Erfitt að svindla með mæla hér

Hér á landi er kílómetrastaðan ávallt skráð við bifreiðaskoðun.
Hér á landi er kílómetrastaðan ávallt skráð við bifreiðaskoðun. mbl.is/Ómar

Stundum er beitt klækjum við sölu á notuðum bílum til að hækka verðið, reynt að fegra gripinn í augum kaupandans. Miklu skiptir hve mikið bílnum hefur verið ekið.

Fram kemur í FÍB-blaðinu, riti Félags íslenskra bifreiðaeigenda, að auðvelt sé að breyta kílómetratölunni á stafrænum hraðamælum í nýjum bílum. Slíka þjónustu sé hægt að kaupa á meginlandi Evrópu fyrir sem svarar nokkur þúsund krónum. Neytendur eru varnarlausir gagnvart slíkum svikum en í sumum ríkjum er ekki einu sinni ólöglegt að breyta tölunni.

Dagný Jónsdóttir, forstjóra Umferðarstofu, segir í Morgunblaðinu í dag, að engar kvartanir hafa borist stofnuninni vegna kílómetrasvika. Ástæðan væri vafalaust að um langt skeið hefði kílómetrastaðan ávallt verið skráð við skoðun og nú bærust þær upplýsingar jafnóðum í miðlægan gagnabanka. Ef kílómetratalan hefði lækkað frá síðustu skoðun kæmi villumelding og málið væri kannað.

„Það er því erfitt að svindla á þessu hér en þetta er mikið rætt hjá samstarfsaðilum okkar í öðrum Evrópulöndum,“ segir Dagný.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert