Viðvörun frá Veðurstofunni

Mjög slæm veðurspá er fyrir sunnudag og mánudag
Mjög slæm veðurspá er fyrir sunnudag og mánudag mbl.is/Rax

Veðurstofan vill vekja sérstaka athygli á slæmri veðurspá fyrir næstkomandi sunnudag og mánudag. Ferðafólki, bændum, sjómönnum og öðrum sem eru háðir veðri í leik og starfi er bent á að gera viðeigandi ráðstafanir.

Spáin er eftirfarandi:

Á sunnudag:
Norðaustan 15-23 m/s með slyddu og síðar snjókomu um landið N- og A-vert, en rigningu S-lands framan af degi. Kólnandi veður, hiti um og undir frostmarki um kvöldið, en frostlaust syðst.

Á mánudag:
Útlit fyrir allhvassa eða hvassa norðanátt með snjókomu eða éljum, en þurru syðra. Víða vægt frost, en hiti 0 til 5 stig S-lands yfir daginn.

Hægt er að fylgjast með nýjustu spám hér

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert