Lent heilu og höldnu

Hér sést vélin er hún lenti á Keflavíkurflugvelli í kvöld
Hér sést vélin er hún lenti á Keflavíkurflugvelli í kvöld mbl.is/Eggert Jóhannesson

Flugvél Icelandair sem snúa þurfti við til öryggislendingar lenti heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli nú kl. 21:17.

Mikill viðbúnaður var vegna öryggislendingarinnar en 191 var um borð í vélinni sem er af Boeing-gerð. Eitt af fjórum dekkjum úr aftara hjólastelli vantaði en það kom í ljós eftir að vélin fór í loftið.

Samkvæmt flugslysaáætlun Keflavíkurflugvallar tekur áfallahjálparteymi við farþegum flugvéla eftir öryggislendingar. Aðstandendum farþega stendur áfallahjálp einnig til boða, samkvæmt upplýsingum frá almannavörnum.

Almannavarnir lýstu yfir hættustigi og var samhæfingarmiðstöðin í Skógarhlíð virkjuð vegna atviksins. Hættustig er annað af þremur háskastigum í neyðarskipulagi Almannavarna, en þriðja stigið er neyðarstig.

Í þessu tilfelli felst það m.a. í að allt tiltækt lögreglu-, sjúkra- og slökkvilið hefur verið kallað til auk björgunarsveita og Landhelgisgæslu.

Icelandair.
Icelandair. mbl.is/Ernir
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert