„Hjálmar geta klárlega bjargað lífi fólks“

mbl.is Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is

Kjartan Sverrisson var á leið heim til sín í Mosfellsbænum í gær, miðvikudag, þegar árekstur varð með bifhjóli við Víkurvegsbrú á Vesturlandsveginum.

Betur fór en á horfðist en Kjartan er blár og lemstraður eftir áreksturinn auk þess sem herðablað er brotið. Einnig þurfti að sauma tólf spor í höfuð hans og það þrátt fyrir að hann væri með hjálm á höfði. Miklar umræður um hjálmnotkun hafa skapast á Fésbókinni þangað sem Kjartan sendi mynd af hjálminum eftir slysið, mölbrotnum og blóðugum.

„Ég hugsa að ekki hefði þurft að sauma neitt hefði ég ekki verið með hjálm. Læknarnir, lögreglan og sjúkrafólk sem kom á staðinn, sem reyndar var líka hjólafólk, var sammála um að hefði ég ekki verið verið með hjálm við þessar aðstæður hefði ég verið fluttur beint í líkhúsið en ekki á á slysó,“ sagði Kjartan í samtali við mbl.is nú fyrir stundu.

Mikilvægi hjólahjálma verður seint áréttað nægilega. Í tilfelli Kjartans skipti hjálmurinn sköpum en hann flaug af hjólinu við áreksturinn og lenti á höfðinu. „Hausinn á mér væri sennilega eins og hjálmurinn er núna ef ég hefði ekki verið með hann á hausnum. Hjálmar geta klárlega bjargað lífi fólks,“ sagði Kjartan á fésbókarsíðu sinni í kjölfar slyssins. 

Kjartan jafnar sig nú á meiðslunum. Aðspurður hvort beygur sé í honum að setjast á hjólið á ný sagðist hann ekki myndu hætta að hjóla. „Um leið og ég fæ styrk í höndina fer ég aftur, það er klárt mál. Þetta er frábær leið til að koma sér í og úr vinnu.“

Hjálmur Kjartans eftir slysið, brotinn og blóðugur.

Hjálmur Kjartans eftir slysið, brotinn og blóðugur. Ljósmynd/Kjartan Sverrisson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Vorhátíð í Vesturbæjarskóla

Nemendur í Vesturbæjarskóla og foreldrar ganga upp Framnesvegin í skrúðgöngu vorhátíðar Vesturbæjarskóla 25. maí.
01:56 Vorhátíð Vesturbæjarskóla var haldin með pomp og pragt á laugardag. Hátíðin hófst að venju á skrúðgöngu. Löng biðröð var við ógnvekjandi draugahús, sem nemendur í sjöunda bekk áttu heiðurinn að, dansflokkurinn Area of Stylez kom fram og nemendur í sjötta bekk sáu um veitingasölu. Meira »

Tveir með allar tölur réttar

Í gær, 20:07 Tveir voru með allar tölur réttar í Lottói kvöldsins og fá þeir samtals 15.840.220 krónur í sinn hlut. Einn var hins vegar með fjórar tölur réttar auk bónustölunnar og fær hann fyrir vikið 438.230 krónur. Meira »

Þrír vélhjólamenn á sjúkrahús

Í gær, 20:03 Þrír vélhjólamenn hafa verið fluttir á sjúkrahús í dag samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum en allir munu þeir hafa verið þátttakendur í mótorkrosskeppni sem fram hefur farið í nágrenni Kirkjubæjarklausturs í gær og í dag. Meira »

Sæta ekki ofsóknum í Króatíu

Í gær, 19:47 Fullrannsakað er að hópur fólks sem Útlendingastofnun hefur ákveðið að senda aftur til Króatíu sæti ekki ofsóknum þar í landi. Þetta sagði Kristín Völundardóttir, forstjóri stofnunarinnar, í kvöldfréttum RÚV. Meira »

Hlutu bronsverðlaun í fimleikum

Stúlknalandsliðið. Fv. Gyða Einarsdóttir, Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir, Nanna Guðmundsdóttir, Lilja Björk Ólafsdóttir, Steinunn Anna Svansdóttir ...
Í gær, 18:34 Íslenska stúlknalandsliðið í fimleikum hlaut í dag bronsverðlaun í sveitakeppni á Norðurlandamóti unglinga í áhaldafimleikum. Einnig keppa tveir Íslendingar keppa til úrslita á morgun, þau Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir og Valgarð Reinharðsson. Mótið fer fram í Elverum í Noregi. Meira »

„Fögnum og endurnýjum kynnin“ myndskeið

landsbjorg
Í gær, 17:29 „Þetta var frábært þing og gríðarlega góð mæting alls staðar að af landinu. Það voru yfir 600 manns sem voru skráðir á þingið og þar fór fram mjög málefnaleg og góð umræða um helstu áherslur og málefni félagsins.“ Meira »

Fjör á Grafarvogsdeginum

Frá Grafarvogsdeginum í dag.
Í gær, 19:30 Grafarvogsdagurinn var haldinn hátíðlegur í dag í Grafarvoginum í Reykjavík og var eins og áður boðið upp á fjölbreytta dagskrá sem sniðin var með það í huga að fjölskyldan gæti átt góðan dag saman. Meira »

Óðu snjóinn á leiðinni á völlinn

Leikmenn KF og KA óðu snjóinn í dag.
Í gær, 17:41 Það var ekki beinlínis sumarlegt þegar leikmenn knattspyrnuliðanna KA og KF skokkuðu út á völlinn fyrir leik sinn í fyrstu deildinni í dag. Þó að langt sé liðið á maímánuð og sumarið hafi litið dagsins ljós á dagatölunum, má enn víða sjá hvíta jörð á Ólafsfirði þar sem leikurinn fór fram. Meira »

Ræktun stöðvuð í heimahúsi

Úr myndasafni.
Í gær, 17:13 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag kannabisræktun í heimahúsi við Heiðarás í Reykjavík í kjölfar húsleitar en þar voru um eitt hundrað kannabisplötur í ræktun. Meira »

Skólameistari lætur af störfum

Einar Birgir Steinþórsson, fráfarandi skólameistari Flensborgarskóla ásamt Magnúsi Þorkelssyni, aðstoðarskólameistara skólans.
Í gær, 15:48 Einar Birgir Steinþórsson, skólameistari Flensborgarskóla, hefur ákveðið að láta af störfum og starfar því ekki út skipunartíma sinn. Hann segir að mjög sé þrengt af framhaldsskólunum og því fylgi álag að reyna að halda sjó. Meira »

Vélhjólaslys austur af Klaustri

Í gær, 15:17 Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Landspítalanum í Fossvogi um þrjúleytið með einstakling sem slasaðist í mótorhjólaslysi austan við Kirkjubæjarklaustur samkvæmt upplýsingum frá Gæslunni. Meira »

Margir vilja láta mæla gildi sín

Fjölmargir hafa lagt leið sína í SÍBS-húsið til að láta mæla hjá sér blóðþrýsting og ...
Í gær, 14:20 Segja má að fullt sé út úr dyrum í SÍBS-húsinu í Síðumúla þar sem Hjartaheill býður í dag ókeypis mælingar á blóðþrýstingi og öðrum gildum. Sökum þess er nokkur bið eftir mælingum en létt er yfir fólki, að sögn fréttaritara mbl.is á staðnum. Áfram verður boðið upp á mælingar á morgun. Meira »

Breytt viðhorf til alvarlegra vanskila?

Í gær, 14:03 Forstöðumaður fyrirtækjasviðs Creditinfo segir umhugsunarefni að alvarleg vanskil séu að aukast á sama tíma og atvinnuleysi minnkar og kaupmáttur eykst. Hann veltir því fyrir sér hvort greiðsluvilja skuldara skorti eða greiðslugetu. Meira »

Undirbúa minningarmót um Motzfeldt

Kristjana Guðmundsdóttir Motzfeldt, ekkja Jonathans, sem er gestgjafi Hróksliða í Nuuk, og Aleqa Hammond, forsætisráðherra ...
Í gær, 12:58 Liðsmenn Skákfélagins Hróksins hafa undanfarna daga dvalið í Nuuk, höfuðborg Grænlands, til að undirbúa minningarskákmót um Jonathan Motzfeldt, fyrsta forsætisráðherra Grænlands. Meðal annars var fundað í vikunni með forsætisráðherra Grænlands, Alequ Hammond, þar sem hún hét stuðningi sínum. Meira »

Tæplega 2.500 jarðskjálftar í apríl

Upptök jarðskjálfta á Íslandi í apríl 2013. Rauðir hringir tákna jarðskjálfta stærri en 0 að ...
Í gær, 10:17 Veðurstofa Íslands hefur staðsett tæplega 2.500 jarðskjálfta í apríl. Helsti atburður mánaðarins var snörp skjálftaröð vestan við Grímsey, sem hófst með jarðskjálfta af stærð 5,5 þann 2. apríl. Skjálftinn fannst víða á Norðurlandi. Nokkur þúsund eftirskjálftar mældust, og er úrvinnslu ekki lokið. Meira »

Þrjú vilja þjóna á Patreksfirði

Patreksfjarðarkirkja
Í gær, 13:32 Þrjú sóttu um embætti prests í 50% starfshlutfalli í Patreksfjarðarprestakalli, Vestfjarðarprófastsdæmi. Frestur til að sækja um rann út 7. maí síðastliðinn og veitist embættið frá 1. júní næstkomandi. Meira »

Eiginmaður Eyglóar spilar á saxófón

Sigurður E. Vilhelmsson líffræðingur, framhaldsskólakennari, þýðandi og eiginmaður nýorðins félags- og húsnæðismálaráðherra, Eyglóar Harðardóttir.
Í gær, 10:30 Makar þeirra ráðherra sem tóku sæti í nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks deila því hvernig næstu ár horfa við þeim hvað fjölskyldulíf varðar, hvaðan þeir koma og hvað þeir gera sér til dundurs meðan makinn er í vinnunni við að stýra landinu. Meira »

„Þú ert viðbjóður og ógeð“

„Hann stóð í svefnherbergishurðinni og hleypti mér ekki út. Þegar maður er kominn í þessa ...
Í gær, 10:00 „Þó að ég byggi að reynslu úr mínu starfi við að aðstoða þolendur heimilisofbeldis þá datt ég sjálf í þennan pytt,“ segir kona sem hefur í gegnum árin unnið í velferðarkerfinu og m.a. oft rætt við þolendur heimilisofbeldis. Samt giftist hún manni sem beitti hana alvarlegu ofbeldi. Meira »
Fendt Diamant VIP 700
Þá er komið að því að ég ætla að selja þennan yndislega stað minn að Hellishólum...
ÓSKA EFTIR TOYOTA LAND CRUISER 120 Diesel
Óska eftir TOYOTA LAND CRUISER 120 Diesel. Þarf að vera: - Sjálfskiptur - ...
HANDSLÍPAÐAR LJÓSAKRÓNUR
Tilboð 25% afsláttur á handslípuðum kristalslj...
Garðyrkja
Tilbúinn að laga garða fyrir gott verð, hef mikla reynslun geri tilboð. Vinn sjá...
 
Jarðgöng arnarfjörður - dýrafjörður

Jarðgöng á milli Arnarfjarðar og Dýr...
Kynningarfundur v aðalskipulags
Tilkynningar
Opinn kynningar- fundur Endursko...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Bifreiðauppboð
Nauðungarsala
Sýslumaðurinn í Reykjavík, Skógarhlíð 6...