Nokkrir tímar urðu að tveimur dögum

Vél Icelandair.
Vél Icelandair. mbl.is/Eggert

„Okkur var sagt að við þyrftum að bíða í nokkrar klukkustundir, núna eru liðnir tveir dagar,“ segir Vincent Hurteau sem átti bókað flug með vél Icelandair frá Washington til Íslands á mánudagskvöldið. Vegna bilunar varð að lenda í Boston þar sem hluti farþeganna er enn að bíða eftir að komast til landsins.

Hann segir að meðal þeirra sem bíði nú í Boston sé kona með þrjú lítil börn auk 8-10 eldri borgara sem séu að missa af skemmtisiglingu. Sjálfur hafi hann átt að hitta fólk í Reykjavík. Hann gagnrýnir lélegt upplýsingaflæði til farþeganna, þeir hafi verið sendir á hótel og sagt að koma morguninn eftir. Fluginu hafi verið frestað fram eftir degi og loks hafi verið sagt að vélin færi á miðnætti. Seint um kvöldið var flugið hvergi að finna á upplýsingaskjám og þegar farþegar leituðu sér upplýsinga var þeim sagt að flugið hafi verið fellt niður. 

Þeim var enn og aftur komið fyrir á hóteli, sem Hurteau segir að hafi verið langt fyrir utan Boston, og sagt að flugvélin færi í loftið kl. 10 morguninn eftir en í morgun var þeim sagt að fluginu hefði verið frestað þar til síðar í dag. „Icelandair hefur ekki verið hjálpsamt, þetta hefur mikil áhrif á fríið hjá mörgum,“ segir Hurteau að lokum.

Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir að í gær hafi verið búist við varahlut í flugvélina frá London en hann hafi síðan ekki skilað sér. Reynt var að koma eins mörgum farþegum og hægt var á leiðarenda með öðrum flugfélögum. „Það tókst að bjarga málunum fyrir um 120 farþega en 38 urðu að gista aðra nótt í Boston og komast loksins til Íslands núna á eftir.“

Hann segir alveg ljóst að svona löng töf valdi verulegum óþægindum hjá fólki. „Það verður að sjálfsögðu komið til móts við það í samræmi við gildandi reglur um farþegaréttindi, það verður reynt að gera eins gott úr þessu og hægt er en töfin er orðin, því miður.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert