Fréttaskýring: Breyti trúfélagslögum í átt til jafnréttis

stækka

mbl.is/Ómar Óskarsson

Morgunblaðið Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is

Yfirlýst markmið þeirra breytinga á lögum um trúfélög sem lagðar eru til í frumvarpi innanríkisráðherra sem nú liggur fyrir Alþingi er að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga og skráðra trúfélaga og að tryggja jafnrétti foreldra barns þegar kemur að því að ákveða hvort og þá til hvaða félags það eigi að tilheyra.

Samkvæmt núverandi fyrirkomulagi eru börn skráð sjálfkrafa í trúfélag móður við fæðingu og hefur það sætt nokkurri gagnrýni í gegnum tíðina. Jafnréttisstofa komst að þeirri niðurstöðu árið 2008 að sú tilhögun að trúfélagsstaða barns færi alfarið eftir móðerni væri tæpast í samræmi við jafnréttislög. Út frá jafnrétti og mannréttindum væri eðlilegra að foreldrar kæmu sér saman um hvaða félagi barnið ætti að tilheyra og skráðu það sjálf.

Ekki er þó gengið svo langt í frumvarpinu að færa ábyrgð á trúfélagsskráningu barna alfarið á hendur foreldra. Í raun er það óbreytt nema þegar um er að ræða foreldra í hjúskap eða skráðri sambúð sem tilheyra ekki sama félaginu. Þau þurfa þá að komast að samkomulagi um skráningu barnsins.

Flókið fyrirkomulag

Alls hafa 15 umsagnir borist við frumvarpið frá trú- og lífsskoðunarfélögum, stofnunum og einstaklingum. Umsögn Karls Sigurbjörnssonar, fráfarandi biskups, er nokkuð harðorð en hann segir breytinguna á skráningum íþyngjandi fyrir trúfélög og ganga gegn hagsmunum barnsins. Hætta sé á að fyrirkomulagið verði flókið í framkvæmd því engin ákvæði séu um hvað gerist ef foreldrar komi sér ekki saman um skráninguna. Leggur hann til að ef ákvörðun liggi ekki fyrir þegar nafn barns sé skráð verði það skráð í trúfélag móður.

Í umsögn Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu er gagnrýnt að staða barns sé ótilgreind þar til foreldrar sem ekki tilheyra sama félagi komi sér saman um það. Þetta geti leitt til þess að ef annað foreldrið sé utan trúfélaga geti það á óbeinan hátt þröngvað afstöðu sinni á barnið í óþökk hins foreldrisins.

Umboðsmaður barna gerir litlar athugasemdir við frumvarpið í umsögn sinni en veltir upp þeirri spurningu hvort í ljósi þess að flest börn fermist á 14. aldursári sé ekki eðlilegra að börn gætu tekið ákvörðun um inngöngu eða úrsögn úr trúfélagi þá í staðinn fyrir þegar þau eru orðin 16 ára eins og nú er. Þannig réðu þau sjálf hvort eða hvar þau fermast.

Torveldar ekki starfsskilyrði

Mannréttindaskrifstofa Íslands lýsir yfir ánægju með frumvarpið en leggur til að staða barna sé ótilgreind þar til foreldrar þess sem eru í hjúskap eða skráðri sambúð taki sameiginlega ákvörðun um skráningu þess í trú- eða lífsskoðunarfélag.

Siðfræðistofnun Háskóla Íslands segir tillögurnar skýrar og gangi ekki á rétt eða geri starfsskilyrði skráðra trúfélaga erfiðari. Stofnunin gerir hins vegar athugasemd við skilgreininguna á lífsskoðunarfélögum. Skilyrði frumvarpsins sé að þau byggist á siðferði og lífsskoðunum óháð trúarsetningum og tengja megi við þekkt hugmyndakerfi í heimspeki og siðfræði. Bendir stofnunin á að þó ekki sé ómögulegt að úrskurða um slík tengsl sé það undarlegt að setja slík skilyrði í lög eins og það liggi ljóst fyrir á hvaða forsendum slíkur úrskurður ætti að byggjast.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Íbúar norðursins spennandi jaðarverur

Kynningarmyndband Inspired by Iceland vakti athygli.
Í gær, 21:30 Norðrið þykir spennandi jaðarsvæði og íbúar þess spennandi jaðarverur. Þess vegna hefur ímynd norðursins til dæmis verið notuð í listsköpun og markaðsherferðum. Þetta sagði Katla Kjartansdóttir þjóðfræðingur á málstofu um Ísland og norðurslóðir sem haldin var í Háskóla Íslands í dag. Meira »

Leigja flugvél undir flóttafólk

Í gær, 21:28 Útlendingastofnun mun leigja farþegaflugvél til að flytja fimmtíu manna hóp Króata til síns heima sem leituðu hælis hér á landi. Fólkinu var synjað um hæli og er verið að birta þeim þá niðurstöðu þessa daganna. Meira »

Sparkaði í andlit liggjandi manns

Horn Laugavegar og Smiðjustígs.
Í gær, 21:15 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt rétt rúmlega tvítugan pilt í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Dómurinn sagði árásina tilefnislausa og grófa en maðurinn sparkaði í andlit liggjandi manns. Honum var gert greiða fórnarlambi sínu 560 þúsund í bætur. Meira »

Fundu 80 grömm af amfetamíni

Amfetamín. Þó töluvert meira en 80 grömm.
Í gær, 21:08 Lögreglan á Akureyri lagði í dag hald á áttatíu grömm af amfetamíni. Málið komst upp þegar bifreið var stöðvuð í bænum en á farþega fundust fjörutíu grömm af efninu. Í kjölfarið var leitað í húsi tengdu mönnunum þar sem fjörutíu grömm til viðbótar fundust. Meira »

Milli steins og sleggju

Frá sumarstarfi kirkjugarðanna.
Í gær, 20:23 Formaður Stúdentaráðs segir stúdenta sem ekki fá vinnu í sumar vera milli steins og sleggju, því þeim standi hvorki til boða atvinnuleysisbætur né námslán. Stjórnarformaður atvinnutryggingasjóðs telur aðsókn í sumarátak á vegum Vinnumálastofnunar minni en í fyrra. Meira »

„Guð birtist mér þegar ég var 2 ára“

Stefán Árni og Tristan kynntust hugleiðslu fyrir 13 árum og fást bæði við hugleiðslukennslu í ...
Í gær, 20:00 Tristan og Stefán Árni ræða andlega vegferð sína og hugleiðslu í viðtali við Sunnudagsblaðið.  Meira »

Ísland með forustu á NM í brids

Íslenska landsliðið í opnum flokki á Norðurlandamótinu í brids.
Í gær, 21:01 Ísland er með forustu í opnum flokki á Norðurlandamótinu í brids, sem nú fer fram á Hótel Keflavík í Reykjanesbæ. Í kvennaflokki er Ísland hins vegar í fjórða og neðsta sæti. Meira »

Krefst viðurkenningar á faðerni

Jóel Færseth Einarsson tveggja mánaða.
Í gær, 20:05 Mál Jóels Færseth Einarssonar, sem fæddist hjónunum Einari Þór Færseth og eiginkonu hans Helgu Sveinsdóttur með aðstoð indverskrar staðgöngumóður, er komið fyrir íslenska dómstóla. Ástæðan er sú að Einar Þór þarf að fá viðurkenningu dómstóla á því að hann sé raunverulega faðir Jóels. Meira »

Sex ekki komnir með aðstoðarmenn

Í gær, 18:22 Flestir ráðherra í nýrri ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins hafa ekki valið sér aðstoðarmenn. Þrír ráðherrar eru komnir með aðstoðarmenn en hinir sex hafa hins vegar ekki gengið frá þeim málum. Meira »

Gott að vinna hjá sérstökum saksóknara

Sérstakur saksóknari.
Í gær, 18:21 Embætti sérstaks saksóknara er stofnun ársins í flokki stórra stofnana með fleiri en 50 starfsmenn. Þetta þriðja árið í röð sem embættið hlýtur þessa nafnbót. Johan Rönning var svo valið Fyrirtæki ársins í hópi stærri fyrirtækja þar sem starfsmenn eru að lágmarki fimmtíu og er þetta annað árið í röð sem Rönning sigrar í þessum stærðarflokki. Meira »

Skipa ráðherranefnd um úrlausnir

Ný ríkisstjórn kom saman á fundi í Stjórnarráðinu í dag
Í gær, 18:11 Ríkisstjórn Íslands undir forsæti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar ákvað á fyrsta fundi sínum í dag að skipuð verði ráðherranefnd um úrlausnir í skuldamálum heimilanna. Markmiðið er að ná fram leiðréttingu vegna verðbólguskots áranna 2007–2010 en til þess megi beita bæði beinni niðurfærslu höfuðstóls og skattalegum aðgerðum. Meira »

Talið að kafarinn nái sér

Silfra.
Í gær, 17:54 Kafarinn sem lenti í vandræðum í Silfru á Þingvöllum fyrr í dag er við betri heilsu en á horfðist og talið er að hann nái sér að fullu. Stuttan tíma tók að koma honum í land og að sjúkrabíl og er hann á leið á Landspítalann. Meira »

Köfunarslys í Silfru

Silfra.
Í gær, 17:24 Björgunarsveitin Ingunn var á sjötta tímanum í dag kölluð út vegna köfunarslyss í Silfru á Þingvöllum. Maðurinn var meðvitundarlítill en er farinn að anda. Hann verður fluttur á sjúkrahús í skyndi. Meira »

Útblástur barst inn í hjólhýsið

Þjórsárdalur.
Í gær, 16:38 Bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar vegna andláts hjóna í hjólhýsi þeirra í Þjórsárdal eru þær að samsetning á reykröri við gasofn var í sundur sem leiddi til þess að að útblástursloft barst inn í hjólhýsið frá útblæstri kyndingarinnar í stað þess að fara út um reykháf. Meira »

„Búið að umturna öllu“

Búið er að umturna öllu í húsinu.
Í gær, 16:04 „Innandyra var búið að umturna öllu. Búið var að velta borðum, velta og skemma ísskáp, hrinda örbylgjuofni ofan af borði, skemma hraðsuðuketil, eyðileggja kaffikönnu, eyðileggja brauðrist, kasta mjólkurfernu í gólfið, smyrja smjöri á innanstokksmuni og dreifa grænmeti um allan skálann.“ Meira »

Franski ferðamaðurinn fundinn

Björgunarsveitarmenn á Fimmvörðuhálsi.
Í gær, 16:57 Franski ferðamaðurinn sem leitað var að á Fimmvörðuhálsi fannst á fimmta tímanum í dag. Hann hafði farið út af gönguleiðinni og ekki ratað inn á hana aftur. Maðurinn var ágætlega á sig kominn þrátt fyrir að vera þreyttur eftir gönguna. Honum verður gefin hressing og gengið með hann niður. Meira »

600 taka þátt í landsþingi Slysavarnafélagsins

Frá landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjörgu
Í gær, 16:05 Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar fer nú fram á Akureyri. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson ávarpaði þingið og kom meðal annars inn á gildi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í íslensku samfélagi og hversu öflugt sameiningartákn félagið er þegar á reynir. Meira »

Eftirlit við Leifsstöð gengur vel

Allt stopp vegna skoðunar bílaleigubíla.
Í gær, 16:00 Nokkrar tafir hafa verið á umferð frá Leifsstöð í dag vegna sérstaks eftirlits með ástandi bílaleigubíla. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum hafa þó engar kvartanir borist og eftirlitið gengið mjög vel. Ætlunin er að kanna öryggi bílaleigubíla með hliðsjón af þeim reglum sem almennt gilda um skoðunarhæfi bifreiða. Meira »
Cadillac Eldorado V8 4,6 Northstar
Einstaklega glæsilegt eintak af Cadillac Eldorado 1995 til sölu. Ekinn aðeins 90...
Coton de tuléar
Er með Coton De Tuléar strák til sölu. Afhendist heilsufarsskoðaður, ormahreinsa...
iSocket GSM snjalltengi
Tilvalið í sumarbústaðinn. Vaktaðu rafmagnið og hitann í bústaðnum. Innbyggður h...
KAUPI GULL
kaupi gull! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmí...
 
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Jarðgöng arnarfjörður - dýrafjörður

Jarðgöng á milli Arnarfjarðar og Dýr...
Sýslumaðurinn í vestmanbaeyjum - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....