauk rétt í þessu. Meira »

Aðildarferlið verður stöðvað strax

Frá fundi flokksráðsins í Valhöll í kvöld.
Í gær, 21:45 Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, segir í samtali við mbl.is að aðildarferlið að Evrópusambandinu verði stöðvað þegar í stað. Nánari útfærsla á því verði hins vegar kynnt á næstunni. Sjálfstæðisflokkur fær í ríkisstjórnarsamstarfinu fimm ráðherra og Framsóknarflokkur fjóra. Meira »

Tillagan samþykkt einróma

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Í gær, 21:17 Tillaga Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um ríkisstjórnarsamstarf við Framsóknarflokkinn byggt á þeim málefnasamningi sem formenn flokkanna hafa samið um að undanförnu var samþykkt einróma á fundi flokksráðs Sjálfstæðisflokksins í Valhöll í kvöld. Meira »

Funda fyrir innan byrgða glugga

Byrgt var fyrir rúður í Rúgrauðgerðinni eftir að fundur miðstjórnar Framsóknarflokksins hófst.
Í gær, 20:57 Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins hófst upp úr klukkan 20.30 en á honum verður fyrirhugað ríkisstjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn rætt. Tekið var á móti Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni flokksins, með dynjandi lófataki þegar hann gekk inn í fundarsalinn í Rúgbrauðsgerðinni. Meira »

Mótmæltu ESB við fundarstaðina

ESB-andstæðingar fyrir framan Valhöll í kvöld.
Í gær, 21:29 Nokkrir andstæðingar inngöngu Íslands í Evrópusambandið hafa tekið sér stöðu bæði fyrir framan Valhöll þar sem flokksráð Sjálfstæðisflokksins fundar um fyrirhugað ríkisstjórnarsamstarf við framsóknarmenn og við Rúgbrauðsgerðina í Borgarholti þar sem miðstjórn Framsóknarflokksins fundar. Meira »

Flokkarnir fá fimm ráðuneyti hvor

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson.
Í gær, 21:05 Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur fá fimm ráðuneyti hvor. Þetta staðhæfir fréttavefurinn Eyjan og segir einnig að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verði forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Ennfremur að velferðarráðuneyti og atvinnuvegaráðuneyti verði aftur skipt upp. Meira »

Þegar veröld barna hrynur

Margir foreldrar í ofbeldissamböndum halda að hægt sé að halda börnum sínum fyrir utan ofbeldið, ...
Í gær, 20:36 „Það getur haft mikil áhrif á börn að verða vitni að ofbeldi inni á heimili, sérstaklega ef um endurtekin atvik er að ræða. Börn eru missterk,“ segir Ragna Björg Guðbrandsdóttir félagsráðgjafi. Hún segir að það komi fyrir að veröld barnanna hrynji þegar þessi atvik koma upp. Meira »

Ók stolnum bíl á ofsahraða

Hraðakstur
Í gær, 20:22 Lögreglan á Selfossi handtók í liðinni viku karlmann í kjölfar þess að bifreið hans mældist á 132 km hraða. Það eitt dugði ekki til handtöku, en þar sem bifreiðin reyndist stolin og maðurinn undir áhrifum vímuefna voru öll skilyrði uppfyllt. Þar að auki hafði maðurinn aldrei öðlast ökuréttindi. Meira »

„Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Í gær, 20:18 „Þetta er mjög alvarleg breyting fyrir hvalveiðifyrirtækin sem eru að róa héðan frá höfuðborgarsvæðinu, þau sem eru í hrefnuveiðunum,“ segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vegna þeirrar ákvörðunar Steingríms J. Sigfússonar, fráfarandi atvinnuvegaráðherra, að gefa úr reglugerð í dag um stækkað griðasvæði hvala í Faxaflóa en reglugerðin tekur gildi á miðnætti. Meira »

Hækka bensín um rúmar 5 krónur

Í gær, 19:17 Stóru olíufélögin þrjú, Olís, Shell og N1, hafa öll hækkað lítrann af bensíni um 5,20 krónur og lítrann af dísilolíu um 4,20 krónur. Meira »

„Tækifæri fyrir flokksfólkið að tjá sig“

Gunnar Thoroddsen fær umboðið frá Kristjáni Eldjárn forseta Íslands 1980.
Í gær, 18:25 Flokksráð Sjálfstæðisflokks og miðstjórn Framsóknarflokks koma saman í kvöld til þess að ræða fyrirhugað ríkisstjórnarsamstarf samkvæmt lögum beggja flokka. Fundirnir eru meðal annars hugsaðir sem tækifæri fyrir kjarnana í flokkunum til þess að koma sínum áherslumálum á framfæri. Meira »

Braut gegn félaga sínum

Héraðsdómur Reykjaness í Hafnarfirði
Í gær, 17:46 Fjölskipaður Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvítugan karlmann í fimmtán mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot. Þá er manninum gert að greiða fórnarlambinu, félaga sínum, 800 þúsund krónur í miskabætur. Meira »

Stal vörum fyrir 30 þúsund krónur

Í gær, 17:27 Tilkynning barst lögreglunni á Suðurnesjum á föstudag þess efnis að þjófur hefði verið á ferð í Hagkaupum í Njarðvík. Starfsmaður öryggisdeildar verslunarinnar tjáði lögreglu að stolið hefði verið vörum að verðmæti samtals um 30 þúsund krónur. Meira »

Stækkar griðasvæði hvala í Faxaflóa

Steingrímur J. Sigfússon, fráfarandi atvinnuvegaráðherra.
Í gær, 17:53 Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra hefur gefið út reglugerð um stækkun griðasvæðis hvala í Faxaflóa sem miðist við Garðskagavita og beina línu að Skógarnesi á Snæfellsnesi. Reglugerðin tekur gildi á miðnætti. Meira »

Styrkja nemendur til framhaldsnáms

Dr. Guðrún Sævarsdóttir, forseti tækni- og verkfræðideildar HR, Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri, Ari K. Jónsson ...
Í gær, 17:28 Jarðhitaháskóli Sameinuðu þjóðanna og Háskólinn í Reykjavík undirrituðu samning á föstudaginn um að Jarðhitaháskólinn styrki nemendur úr Jarðhitaskólanum til meistaranáms við HR. Samningurinn styrkir fyrra samstarf milli HR og Jarðhitaháskólans. Meira »

Vestfjarðavegur í Kjálkafirði opnaður

Í gær, 16:38 Vestfjarðavegur í Kjálkafirði var opnaður klukkan 16.00 í dag eftir skoðun sérfræðinga Vegagerðarinnar og verktakans Suðurverks samkvæmt tilkynningu. Veginum var lokað í fyrradag um óákveðinn tíma vegna hættu á skriðuföllum. Meira »
SUMARHÚS - GESTAHÚS
Sumarhús - Gestahús - Breytingar O  Framleiðum stórgl...
Atvinnuhúsnæði, Strandgata Sandgerði
Til sölu atvinnuhúsnæði tvö bil 278 fm / 138 fm. Hægt að selja þetta í sitthvor...
Málningar- og viðhaldsvinna
Getum bætt við okkur inni- og útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og góð umgengni. T...
Til leigu fellihýsi á Akureyri
Til leigu fellihýsi á Akureyri í sumar. Upplýsingar veitir Sigurlína í síma 8616...
 
Fjárfestir

Fasteignafélag óskar eftir fjárfesti(um)...
Málþing um kjalveg

Málþing um Kjalveg Málþingið „Endurbæ...
Tónlistarkennari
Grunn-/framhaldsskóla
Tónlistarkennari Tónlistarskóli Austur...
15317 rs ut hýsing og rekstrarþjónusta - ríkiskaup

15317 - RS UT Hýsing og rekstrarþj...