„Vilja ráða efnislegri niðurstöðu“

Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra. stækka

Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra. mbl.is/Ómar Óskarsson

Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra sagði í Alþingi í morgun að stjórnarandstaðan krefðist þess að ráða efnislegri niðurstöðu veiðigjaldamálsins. Hann minnti á að það væri þingmeirihluti fyrir málinu.

Umræða hófst í morgun á Alþingi um veiðigjöld. Nokkrir þingmenn bæði úr stjórn og stjórnarandstöðu hvöttu til samstöðu í málinu og sögðu að í reynd bæri ekki mikið efnislega á milli manna.

Áður en formleg umræða byrjaði um veiðigjaldafrumvarpi hófst umræða um fundarstjórn forseta. Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokks, sagðist vilja að ráðherrar og helstu stuðningsmenn fumvarpsin yrðu viðstaddir umræðuna.

Björgin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingar, sagði að í reynd væru allgóð samstaða um meginatriði þessa máls. Jón Gunnarsson og Árni Johnsen, þingmenn Sjálfstæðisflokks, tóku undir þetta og sögðu ekki ágreining um að sjávarútvegurinn greiddi veiðigjöld. Þeir gagnrýndu hins vegar hvernig stjórnvöld hefðu staðið að málum og eins þyrfti að gera frekari breytingar á frumvarpinu.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefði sagt að ekki stæði til að gefa meira eftir í þessu máli. Þetta benti ekki til þess að mikill sáttahugur væri hjá forsætisráðherra.

Fram kom í umræðunni að stjórnarandstæðingar vilja að það verði gert hlé á umræðunni og málinu yrði vísað aftur til nefndar. Björgvin sagði það enga lausn og réttar væri að ljúka annarri umræðu og taka málið fyrir í nefnd áður en þriðja umræðan færi fram.

„Síðan á mánudag höfum við reynt að gera stjórnarandstöðunni ýmis tilboð í þessum efnum. Það hefur komið fyrir ekkert,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon. „Stjórnarandstaðan hefur talað hér í 70-80 klukkustundir nú þegar við aðra umræðu, en er þetta þó frumvarp sem þarf að fá afgreiðslu. Það tengist forsendum fjárlaga yfirstandandi árs og ríkisfjármálaáætlun næstu ára. Það hefur ekki verið venjan að stjórnarandstaðan leggja stein í götu þess að t.d tekjuöflunarfrumvörp fjárlaga næðu fram að ganga. Þau eru afgreidd á ábyrgð meirihlutans og það er ekki verið að biðja neinn að bera pólitíska ábyrgð á því. Það er þingmeirihluti fyrir þessu máli, en vandinn virðist vera sá að minnihlutinn vill ráða efnislegri niðurstöðu þess.“

Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins spurði forseta hversu lengi þingfundur ætti að standa í dag. Hann sagðist hafa ætlað sér að vera viðstaddur opnun nýrrar verksmiðju Fjarðaáls á Reyðarfirði síðar í dag. Forseti gaf engin svör um hvað fundurinn yrði langur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Ekkert fær stöðvað sannleikann

06:02 Edward Snowden segir að leiðtogar Bandaríkjanna geti ekki komið í veg fyrir birtingu upplýsinganna með því að fangelsa hann eða myrða. Ekkert fái stöðvað sannleikann. Hann ýjar að því að birta frekari upplýsingar um hleranir Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna. Meira »

Gagnrýna skipun stjórnar LÍN

Stjórn Röskvu
05:35 Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, hafa sent Illuga Gunnarssyni, mennta- og menningarmálaráðherra, opið bréf þar sem lýst er yfir óánægju með að Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins hafi verið skipaður stjórnarformaður LÍN. Meira »

Þörf fyrir 1.500 íbúðir

Frá Úlfarsárdal
05:30 Jákvæð teikn eru á lofti í byggingariðnaði og hefur sala á timbri, sementi og steinull aukist frá því í fyrra. Útlit er fyrir að nýbyggingar á árinu komi ekki til með að mæta innbyggðri þörf sem segir til um að árlega þurfi að byggja um 1.500 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu til að mæta fólksfjölgun. Meira »

255 útkallsverkefni hjá lögreglunni á Akureyri

Lögreglustöðin Akureyri
05:30 „Einn var tekinn með 40 sölupakkningar af hvítu efni í fórum sínum ásamt 50 grömmum af maríjúana síðastliðna nótt,“ segir Jóhannes Sigfússon, varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri. Meira »

Sérstakar umræður um ríkisfjármál í dag

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson
05:30 Sérstakar umræður eru boðaðar á Alþingi í dag um áherslur nýrrar ríkisstjórnar í ríkisfjármálum. Málshefjandi er Steingrímur J. Sigfússon og til andsvara verður fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarni Benediktsson. Meira »

Sólrík Akureyri á þjóðhátíð

Veðrið lék við Akureyringa og gesti þeirra í dag. Unga fólkið skemmti sér vel í ...
Í gær, 23:20 Þjóðhátíðardagurinn var sólríkur og fagur í höfuðstað Norðurlands. Stúdentar voru brautskráðir frá Menntaskólanum á Akureyri að vanda - 149 að þessu sinni - og settu svip á bæinn, sem og gamlir stúdentar sem fjölmenna jafnan til bæjarins til að fagna. Skátafélagið Klakkur sá um hátíðahöld dagsins, sem fóru afar vel fram. Meira »

Hvalur 8 með langreyði til hafnar í dag

05:30 Hvalur 8 veiddi í gær eina langreyði vestur af landinu. Búist er við því að hvalurinn komi í land um hádegisbilið í dag, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins í gærkvöldi. Meira »

Lenti í íslenskum hálendisrudda

Ómar Ragnarsson á Akureyri.
Í gær, 23:40 „Hreyfillinn drap á sér og fór ekki í gang aftur. Ég skil það hreinlega ekki, það var nóg bensín og rafmagn á henni,“ segir Ómar Ragnarsson fréttamaður, í samtali við mbl.is en hann þurfti að nauðlenda í kvöld við Sultartangalón. Meira »

Kátir krakkar með sleikjósnuð

Margir sóttu sautjánda júní hátíðahöld í Reykjavík.
Í gær, 23:02 Margt var um manninn í miðbænum í dag til að fagna þjóðhátíðardegi Íslendinga. Veðrið var milt í miðbænum en sólin lét ekkert sjá sig og fannst mörgum fremur kalt og rigningalegt. Það var þó kátt yfir fólki sem sótti hátíðardagskrána og mátti sjá mörg glöð andlit með gasblöðru eða sleikjósnuð. Meira »

Sjaldgæfir gestir hér við land

Rostungurinn sem liggur á ströndinni í Reyðarfirði.
Í gær, 22:46 „Þetta gæti verið ungur brimill eða urta því höggtennurnar verða oft mun stærri þegar um er að ræða fullvaxta brimla,“ segir Erlingur Hauksson sjávarlíffræðingur um rostunginn sem sást á Reyðarfirði fyrr í dag. Meira »

Brotlending við Sultartangalón

TF-TAL hafnaði á hvolfi.
Í gær, 22:19 Lítil flugvél af gerðinni Cessna, TF-TAL, þurfti að nauðlenda við Sultartangalón fyrr í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarnefnd samgönguslysa þurfti vélin að lenda vegna vélarvandræða. Meira »

Eins og að róa daglega til fiskjar

Hjörtur Gíslason hefur skrifað um sjávarútvegsmál í nær þrjá áratugi og stýrir nú netmiðlinum kvotinn.is.
Í gær, 21:44 „Þetta er heilmikil breyting, öðruvísi vinnubrögð, en ég skrifaði reyndar svolítið á netið á gamla, góða tímanum á Mogganum,“ segir Hjörtur Gíslason, fyrrverandi vinnufélagi á Morgunblaðinu í áratugi og nú ritstjóri kvotinn.is, vefmiðils um sjávarútvegsmál undir framkvæmdastjórn Ólafs M. Jóhannessonar. Meira »

Hlaut minniháttar brunasár

Í gær, 21:32 Barn sem brenndist á veitingastað á Geirsgötu í Reykjavík hefur verið útskrifað af sjúkrahúsi. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni hlaut barnið minni háttar brunasár eftir að heit súpa helltist yfir það. Meira »

Retro Stefson tryllti lýðinn

Retro Stefson vakti mikla lukku á Arnarhóli í dag.
Í gær, 20:29 Hljómsveitin Retro Stefson var á meðal þeirra sem stigu á svið við Arnarhól í dag en þar voru haldnir tónleikar í tilefni þjóðhátíðardagsins. Hljómsveitirnar Dr. Gunni og vinir hans, Ojba Rasta og Samúel Jón Samúelsson Big Band komu einnig fram. Meira »

Skemmtibátur kominn í höfn

Björgunarbátar fara oft á kreik til að draga báta að landi.
Í gær, 18:53 Skemmtibátur sem lenti í vandræðum var dreginn til hafnar fyrir skömmu. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg gekk aðgerðin vel en björgunarbáturinn Þórður Kristjánsson í Reykjavík var kallaður út til aðstoðar. Meira »

Álftin á Hrísatjörn komin með unga

Í gær, 21:25 Álftin sem á sínum tíma missti egg úr sér á ísilagða Hrísatjörn í friðlandi Svarfdæla við Dalvík er komin með unga. Haukur Snorrason, sem fylgst hefur með álftinni, náði myndum af henni og ungunum. Meira »

Mikið spólað á götum á Akureyri

Gríðarlega mikil hjólför eru á götum Akureyrar.
Í gær, 19:02 Það fer ekki á milli mála að um helgina voru haldnir bíladagar á Akureyri. Götur bæjarins bera þess margar merki að fjölmargir bílar hafi verið í bænum um helgina og eru hjólförin eftir þá gríðarlega áberandi. Meira »

Sigurbjörg bæjarlistamaður

Sigurbjörg Þrastardóttir rithöfundur var tilnefnd bæjarlistamaður Akraneskaupstaðar.
Í gær, 18:51 Sigurbjörg Þrastardóttir rithöfundur var tilnefnd bæjarlistamaður Akraneskaupstaðar við hátíðlega athöfn sem fór fram í tengslum við 17. júní hátíðarhöld á Akranesi. Meira »
HÓPFERÐABÍLAR
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU Í LENGRI OG SKEMMRI FERÐIR. PLUTÓ FERÐIR EHF. SÍMI 616...
Þjófavörn á aðeins 9980 kr !!!!
Loksins - 100% þráðlaus þjófavörn. Vönduð, ódýr og einföld þjófavörn sem gengur ...
Borðstofuborð, 10 stólar og hornskápur til sölu
Til sölu borðstofuborð úr gegnheilli eik sem hægt er að stækka með þremur plötu...
Fallegur Nuddbekkur Topp - Gæði Verð : 62.000 Sterkur - Ódýr- Fallegur.5 ára ábyrgð
Ferðanuddbekkur www.isholf.is/eirikurs/nuddbord.html s. 8626194. Eru í 2 breiddu...
 
Sölufulltrúi
Sölu/markaðsstörf
SkrifStofuStarf innflutningsfyrirtæki ...
Verkefnastyrkur
Tilkynningar
Verkefnastyrkir og ferða- og menntunar...
Starfsmaður á lager
Iðnaðarmenn
Gæðabakstur, Ömmubakstur e...
Samkoman fellur inní sumarmót
Félagsstarf
Safnaðarheimili Grensásk...