Segist vera með samviskubit

Ásmundur Stefánsson titlaði sig sem ellilífeyrisþega þegar hann flutti erindi …
Ásmundur Stefánsson titlaði sig sem ellilífeyrisþega þegar hann flutti erindi á fundi um lífeyrismál í dag. mbl.is/Styrmir Kári

Ásmundur Stefánsson, fyrrverandi forseti ASÍ, segist ekki hafa haft hugmyndaflug til að láta sér detta í hug að stjórnvöld myndu ganga svo langt í tekjutengingu ellilífeyris eins og þau hafa gert. Það skipti í dag engu máli hvort verkakona á lágmarkslaunum hefði greitt í lífeyrissjóð eða ekki. Hún væri jafnsett.

Ásmundur sagði þetta á fundi um lífeyrismál í dag. Hann sagði að fyrstu 73 þúsund krónurnar sem ellilífeyrisþegar væru með í tekjur úr lífeyrissjóði væru gerðar upptækar í gegnum skerðingar í almannatryggingarkerfinu. Skerðingin væri 100%. Ásmundur sagði að það væri því ekki óeðlilegt að fólk varpaði fram þeirri spurningum, hvers vegna það hefði verið að greiða í lífeyrissjóð. Hann hefði á sínum tíma hvatt fólk til að greiða í lífeyrissjóð og sýna þannig fyrirhyggju í fjármálum. Hann sagði hafa samviskubit gagnvart þessu fólki.

Ásmundur sagðist ekki vera á móti tekjuskerðingum en þær yrðu að vera hóflegar. Það yrði að ná sátt um lífeyrissjóðakerfið því annars brotnaði það niður.

Ásmundur gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega fyrir að reyna að taka til sín fjármuni lífeyrissjóðanna. Þetta væru fjármunir sem hefðu verið ætlaðir í að borga lífeyri og það ætti ekki að nota peningana í önnur verkefni. Hann minnti á söguna um Litlu gulu hænuna. Enginn hefði viljað hjálpa henni fyrr en hún var búin að baka brauðið. Menn hefðu á mörgum árum byggt upp öflugt lífeyriskerfi og nú teldu stjórnvöld sig geta tekið ákvarðanir um hvernig ætti að ráðstafa fjármunum sjóðanna.

Ásmundur brýndi forsvarsmenn lífeyrissjóðanna að láta ekki undan kröfum stjórnvalda um að taka á sig útgjöld vegna verkefna sem ekki tengdust megintilgangi lífeyrissjóðanna, sem er að greiða lífeyri. Hann sagði að lífeyrissjóðirnir ættu ekki að ljá máls á því að ræða þetta við stjórnvöld.

Of mikil gjaldtaka á hjúkrunarheimilum

Ásmundur gagnrýndi líka hversu mikið fólk á hjúkrunarheimilum greiddi í gjöld. Kerfið er þannig að þeir sem engar tekjur hafa úr lífeyrissjóðum fá greiddar 46.873 krónur í vasapeninga. Þeir sem hafa tekur halda hins vegar aðeins eftir 65.005 krónum, þó að þeir séu með tekjur upp að 541.406 krónum á mánuði.

Í dag eru 49% þeirra sem eru á hjúkrunarheimilum með engar tekjur úr lífeyrissjóðum og þurfa því ekki að greiða með sér. Ásmundur sagði að þetta hlutfall myndi lækka á næstu árum þegar aldrað fólk sem ekki er með lífeyrisréttindi félli frá en fólk með lífeyrisréttindi kæmi inn á heimilin í þess stað.

Ásmundur kynnti á fundinum útreikninga á því hvað samfélagið væri að greiða mikið fyrir þjónustu við aldraða og hvað aldraðir væru að greiða mikið til þess með sköttum sínum. Niðurstaða hans var að aldraðir fjármögnuðu sjálfir útgjöld vegna lífeyris og hjúkrunarheimila. Samfélagið greiddi ekkert til þessara verkefna. Ásmundur gagnrýndi samtök aldraðra fyrir að standa ekki upp í hárinu á stjórnvöldum í þessu máli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert