Ætlar að flytja inn 100 rafbíla í sumar

Even stefnir á að selja rafbílinn Reva NXR í miklu …
Even stefnir á að selja rafbílinn Reva NXR í miklu magni hér á landi á næstu misserum.

„Við höfum tryggt okkur sæti í röðinni hjá nokkrum framleiðendum þegar þeir koma með nýja rafbíla á markað,“ segir Gísli Gíslason, stjórnarformaður Northern Lights Energy, um fyrirhugaðan innflutning á rafbílum á næstu misserum.

„Þegar frumvarpið um breytingar á virðisaukaskattslögunum um niðurfellingu hluta virðisaukaskattsins af hreinorkubílum hefur verið samþykkt mun rekstrargrundvöllurinn skýrast. Þegar það gerist getum við lagt fram pantanir og þá kemur í ljós hvað við fáum mikið af bílum,“ segir Gísli ennfremur í Morgunblaðinu í dag um fyrirhugaðan innflutning á rafbílum á næstu misserum.

Í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag segir, að í gegnum tíðina hafa ýmis áform um innflutning á rafbílum ekki gengið eftir og hefur það orðið vatn á myllu þeirra sem telja hugmyndir um rafbílavæðingu íslenska bílaflotans óraunhæfar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert