Telja að drengirnir séu eldri

Lögreglustöðin Suðurnesjum.
Lögreglustöðin Suðurnesjum. logregla.is

Lögreglan á Suðurnesjum segir að rökstuddur grunur sé um að tveir drengir, 15 og 16 ára, sem nýverið voru dæmdir í 30 daga óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa framvísað fölsuðum vegabréfum við komuna til Íslands séu eldri en þeir fullyrða.  Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti lögreglunnar á Suðurnesjum.

Þar kemur fram að drengirnir hafi kosið að áfrýja ekki niðurstöðu héraðsdóms. Þeir hafi framvísað fölsuðum skilríkjum við landamæraeftirlit og hafi ekki verið með önnur skilríki í fórum sínum og hafi því ekki getað sannað á sér deili.

Þeir hafa óskað eftir hæli í Finnlandi og er mál þeirra til rannsóknar hjá þarlendum yfirvöldum sem telja rökstuddan grun fyrir því að þeir séu eldri en þeir halda fram en það mun þurfa að leiða í ljós með aldursgreiningarrannsókn, segir í tilkynningu frá lögreglu.

„Hæstiréttur hefur staðfest alvarleika þess að falsa opinber skilríki og framvísa þeim á landamærum og liggur fyrir áralöng dómaframkvæmd að þeir sem gerist sekir um slíkt brot hljóti 30 daga fangelsisrefsingu.

Þá hefur Hæstiréttur staðfest að til að 31. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu Þjóðanna eigi við þurfi aðilar að koma beint frá landi þar sem lífi þeirra eða frelsi var ógnað og gefa sig tafarlaust fram við stjórnvöld og bera fram gildar ástæður fyrir hinni ólöglegu komu eins og ákvæði samningsins ber með sér en hvorugu þessara skilyrða var fullnægt í umræddum tilvikum.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum getur ekki veitt frekari upplýsinga um málið þar sem það sætir rannsókn hjá erlendum yfirvöldum og eru málefni aðilanna til umfjöllunar hjá Útlendingastofnun,“ segir ennfremur í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert