Sitja heima og blogga um drykkju

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is

„Maður er hálfsleginn yfir því hvernig þessi umræða er að þróast. Ekki einasta að Björn Valur Gíslason komi með dylgjur um að þingmenn séu drukknir, heldur sitja líka þingmenn heima hjá sér og blogga um að við sem erum að starfa hér í þágu þjóðarinnar séum hér drukkin í vinnunni,“ sagði Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins á Alþingi í nótt.

Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, sagði á þingi í nótt að sér virtist sem einn þingmanna væri undir áhrifum áfengis. 

Vigdís nafngreindi bloggarann ekki, en sagði að um væri að ræða sama mann „og hafði hér  uppi mjög slæm meiðyrði um forseta íslands í andsvari við mig á sínum tíma.“

„Á einhvern undarlegan hátt virðist þessi þingmaður sífellt sleppa við vítur eða áminningar og þarf aldrei að biðjast afsökunar,“ sagði Vigdís og sagðist vænta þess að viðkomandi fengi nú þá ráðningu sem honum bæri.  „Forsætisnefnd verður núna að setjast niður og búa hér til einhverjar reglur.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert