„Getum ekki stutt ríkisstjórn“

Margrét Tryggvadóttir, Birgitta Jónsdóttir og Þór Saari.
Margrét Tryggvadóttir, Birgitta Jónsdóttir og Þór Saari. mbl.is

„Við munum áfram vinna með sama hætti og áður og styðja öll góð mál, sama hvaðan þau koma, en ríkisstjórn sem ekki hefur getu til að takast á við brýnasta vanda samtímans getum við ekki stutt,“ segja Margrét Tryggvadóttir, Birgitta Jónsdóttir og Þór Saari í nýrri yfirlýsingu frá þingmönnum Hreyfingarinnar.

Í yfirlýsingunni kemur fram að viðræður á milli þinghóps Hreyfingarinnar og formanna stjórnarflokka hafi staðið yfir síðustu daga og þær viðræður hafi verið óbeint framhald funda í kringum síðustu áramót.

„Því miður náðist ekki samkomulag og er viðræðunum lokið af okkar hálfu. Þar sem samningar hafa ekki tekist liggur ekki fyrir neitt samkomulag um að við verjum ríkisstjórnina vantrausti.“

„Það er skoðun okkar að þær smáskammtalækningar sem ráðist hefur verið í muni aldrei duga til að rétta stöðu þeirra heimila sem urðu fyrir forsendubresti við hrunið; þær eru kostnaðarsamar og fela í sér óréttlæti sem ekki er hægt að una við. Að okkar mati er nauðsynlegt að ráðast að rót vandans, leiðrétta lánin, afnema  verðtrygginguna og skapa neytendavænt lánaumhverfi. Öðruvísi næst aldrei varanlegur árangur og hvorki sátt né réttlæti.“



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert