Þúsund vilja þingrof og kosningar

mbl.is/Hjörtur

Rúmlega eitt þúsund undirskriftir hafa nú safnast á vefsíðunni www.kjosendur.is þar sem þess er krafist að þing verði rofið og boðað til kosninga. Þess má geta að þegar mbl.is sagði frá málinu um klukkan hálfsex í dag voru undirskriftirnar innan við 30 en eru nú orðnar 1.059 samkvæmt vefsíðunni þegar þetta er skrifað.

Skorað er á Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á vefsíðunni „að ganga til fundar við forseta Íslands og biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt eigi síðar en tveim vikum eftir afhendingu þessarar áskorunar“.

Ennfremur segir að verði forsætisráðherra ekki við áskoruninni sé skorað á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að rjúfa þing og boða til kosninga í samræmi við ákvæði stjórnarskrárinnar.

Engin samtök eða stjórnmálaflokkar standa á bak við undirskriftasöfnunina heldur einungis einstaklingar að sögn Ástu Hafberg, eins af aðstandendum söfnunarinnar, í samtali við mbl.is.

Hún segir ennfremur að ástæður þeirra sem standa að framtakinu fyrir því að vilja þingrof og kosningar séu ólíkar. Eins skrifi þeir sem taki þátt í undirskriftasöfnuninni undir á sínum eigin forsendum.

Krafist þingrofs og kosninga

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert